Erlent

Börn aftur í skólann

Börn í Paraguay fóru aftur í skólann í gær eftir þriggja daga þjóðarsorg í kjölfar þess að um 450 manns fórust í bruna í verslunarmiðstöð um síðustu helgi. Meðal hinna látna voru tæplega fimmtíu börn. Að minnsta kosti tuttugu og fimm foreldrar barna í Alþýðuskólanum í Paraguay létust í brunanum. Fimm manns hafa verið ákærðir vegna málsins, þeirra á meðal meðeigandi verslunarmiðstöðvarinnar sem er sagður hafa skipað fyrir um að dyrum yrði læst eftir að kviknaði í til að koma í veg fyrir þjófnað viðskiptavina. Rannsókn stendur enn yfir á tildrögum brunans en grunur leikur á að gaskútur hafi sprungið í matarverslun í byggingunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×