Skaut vopnlausan uppreisnarmann 16. nóvember 2004 00:01
Rannsókn er hafin á því hvernig á því stóð að bandarískur hermaður skaut særðan og vopnlausan írakskan uppreisnarmann í höfuðið í borginni Fallujah. Atvikið náðist á myndband, sem hefur farið sem eldur í sinu um heiminn. Atburðurinn átti sér stað í mosku í suðurhluta Fallujah sem uppreisnarmenn höfðu notað sem bækistöð fyrir árásir á Bandaríkjaher. Svo virðist sem bandarískir hermenn hafi síðasta föstudag brotið sér leið inn í moskvuna og þá féllu tíu íraskir uppreisnarmenn og fimm særðust. Þessir fimm særðu voru afvopnaðir og skildir eftir, að öllum líkindum átti að ná í þá seinna og flytja á sjúkrahús. Það var hins vegar ekki gert og þegar annar hópur bandarískra hermanna kom í moskvuna á laugardag, í fylgd myndatökumanns og fréttamanns frá bandarísku sjónvarpsstöðinni NBC, lágu Írakarnir fimm illa særðir og flestir dauðvona. Á myndbandi sjónvarpsstöðvarinnar sést þar sem einn bandarísku hermannanna stendur yfir einum af föngunum og fullyrðir að hann sé að látast vera dauður. Hann lyftir síðan rifflinum og skýtur fangann í höfuðið. Fréttamaður NBC segir að fanginn hafi hvorki verið vopnaður né ógnandi á nokkurn hátt. Svo virðist sem hermaðurinn sem skaut fangann í moskunni í Fallujah hafi daginn áður, sjálfur orðið fyrir skoti í kinn en verið kominn aftur á vakt. Atvikið er litið mjög alvarlegum augum enda klárt brot á alþjóðalögum og stríðsglæpur, ef satt reynist. Óklippt útgáfa af myndbandinu hefur gengið um Arabaheiminn og vakið enn harðari andstöðu gegn hersetu Bandaríkjamanna í Írak og vakið minningar um pyntingar bandarískra hermanna á íröskum föngum í Abu Ghraib fangelsinu. Bandaríkjaher segist nú hafa náð Fallujah á sitt vald en fréttamenn segja þó enn barist í suðurhluta borgarinnar. Borgin er sögð nánast rústir einar og hjálparsamtök vara við því að þeir borgarbúar sem ekki höfðu tök á því að flýja hafi nú verið bæði vatns- og rafmagnslausir í meira en viku.
Erlent Fréttir Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Fleiri fréttir Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Sjá meira