Enn ein sjálfsmorðsárásin 18. september 2004 00:01
Sjálfsmorðsárás kostaði tuttugu og þrjá lífið fyrir utan höfuðstöðvar írakska þjóðvarðliðsins í borginni Kirkúk í morgun. Fjöldi fórnarlambanna var enn á táningsaldri. Þetta er þriðja mannskæða árásin á öryggissveitir Íraka í vikunni. Árásarmaðurinn ók bíl sínum upp að bakdyrum höfuðstöðva þjóðvarðliðsins í Kirkúk, en þær snúa út í íbúðarhverfi. Í kring stóð hópur fólks sem beið þess að sækja um starf hjá þjóðvarðliðinu, en víða í Írak eru einu störfum sem er að fá hjá þjóðvarðliðinu eða lögreglunni. Árásarmaðurinn sprengdi sig og bílinn í loft upp með þeim afleiðingum að 23 féllu, og 53 særðust. Sumir þeirra eru þungt haldnir. Líkamshlutar, skór og brak liggur á víð og dreif á vettvangi og sjúkraflutningamenn flytja fórnarlömbin, sem sum hver voru enn á táningsaldri, á brott. Þetta er þriðja mannskæða sjálfsmorðsárásin sem gerð er á öryggissveitir Íraka í vikunni. Írakskir hryðjuverkamenn hótuðu í morgun að drepa einn breskan og tvo bandaríska gísla innan tveggja sólarhringa. Mannræningjarnir krefjast þess að öllum kvenföngum í fangelsum í Abu Ghraib og Umm Quasar verði sleppt. Myndbandsupptaka með þremur mönnum, sem sagðir eru tilheyra hópi Abus Musabs al-Zarqawis, var leikin á fréttastöðinni al-Jazeera í morgun, og þar settu þeir fram þessar kröfur sínar. Undanfarið hálft ár hefur meira en hundrað útlendingum frá yfir tíu löndum verið rænt í Írak, og fleiri en þrjátíu hafa verið drepnir.
Erlent Fréttir Mest lesið Synir El Chapo sagðir hafa myndað afdrífaríkt bandalag Erlent Senda farandfólk frá Asíu til Suður-Súdan Erlent Langjökull eigi ekki ýkja mörg ár eftir Innlent „Það er bara dýrt að vera fátækur“ Innlent Burðardýr í flugvél Play „fríkaði út“ Innlent Óbreytt ástand kemur ekki til greina Innlent Fæstir bera nægilega mikið af sólarvörn á sig Innlent Tvær konur sluppu úr brennandi bíl Innlent Fimm keyptu gám sem er ekki til Innlent Agnes Johansen er látin Innlent Fleiri fréttir Senda farandfólk frá Asíu til Suður-Súdan Synir El Chapo sagðir hafa myndað afdrífaríkt bandalag Ætlar að eyða mun minna í pólitíkina Hætta viðræðum við Ísrael og boða aðgerðir Evrópuríki leggja refsiaðgerðir á „skuggaflota“ Rússa Fjarlægja höfundarmerkingu einnar frægustu fréttaljósmyndar sögunnar Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Kanada hóta aðgerðum gegn Ísrael Sagði „Diddy“ hafa hótað að láta hana hverfa Suðureyjargöng náðu ekki í gegnum Lögþingið Borga fyrir skotfæri til Úkraínu með frystum eigum Rússa „Frábært“ símtal en án niðurstöðu Forsætisráðherra Spánar vill Ísrael í bann frá Eurovision Banna „óæskilega“ starfsemi Amnesty International í Rússlandi Stefnir í baráttu á milli frjálslyndis og íhalds í Póllandi Árangur í viðræðum Bretlands við Evrópusambandið Ísraelsk stjórnvöld segjast ætla að hleypa hjálpargögnum á Gasa Spænska ríkissjónvarpið vill að símakosningin verði yfirfarin Nicusor Dan nýr forseti Rúmeníu Trump sorgmæddur yfir greiningu Biden Joe Biden með krabbamein Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Rúmenar ganga aftur að kjörborðinu Leó orðinn páfi Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Sjá meira