Erlent

Komist hjá verkfalli í Frakklandi

Verkamenn hjá bílahlutaverksmiðjunni Robert Bosch, í Frakklandi, hafa samþykkt í atkvæðagreiðslu að vinna lengri vinnuviku, án viðbótarlauna, til þess að reyna að forða uppsögnum. Bosch verksmiðjurnar eru þýskar, en með útibú í Frakklandi. Starfsmenn hennar eru fyrsti hópur verkamanna, sem greiðir atkvæði um að fella úr gildi 35 klukkustunda vinnuvikuna, sem gildir í Frakklandi. Verkalýðshreyfingunni er ekki skemmt, en framleiðendur vilja fella 35 tíma vinnuregluna úr gildi, til þess að auka framleiðni í frönskum iðnaði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×