Erlent

Hætta við nýbyggingar

Yfirvöld í Bangladess hafa hætt við fyrirhugaðar nýbyggingar í landinu en munu þess í stað nota fjármagnið til að laga skemmdir eftir mikil flóð sem hafa geisað þar undanfarið. Flætt hefur yfir tvo þriðju hluta landsins og hafa tæplega sjö hundruð manns farist. Yfir tíu milljónir íbúa eru heimilislausar og hefur Matarhjálp Sameinuðu þjóðanna metið tjónið á því sem nemur 500 milljörðum króna. Skemmdir hafa verið að koma betur í ljós eftir því sem vatnsborð hefur lækkað á flóðasvæðunum síðustu daga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×