Taívanar svara fyrir sig 12. ágúst 2004 00:01
Taívanski herinn gæti varið landið fyrir kínverskri innrás í tvær vikur og valdið gríðarlegu manntjóni að sögn taívönsku herstjórnarinnar. Kínverjar eru sannfærðir um að forseti Taívans, Chen Shui-bian, muni nota síðara kjörtímabil sitt til þess að lýsa yfir fullu sjálfstæði landsins. Kínverjar líta á Taívan sem hluta af meginlandinu og hafa margoft lýst því yfir að slíkur gjörningur yrði brotinn á bak aftur með vopnavaldi. Spenna hefur því farið vaxandi í þessum heimshluta síðan Chen var endurkjörinn í mars síðastliðnum. Fyrr í þessari viku birtu dagblöð á Taívan fregnir af því að tölvuhermir hefði spáð því að Kínverjar gætu hertekið Taípei, höfuðborg landsins, á aðeins sex dögum. Taívanska herstjórnin hefur ekki tjáð sig opinberlega um þetta en hins vegar lekið út fréttum um að forritun tölvunnar hafi verið ábótavant. Hún hafi verið forrituð til þess að klára leikinn á sex dögum og hafi ranglega uppfært getu kínverska heraflans í samræmi við það. Taívanar segja að að herinn geti varið landið í að minnsta kosti tvær vikur upp á eigin spýtur og valdið gífurlegu manntjóni hjá Kínverjum. Þá hafi ekki verið tekið inn í dæmið aðstoð frá Bandaríkjunum sem eru skuldbundin til þess að verja sjálfstæði Taívans. Chen Shui-bian, forseti Taívans, sést hér til vinstri ásamt Tony Saca, forseta El Salvador.
Erlent Fréttir Mest lesið „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent „Þetta er innrás“ Innlent Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Innlent Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Erlent Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Innlent Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Innlent Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Innlent Brugðið eftir viðtal við borgarstjóra Innlent Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Erlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent Fleiri fréttir Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Hafa afturkallað yfir 6.000 námsmannaleyfi „Ketamín-drottningin“ játar að hafa selt Perry ketamín Hamasliðar ganga að tillögum um 60 daga vopnahlé Góður fundur en fátt fast í hendi Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Mögulegt að ná fram öryggistryggingum en aðild að NATO úr myndinni Ákærður fyrir fjórar nauðganir Gífurlegur munur á pyngjum flokkanna vestanhafs Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Hægri sveifla í Bólivíu eftir tveggja áratuga stjórnartíð sósíalista Handtekinn í tengslum við morðið við mosku í Örebro Sjá meira