Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Ashley Young kvaddi fótboltaferil sinn formlega á samfélagsmiðlum í gær. Þessi fertugi fyrrum leikmaður lauk honum með því að fara upp um deild. Enski boltinn 14.5.2026 15:01
Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Hollenski þjálfarinn Arne Slot segist ekki halda annað en að hann haldi starfi sínu hjá Englandsmeisturum Liverpool. Liðinu hefur gengið illa á leiktíðinni. Enski boltinn 14.5.2026 13:30
Benóný stýrði fögnuðinum Benóný Breki Andrésson stýrði fögnuði stuðningsmanna Stockport eftir sigur á Stevenage í undanúrslitum umspils í ensku C-deildinni í gær. Stockport er aðeins einum sigri frá sæti í B-deild. Enski boltinn 14.5.2026 10:02
Brást illa við spurningu um svindl og sleit fundinum: „Sýndu smá virðingu“ „Ertu svindlari?“ var spurning sem Tonda Eckert, stjóri Southampton fékk á blaðamannafundi eftir að lið hans tryggði sér farmiða í úrslitaleik um sæti í ensku úrvalsdeildinni. Lið hans er sakað um njósnir á æfingum andstæðings síns. Enski boltinn 13. maí 2026 13:47
Munu mæla með því við Ratcliffe að ráða Carrick Forystumenn innan Manchester United munu mæla með því við einn af eigendum félagsins Sir Jim Ratcliffe að Michael Carrick verði ráðinn knattspyrnustjóri Manchester United til frambúðar. Enski boltinn 13. maí 2026 10:25
Heyrðu samskipti dómara í stærsta atviki tímabilsins Búið er að birta myndband með samskiptum dómara í gríðarstóru atviki sem átti sér stað í leik West Ham og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni um nýliðna helgi og gæti skorið úr um topp- og fallbaráttu deildarinnar. Enski boltinn 13. maí 2026 07:32
Dagskráin í dag: Allt undir hjá City og Benóný í umspili Enski fótboltinn rúllar á rásum Sýnar Sport þennan miðvikudaginn. Mikilvægir leikir eru í ensku úrvalsdeildinni og ensku C-deildinni. Enski boltinn 13. maí 2026 06:01
Southampton einum sigri frá ensku úrvalsdeildinni Southampton mun mæta Hull City í úrslitaleik um sæti í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á næstu leiktíð. Liðið vann 2-1 heimasigur á Middlesbrough til að koma sér á Wembley. Enski boltinn 12. maí 2026 21:44
White spilar ekki meira með Arsenal á tímabilinu Ben White mun missa af síðustu leikjum tímabilsins með Arsenal og er í kapphlaupi við tímann fyrir HM með enska landsliðinu. Enski boltinn 12. maí 2026 15:07
De Zerbi ósáttur við dómarana: „Kannski fundu þeir fyrir pressu út af Arsenal leiknum“ Roberto De Zerbi, þjálfari Tottenham, segir dómarateymið hafa verið „órólegt“ í 1-1 jafntefli liðsins gegn Leeds. Risastór dómur féll ekki undir lokin og kostaði Tottenham líklega sigurinn. Enski boltinn 12. maí 2026 10:02
Sjáðu mörkin og magnaðar vörslur hjá Kinský Tottenham er enn í mikilli fallhættu eftir 1-1 jafntefli við Leeds United í ensku úrvalsdeildinni í gær. Liðið er ósigrað í síðustu fjórum leikjum en er bara tveimur stigum frá fallsæti þegar tvær umferðir eru eftir. Enski boltinn 12. maí 2026 08:31
„Aðeins þeim sem vilja ekki að Arsenal verði meistari fannst þetta ekki vera brot“ Jamie Carragher segir engan vafa á því að brotið hafi verið á David Raya, markverði Arsenal, í markinu sem var dæmt af West Ham United í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Enski boltinn 12. maí 2026 08:00
