Erlent

Bandarískir háskólar bestir

Átta af tíu bestu háskólum heims eru í Bandaríkjunum og besti háskólinn í Evrópu, fyrir utan Bretland, er í 39. sæti yfir bestu háskóla heims samkvæmt nýrri rannsókn. Forkólfar Evrópusambandsins vilja að Evrópa sé leiðandi afl í þekkingariðnaði í heiminum en þeim gengur illa að fá ríksstjórnir í lið með sér.  Bandaríkskir háskólar bera höfuð og herðar yfir aðra háskóla samkvæmt árlegri rannsókn Jiao Tong háskólans í Singapúr á gæðum háskóla víðs vegar um heim. Aðeins tveir skólar utan Bandaríkjanna komast inn á listann yfir 10 bestu háskólana: háskólinn í Oxford og háskólinn í Cambridge. Besti háskólinn í Evrópu utan Bretlands er hins vegar ekki að finna fyrr en í 39. sæti listans og er það háskólinn í Utrecht í Hollandi. Niðurstöðurnar stinga nokkuð í stúf við háleit áform Evrópusambandsins sem sett voru fram á ráðstefnu sambandsins í Lissabon árið 2000 þar sem sett var fram ítarleg áætlun um hvernig Evrópa ætti að verða orðin leiðandi afl í þekkingariðnaði í heiminum á næstu áratugum. Illa hefur hins vegar gengið að fá stjórnvöld einstakra ríkja til að fylgja áætluninni eftir og enn eru fjárútlát til menntunar í flestum Evrópulöndum í kringum 1% af vergri landsframleiðslu. Sama hlutfall er hartnær 3% í Bandaríkjunum og því ekki nema von að gæði skólanna séu þar meiri og laun háskólakennara ríflega helmingi meiri að jafnaði. Í rannsókninni kemur einnig fram að 400 þúsund efnilegir námsmenn frá Evrópu stunda rannsóknir í Bandaríkjunum og þrír af hverjum fjórum þeirra hafa engin áform um að snúa aftur heim. Þessari þróun hafa forkólfar Evrópusambandsins miklar áhyggjur af og vonast til þess að Bandaríkjamenn sjálfir færi þeim tækifærið til að snúa henni við á silfurfati, með þeim gríðarlega ströngu skilyrðum sem sett hafa verið fyrir vegabréfsáritunum erlendra nema í landinu eftir 11. september árið 2001. Síðan þá hefur erlendum nemendum í Bandaríkjunum fækkað verulega og að sama skapi fjölgað í Evrópu. Þannig hefur til að mynda nemendum frá Kína fjölgað um 60% í háskólum í Bretlandi undanfarin sjö ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×