Spænski boltinn

Fréttamynd

Titillinn blasir við Börsungum

Í miðju, erfiðu einvígi sínu við Atlético Madrid í Meistaradeild Evrópu vann Barcelona 4-1 sigur í grannaslagnum við Espanyol í dag, í spænsku 1. deildinni í fótbolta.

Fótbolti
Fréttamynd

Blóðugur Mbappé fékk ekkert fyrir sinn snúð

Real Madrid gerði 1-1 jafntefli við Girona í 31. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar og spænska stórliðið hefur nú leikið þrjá leiki í röð án sigurs. Kylian Mbappé fékk olnbogaskot í andlitið en enga vítaspyrnu. 

Fótbolti
Fréttamynd

Aukaspyrnur í al­gleymingi í sigri Atlético

Atlético Madrid sótti 0-2 sigur gegn tíu leikmönnum Barcelona í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Julian Alvarez skoraði beint úr aukaspyrnu og Alexander Sorloth tvöfaldaði forystuna í seinni hálfleik.

Fótbolti
Fréttamynd

Börsungar nýttu sér ó­vænt tap Real Madrid

Staða Barcelona á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta er orðin afar góð eftir leiki dagsins í deildinni. Börsungar unnu dramatískan sigur á Atletico Madrid og nýttu sér þar með óvænt tap Real Madrid fyrr í dag til hins ítrasta.

Fótbolti
Fréttamynd

Barcelona vill kaupa hetju Kósovó

Kósovó steig stórt skref í átt að þátttöku á HM í sumar með 3-4 sigri gegn Slóvakíu. Framherjinn Fisnik Asllani átti stóran þátt í sigrinum og Barcelona vill kaupa kappann.

Fótbolti
Fréttamynd

Á­fall fyrir Barcelona

Barcelona verður án Brasilíumannsins Raphinha í komandi leikjum gegn Atlético Madrid í Meistaradeildinni eftir að framherjinn verður frá í fimm vikur vegna tognunar aftan í læri.

Fótbolti
Fréttamynd

Elsti sonur Ron­aldo æfir með Real Madrid

Elsti sonur portúgölsku stórstjörnunnar Cristiano Ronaldo, Ronaldo Jr., æfir þessa dagana í akademíu spænska stórveldisins Real Madrid og gæti gengið til liðs við félagið þar sem faðir hans er goðsögn. 

Fótbolti
Fréttamynd

„Önnur sönnun fyrir hæfi­leikum hans, hug­rekki og karakter“

Alvaro Arbeloa, þjálfari Real Madrid, er á því að brasilíski framherjinn Vinícius Júnior sé „ekki langt frá“ sínu besta formi á ferlinum eftir að framherjinn skoraði tvö mörk – þar á meðal stórkostlegt sigurmark – í 3-2 sigri Real Madrid á Atlético Madrid í spænsku deildinni á sunnudagskvöldið.

Fótbolti
Fréttamynd

„Mjög dapur í langan tíma“

Enski landsliðsmiðjumaðurinn Jude Bellingham viðurkenndi að hann hefði verið „mjög dapur í langan tíma“ á meðan hann vann að því að jafna sig af meiðslum aftan í læri. Bellingham átti endurkomu í lið Real Madrid í 3-2 sigri liðsins á Atlético Madrid í spænsku deildinni í gær.

Fótbolti
Fréttamynd

Griezmann að flytja til Flórída

Antoine Griezmann er að ganga frá félagaskiptum til Orlando City í MLS deildinni í Bandaríkjunum en hann fer til félagsins í sumar frá Atlético Madrid á Spáni.

Fótbolti
Fréttamynd

„Dyrnar eru alltaf opnar fyrir Messi“

Joan Laporta var endurkjörinn forseti Barcelona með yfirburðum á sunnudagskvöldið og hann sagði sigurreifur eftir kjörið að dyrnar væru alltaf opnar fyrir Lionel Messi til að snúa aftur til Barcelona.

Fótbolti