Rangárþing ytra

Rangárþing ytra

Mannfjöldi: 1.941 (2025). Flatarmál: 3.194 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Hella, Rauðalækur, Þykkvibær, Holta- og Landsveit, Djúpárhreppur, Rangárvallahreppur.


Fréttamynd

Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel

Stracta-hótelin á Hellu eru til sölu, ásamt þremur veitingastöðum og þvottahúsi sem tilheyra rekstrinum. Hótelin heita Stracta Hótel og Stracta Hótel Mosfell en rekstur þeirra nær aftur til ársins 2014 en til stendur að láta hluta söluágóðans renna til góðra málefna.

Viðskipti innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Skelfur við Land­manna­laugar

Skjálfti 2,9 að stærð varð norðarlega í Torfajökulsösku, skammt frá Landmannalaugum, klukkan 16:57. Í kjölfarið hafa fylgt örfáir eftirskjálftar.

Innlent
Fréttamynd

Svona gekk að flytja vindmyllurnar

Fyrstu flutningar á risastórum vindmyllum í nótt um þjóðvegi Suðurlands gengu framar vonum og tók það flutningalestina um fimm klukkustundir að aka farminum frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga.

Innlent
Fréttamynd

Fyrsta vindmyllulestin um Suður­land í nótt

Einhverjir viðamestu þungaflutningar í sögu íslenska vegakerfisins hefjast í kvöld þegar risastórir vindmylluhlutar verða fluttir frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. Kristján Már Unnarsson fréttamaður var í beinni frá Þorlákshöfn í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert nota­legt“

„Þetta var nú ekkert mál,“ er það fyrsta sem Gunnar Guðjónsson sagði við blaðamann en í torfærukeppni í gær hafnaði Gunnar á hvolfi ofan í á. Hann var í tæpar tuttugu sekúndur að koma sér upp úr vatninu en segir allt hafa litið mun verr út en það var í raun.

Innlent
Fréttamynd

Fyrstu ís­lensku GPS-heiðlóurnar komnar heim

Síðasta sumar voru í fyrsta sinn GPS-senditæki með sólarsellum sett á íslenskar heiðlóur. Alls voru tíu fuglar merktir og af þeim komust níu á vetrarstöðvar en nú eru tveir þeirra flognir aftur til landsins og búnir að koma sér fyrir í Landsveit í Rangárvallasýslu. Önnur lóan flaug í um sextán klukkustundir yfir Atlantshafið og hin flaug sleitulaust í um sólarhring.

Innlent
Fréttamynd

Ár­nesingur og Rang­æingur grafa fyrir Hvammsvirkjun

Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar.

Innlent
Fréttamynd

Þungaflutningarnir með þeim mestu á Ís­landi

Einhverjir mestu þungaflutningar sem sést hafa á íslenska vegakerfinu fara fram á Suðurlandi fyrri hluta sumars þegar risastórar vindmyllur verða fluttar frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga.

Innlent
Fréttamynd

Skemmdir í Marteinstungukirkju vegna heits vatns

Töluverðar skemmdir urðu á Marteinstungukirkju í Holta- og Landsveit í Rangárþingi ytra eftir að heitavatnslögn inni í kirkjunni sprakk og vatn flæddi út um allt. Kirkjan er friðlýst timburkirkja, byggð árið 1896.

Innlent
Fréttamynd

Leituðu skjóls í Hreysinu

Björgunarsveitarmenn komu í gær tveimur skíðagöngumönnum til bjargar sem höfðu leitað sér skjóls í gömlu neyðarskýli við Hreysiskvísl, töluvert norðan Þórisvatns á Sprengisandsleið.

Innlent
Fréttamynd

Menntaverðlaun Suður­lands fóru á Hellu

Íslenskukennsla Grunnskólans á Hellu er handhafi Menntaverðlauna Suðurlands, sem forseti Íslands afhenti. Þá fengu tvær konur myndarlegan peningastyrk úr Vísinda- og rannsóknasjóði Suðurlands við sama tækifæri, sem forsetinn afhenti líka.

Innlent
Fréttamynd

„Síminn stoppar ekki“

Yfir þrjátíu manns sem dvöldu á vistheimilinu Bakkakoti hafa leitað til lögmanns, sem segir símann ekki stoppa. Þá hafi fleiri leitað til hans sem dvalið hafi á öðrum vistheimilum en Bakkakoti í barnæsku.

Innlent
Fréttamynd

Taka á móti fyrstu drengjunum í með­ferð í lok febrúar

Áætluð verklok á meðferðarheimilinu Lækjarbakka í Gunnarsholti á Rangárvöllum eru um næstu mánaðamót, janúar/febrúar, og er gert ráð fyrir að húsið verði afhent Barna- og fjölskyldustofu á þeim tíma. Stefnt er að því að taka á móti fyrsta skjólstæðingi í lok febrúar 2026. Pláss er fyrir sex drengi og kynsegin á meðferðarheimilinu. 

Innlent