Erlent

Nikkei hækkar vegna kosninga

Japanska hlutabréfavísitalan, Nikkei, hækkar í dag um 1,39 prósent, eftir að ljóst varð að samsteypustjórn Koizumis forsætisráðherra héldi meirihluta í efri deild japanska þingsins. Endanleg úrslit í kosningunum hafa ekki verið birt en samkvæmt spám tapar flokkur Koizumis fylgi og hlýtur 49 af 121 þingsæti í efri deildinni. Helsti stjórnarandstöðuflokkurinn, Demókrataflokkurinn, vinnur mikinn sigur, fer úr 38 þingsætum í 50, en nær þó ekki að fella ríkisstjórnina. Demókratar hafa gagnrýnt lífeyrisstefnu stjórnvalda og þátttöku Japana í Írak og er litið á aukið fylgi þeirra sem áfellisdóm kjósenda á þessum sviðum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×