Abbas kjörinn leiðtogi PLO 11. nóvember 2004 00:01
Mahmoud Abbas var í dag kjörinn leiðtogi Frelsissamtaka Palestínumanna, PLO. Abbas þykir hófsamur og samningalipur en óttast er að hann nái ekki sömu lýðhylli og Arafat og muni ekki hafa stjórn á öfgahópum Palestínumanna. Palestínumenn syrgðu Arafat í dag og þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í 40 daga. Á bak við tjöldin leggja menn hins vegar á ráðin um framtíðina. Embættisskyldum og störfum Arafats var í dag formlega skipt upp á milli nokkurra manna og þar ber hæst að Mahmoud Abbas, öðru nafni Abu Mazen, var kjörinn leiðtogi PLO og verður þar með lögmætur fulltrúi allra Palestínumanna og sér um samningaviðræður þeirra við Ísraelsstjórn. Sveinn Rúnar Hauksson, formaður félagsins Ísland-Palestína, segir að Ísraels- og Bandaríkjastjórn ætti ekki að kvarta yfir skipan Abbas því hann hafi verið óskakostur þeirra sem forsætisráðherra Palestínu á sínum tíma. Að sögn Sveins gjörþekkir Mazen ísraelsku stjórnmálamennina. „Á áttunda áratugnum fól Arafat honum að sjá um leynilegar viðræður við Ísraelsstjórn. Hann hefur oft verið kallaður höfundur friðargjörðarinnar og Óslóarsamkomulagsins,“ segir Sveinn. Það er þó talið harla ólíklegt að Abbasi takist að sameina alla Palestínumenn undir sinni stjórn og sérstaklega er óttast að hið sérstaka samband sem Arafat hafði við herskáar fylkingar rofni og ofbeldið fari úr böndunum. Stjórnarskrá Palestínumanna kveður á um að nú verði að boða til kosninga innan tveggja mánaða en þangað til mun forseti palestínska þingsins, Rauhi Fattouh, gegna forsetaembættinu en forsætisráðherra Palestínumanna, Ahmed Qurei, mun hins vegar taka við flestum daglegum embættisskyldum Arafats.
Erlent Fréttir Mest lesið Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Innlent Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Innlent „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Innlent Epstein-skjölin birt Erlent Pútín sagður hafa valið Witkoff Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Innlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Innlent Fleiri fréttir Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Réðust á skip úr skuggaflotanum þúsundir kílómetra frá Úkraínu Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Beita dómara ICC refsiaðgerðum vegna Ísrael Taka á kvenfyrirlitningu með sérstöku námskeiði fyrir drengi Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Frú Macron í klandri eftir ósmekkleg ummæli um femínista „Dr. Dauði“ í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða tólf Ekki hafi verið rétt að benda á Skandia-manninn sem morðingja Palme Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Segir „evrópsk svín“ vilja hagnast á falli Rússlands Auðgaðist ævintýralega á svikum og prettum Eldur í Tívolí Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Bondi morðinginn formlega ákærður í 59 liðum Trump setur hafnbann á olíuskip á leið til og frá Venesúela Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista Sjá meira