Erlent

Fleiri hryðjuverkamenn handteknir

Lögreglan í Bretlandi handtók í gær þrettánda manninn sem grunaður er um aðild að hryðjuverkasamtökum. Handtakan kom í kjölfar handtökuskipunar frá Bandaríkjunum en maðurinn, Babar Ahmad sem er þrjátíu ára gamall, er grunaður um að hafa stundað fjáröflun fyrir hryðjuverk í Tsjetsjeníu og Afganistan frá 1998 til 2003. Búist er við að Babar verði framseldur til Bandaríkjanna. Breskir lögreglumenn sjást hér standa fyrir utan hús í London í gærkvöldi þar sem Ahmad er talinn hafa haft aðsetur. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×