Erlent

Sagður linur gegn spillingu

Andstæðingar Hamids Karzaí, forseta Afganistans, leggja nú allt kapp á að hann nái ekki hreinum meirihluta í forsetakosningunum, sem haldnar verða 20. ágúst. Takist það þarf að halda aðra umferð, þar sem tveir efstu frambjóðendurnir verða í kjöri.

Erlent

Netnotendum í Kína fjölgar ört

Netnotendur í Kína eru nú orðnir fleiri en allir Bandaríkjamenn. Í lok júní voru þeir orðnir 338 milljónir talsins, og hafði þeim þá fjölgað um 13,4 prósent á milli ára.

Erlent

Fimm manns í ferðabann

Fimm einstaklingar og fimm fyrirtæki verða sett í ferðabann og eignir þeirra erlendis verða frystar, samkvæmt ákvörðun nefndar Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um að leggja nýjar refsiaðgerðir á Norður-Kóreu. Einnig verður bannað að útvega Norður-Kóreumönnum tvær tegundir efna, sem notuð eru við framleiðslu sprengiflauga

Erlent

Kveikt í húsi vegna ummæla

Rita Bahuguna Joshi, einn af hæstráðendum í Con-gress-flokknum í Indlandi, var handtekin í gær. Einnig var kveikt í húsinu hennar. Ástæðan er sú að hún hvatti til þess að uppreisnarleiðtoga yrði nauðgað svo hann gæti betur skilið sársauka nauðgunarfórnarlamba.

Erlent

29 látnir úr svínaflensu á Bretlandi

Nú hafa 29 manns látist af völdum svínaflensu á Bretlandseyjum samkvæmt breskum yfirvöldum. Að sögn yfirvalda fjölgar sjúklingum sem kvarta undan einkennum veirunnar. Nú síðast lést kvenkyns ferðamaður á spítala í Skotlandi. Konan hafði mikla undirliggjandi kvilla en hún lést í gær.

Erlent

Þúsund lögreglumenn drepnir í Mexíkó

Síðan Felipe Calderon forseti Mexíkós hóf baráttu gegn eiturlyfjahringum árið 2006 hafa yfir ellefu þúsund manns fallið í valinn. Af þeim eru yfir eittþúsund lögreglumenn.

Erlent

Cherie Blair með svínaflensu

Cherie Blair, eiginkona Tony Blair fyrrum forsætisráðherra Breta, er hugsanlega með svínaflensu, eftir því sem breska götublaðið The Sun greinir frá. Af þeim sökum hefur hún þurft að afboða komu sína á ýmsar opinberar uppákomur.

Erlent

Fólk fætt fyrir 1918 ónæmt fyrir flensunni?

Hugsanlegt er að eingöngu þeir, sem fæddir eru fyrir 1918, séu ónæmir fyrir svínaflensunni. Þar er um að ræða þá sem voru uppi þegar spænska veikin svokallaða fór um heimsbyggðina en hún var einnig inflúensa.

Erlent

Flugritarnir fundnir

Flugritar Tupolev-farþegaþotunnar sem fórst í Íran í gærmorgun eru fundnir. Þeir eru nokkuð skaddaðir en vonir standa til þess að hægt verði að ná úr þeim upplýsingum sem varpa ljósi á tildrög slyssins.

Erlent

Skiptinemar í vondum málum

Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur fyrirskipað að rannsakað verði hvað olli því að fimm skiptinemar, sem komu til landsins í fyrra, enduðu á heimilum hjá fólki sem var engan veginn í stakk búið til að annast þá.

Erlent

Skotinn til bana við Capitol Hill

Lögregla í Washington skaut mann til bana utan við þinghúsið eftir snarpan skotbardaga í gærkvöldi. Tveir lögreglumenn særðust í bardaganum en ekki er talið að atvikið hafi haft neitt með þinghúsið að gera.

Erlent

Endeavour loks í loftið

Geimskutlan Endeavour tókst á loft frá Kennedy-geimferðamiðstöðinni í Flórída í gær eftir að skotinu hafði verið frestað dögum saman vegna veðurs.

Erlent

Telur rétt að viðurkenna Palestínuríki

Javier Solana, utanríkis­málafulltrúi Evrópusambandsins, segir að Sameinuðu þjóðirnar ættu að gefa út einhliða viðurkenningu á sjálfstæðu ríki Palestínumanna á Vesturbakkanum og Gasa, ef samningaviðræður Ísraela og Palestínumanna renna út í sandinn eina ferðina enn.

Erlent

Rússnesk baráttukona myrt

Natalia Estemirova, rúmlega fertug baráttukona fyrir mannréttindum, fannst í gær myrt í Ingúsetíu skammt frá landamærum Téténíu.

Erlent

Lætur eftir sig unga tvíbura

Spænsk kona, Maria del Carmen Bousada, sem árið 2006 varð elst kvenna til að eignast börn, er látin. Hún varð 69 ára gömul, en tvíburarnir sem hún fæddi eru tveggja ára.

Erlent

Hermenn lýsa eigin framferði

Á þriðja tug ísraelskra hermanna, sem tóku þátt í árásunum á Gasasvæðið um síðustu áramót, viðurkenna að ísraelski herinn hafi beitt óþarfa afli og kraftmiklum vopnum sem urðu fleiri almennum borgurum að bana en ella hefði orðið.

Erlent

Engin svör um fóstureyðingar

Repúblikanar í öldungadeild Bandaríkjanna hafa ítrekað reynt að fá Soniu Soto­mayor til að svara spurningum um afstöðu hennar til fóstureyðinga. Hún vill þó engu svara því að þau dæmi sem nefnd hafa verið gætu komið til kasta hennar síðar í hæstarétti.

Erlent