Messan um stóra dóminn: „Þetta er bara rétt“ Markið sem var dæmt af West Ham United í leiknum gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni var að sjálfsögðu til umræðu í Sunnudagsmessunni. Að mati sérfræðinga hennar komst dómari leiksins að réttri niðurstöðu. Enski boltinn 12. maí 2026 07:02
Tígrarnir einum sigri frá ensku úrvalsdeildinni Hull City er komið í úrslit umspilsins um sæti í ensku úrvalsdeildinni eftir 0-2 sigur á Millwall á The Den í kvöld. Enski boltinn 11. maí 2026 21:41
Calvert-Lewin jafnaði og falldraugurinn enn á sveimi hjá Spurs Tottenham og Leeds United gerðu 1-1 jafntefli í lokaleik 36. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Spurs er nú tveimur stigum frá fallsæti þegar tveimur umferðum er ólokið. Enski boltinn 11. maí 2026 21:05
Úr fótboltalandsliðinu í krikketlandsliðið Fyrrum landsliðsmarkvörður enska landsliðsins í fótbolta er nú kominn í enska krikketlandsliðið. Enski boltinn 11. maí 2026 16:17
Í fámennan hóp markvarða Spánverjinn David Raya tryggði sér í gær gullhanskann í ensku úrvalsdeildinni er hann hélt hreinu í sigri Arsenal á West Ham. Hann hefur haldið hreinu 18 sinnum í vetur. Enski boltinn 11. maí 2026 15:30
Reisa minnisvarða fyrir Jota og Silva Enska fótboltafélagið Liverpool hefur birt myndir af minnisvarða sem það hyggst reisa í grennd við heimavöll þess Anfield. Heiðra á minningu bræðranna Diogo Jota og André Silva sem létust í bílslysi í júlí síðastliðnum. Enski boltinn 11. maí 2026 14:02
Skoraði tveimur dögum eftir jarðarför móður sinnar Miðjumaður Nott. Forest, Elliot Anderson, hefur gengið í gegnum mikið síðustu vikur. Enski boltinn 11. maí 2026 13:17
„Arsenal væri aldrei á toppnum ef þetta er brot“ Daninn Peter Schmeichel, fyrrverandi markvörður Manchester United, er ekki hrifinn af því að jöfnunarmark West Ham undir lok leiks við Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær, hafi verið dæmt af. Enski boltinn 11. maí 2026 11:46
West Ham kvartar til dómaranefndar Forráðamenn West Ham munu hafa samband við dómaranefnd ensku deildanna í ljósi jöfnunarmarks liðsins sem dæmt var af undir lok 1-0 taps fyrir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær. Markið gæti haft mikið að segja um bæði titilbaráttuna sem og vonir West Ham um að halda sæti liðsins í deildinni. Enski boltinn 11. maí 2026 10:15
Sjáðu risaatvikið í lokin, vörslu Raya og mark Trossards Ákvörðunin um að dæma mark af West Ham í uppbótartíma gegn Arsenal í gær gæti haft gríðarleg áhrif á það hvaða lið verður Englandsmeistari í fótbolta og hvaða lið fylgir Burnley og Wolves niður í B-deild. Enski boltinn 11. maí 2026 07:33
„Slot og allir leikmennirnir að bíða eftir að tímabilið sé búið“ „Það á allur hópurinn mikið inni,“ sagði Aron Jóhannsson þegar þau Adda Baldursdóttir ræddu um Liverpool og stjórann Arne Slot í Sunnudagsmessunni á Sýn Sport. Enski boltinn 10. maí 2026 23:29
„Mikið kaos en ekki spurning að þarna var brot“ „Ég á aldrei eftir að gleyma þessum degi og þessari tölu,“ sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, eftir 1-0 sigurinn gegn West Ham í dag sem færði liðið afar nálægt langþráðum Englandsmeistaratitli. Enski boltinn 10. maí 2026 19:15