Innlent

Meirihlutinn að springa

Allt útlit er fyrir að meirihlutasamstarf Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði sé að springa. Samkvæmt samstarfssamningi Vinstri grænna og Sjálfstæðisfloksins var það sett sem skilyrði að horfið yrði frá áformum um virkjun við Villinganes. Á sveitarstjórnarfundi á fimmtudaginn var hins vegar samþykkt að virkjunin færi til kynningar. Í kjölfarið héldu Vinstri grænir félagsfund um meirihlutasamstarfið þar sem samþykkt var ályktun þar sem skorað var á sjálfstæðismenn að standa við samkomulagið. Gísli Gunnarsson, sjálfstæðismaður og forseti sveitarstjórnar, segir að einn af þremur sjálfstæðismönnum í sveitarstjórninni hafi borið fram tillöguna um virkjunina og greitt atkvæði með henni á fundinu á fimmtudaginn. Þar með hafi meirihlutinn fallið í málinu. "Útlitið er ekkert alltof bjart, ég viðurkenni það alveg," segir Gísli. Hann segir nánast útilokað að sjálfstæðismaðurinn sem greiddi atkvæði með tillögunni skipti um skoðun og erfitt verði fyrir Vinstri græna að bakka úr þessu. Hann segist ekki vera farinn að hugleiða myndun annars meirihluta því þó staðan sé vonlítil sé hún ekki alveg vonlaus.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×