Dóu vegna getnaðarvarnarplástra 20. september 2004 00:01
Talið er að rekja megi dauða sautján kvenna í Bandaríkjunum til notkunar á getnaðarvarnarplástrum. Slíkir plástrar eru seldir hérlendis en landlæknir telur, að svo stöddu, ekki ástæðu til að innkalla þá. Svokallaðir getnaðarvarnarplástrar hafa verið að ryðja sér til rúms undanfarin misseri en þeim er smellt á upphandlegg líkt og reykingaplástrum og þykja handhæg getnaðarvörn. Þessir plástrar voru settir á markaðinn í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum og sama tegund er seld í apótekum hérlendis. Plástrarnir dæla hormónum beint inn í blóðið en nú hefur komið í ljós að notkun þeirra eykur líkurnar á blóðtappa og hjartastoppi. Bandaríska lyfjaeftirlitið er með málið til athugunar en telur að allt að sautján bandarískar konur á aldrinum sautján til þrjátíu ára sem notað hafa plástrana hafi látist vegna þessa. Læknar eru ekki á einu máli um hvort ástæða sé til að hafa af þessu verulegar áhyggjur þar sem sumir segja að áhættan sé svipuð og af getnaðarvarnarpillunni. Sigurður Guðmundsson landlæknir segist taka þessum tíðindum alvarlega en formleg tilkynning um málið hafi ekki borist heilbrigðisyfirvöldum hér á landi. Það er vel þekkt að notkun getnaðarvarnarlyfja, hvort sem er í töfluformi eða plástursformi, getur aukið líkur á blóðtappa- eða blóðsegamyndun í bláæðum og slagæðum. Aftur á móti dregur notkun getnaðarvarna úr tíðni blóðtappamyndunar hjá ungum konum á heildina litið, að sögn Sigurður, því þungun sem slík er líka áhættuþáttur. Nú er landlæknisembættið hins vegar að afla sér nánari upplýsinga um mál kvennanna sautján í Bandaríkjunum, áður en nokkuð verði aðhafst. Hægt er að hlusta á viðtal við landlækni með því að smella á hlekkinn hér að neðan.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Innlent Einn þeirra handteknu sautján ára Innlent Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Fleiri fréttir Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Sjá meira