Hópnauðganir í Darfur 19. júlí 2004 00:01
Hermenn í Darfur í Súdan nota hópnauðganir sem vopn í baráttu sinni að sögn mannréttindasamtakanna Amnesty International. Talið er að milljón manns hafi flúið heimili sín. Ástandið í Darfur í Súdan fer versnandi og alþjóðasamfélagið hefur engan veginn undan í að aðstoða nauðstadda. Hjálparsamtök gagnrýna alþjóðasamfélagið fyrir aðgerðarleysi en talið er að þúsundir muni deyja úr hungri og sjúkdómum en yfir milljón manns hafa flúið heimili sín og hafast meðal annars við í búðum við landamæri Thads. Hjálparstofnanir eiga erfitt með að nálgast nauðstadda vegna átaka sem geisa á svæðinu og ekki hefur borist nægjanlegt fé til að hægt sé að takast almennilega á við vandann. Friðarviðræður milli stjórnvalda og uppreisnarmanna frá Darfur fóru út um þúfur um helgina og er ekki búist við því að þeir setjist að samningaborðinu aftur nema þeir verði beinlínis neyddir til þess. Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa vakið athygli á því að hermenn noti hópnauðganir í baráttu sinni og hafi stúlkur niður í átta ára og konur upp í áttrætt mátt þola nauðganir og kynferðislegt ofbeldi. Nauðganirnar eru gerðar frammi fyrir ættingjum og heilu ættbálkunum til þess að niðurlægja hópinn. Í flóttamannabúðum eru konur ekki öruggar og hafa stjórnarhermenn tekið þátt í nauðgunum þar. Talið er að nauðganirnar séu liður í þjóðhreinsun stjórnarliða og beinist gegn konum sem ekki eru arabískar. Tugir þúsunda hafa látið lífið í Darfur en stjórnvöld neita því að stjórnarhermenn hafi stundað hópnauðganir á svæðinu
Erlent Fréttir Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Erlent Fleiri fréttir Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjá meira