Leicester fann aftur 2015-16 gírinn og lék sér að Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. febrúar 2017 21:45 Jamie Vardy fagnar seinnamarki sínu. Vísir/Getty
Leicester City átti ekki í miklum vandræðum með að vinna 3-1 sigur á Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í kvöld í fyrsta leik liðsins eftir að ítalski stjórinn Claudio Ranieri var rekinn frá félaginu. Þetta er fyrsti deildarsigur Leicester á árinu 2017 en liðið tapaði fimm síðustu deildarleikjum sínum undir stjórn Ranieri. Með þessum sigri komust Englandsmeistararnir upp úr fallsæti. Craig Shakespeare tók við liðinu af Ranieri, stillti upp í 4-4-2 leikerfinu og Leicester City fann aftur 2015-16 gírinn sinn. Það var nánast frá fyrstu mínútu í hvað stefndi enda leikmenn leicester miklu grimmari í öllum aðgerðum sínum. Liverpool var ekki búið að spila í sextán daga en leit allt eins út fyrir að hafa ekki spilað í sextán vikur. Úrslitin eru gríðarleg vonbrigði fyrir Liverpool sem hefði komist upp í þriðja sætið með sigri. Jamie Vardy skoraði tvö markanna en þegar hann skoraði fyrsta mark Leicester í leiknum var Leicester ekki búið að skora í 638 mínútur á árinu 2017. Jamie Vardy var búinn að vera nálægt því að skora þegar hann kom Leicester í 1-0 á 28. mínútu eftir frábæra stungusendingu frá Marc Albrighton. Daniel Drinkwater bætti við frábæru marki ellefu mínútum síðar þegar hann tók boltann viðstöðulaust á lofti fyrir utan teig og skoraði með frábæru skoti. Jamie Vardy gerði síðan út um leikinn þegar hann skallaði inn fyrirgjöf Christian Fuchs á 60. mínútu og kom Leicester í 3-0. Philippe Coutinho minnkaði muninn í 3-1 átta mínútum síðar með laglegri afgreiðlu eftir að hafa fengið boltann frá Emre Can. Það besta við markið var að Coutinho fann loksins aftur markaskóna eftir að hafa verið án marks í ellefu leikjum í röð. Liverpool leit aðeins betur út eftir markið en tókst ekki að minnka muninn enn frekar og setja smá spennu í lokin.
Enski boltinn Mest lesið Leik U21 liðs Man United hætt vegna meiðsla leikmanns Enski boltinn Viktor Gísli fær treyju númer eitt hjá Barcelona Handbolti Labbaði í fjórtán tíma á keppnisstað og vann síðan 63 km ofurhlaup Sport UFC-bardagi í Hvíta húsinu á þjóðhátíðardaginn Sport Fókus á bolta ekki bullur: „Á ekki að sjást í kringum fótboltaleiki“ Fótbolti Guðmundur í grænt Íslenski boltinn Njarðvík með fjögurra stiga forskot á toppnum Íslenski boltinn Willum lagði upp sigurmark Birmingham Enski boltinn Calvert-Lewin á leið til Leeds Enski boltinn Dagskráin í dag: Blikar berjast í Evrópu, N1-mótið og upphitun fyrir enska Sport Fleiri fréttir Enska augnablikið: AGUERO!! Leik U21 liðs Man United hætt vegna meiðsla leikmanns Calvert-Lewin á leið til Leeds Willum lagði upp sigurmark Birmingham Jason Daði og félagar fá Rauðu djöflana í heimsókn Enska augnablikið: Hugsaði til van Persie eftir frægt mark í Eyjum Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Grealish valdi númerið sitt vegna Rooney og Gascoigne „Fáránleg staða sem er komin upp“ Stuðningsmenn Chelsea bjartsýnastir en mjög svartsýnir hjá Newcastle Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Vildi hvergi annarsstaðar spila Dýrasti leikmaður í sögu City lánaður til Everton Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Coote dæmdur í átta vikna bann fyrir ummælin um Klopp Enska augnablikið: Sá allra svalasti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Bale af golfvellinum og á skjáinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Donnarumma skilinn eftir heima Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Sjá meira