Árborg

Árborg

Mannfjöldi: 12.064 (2025). Flatarmál: 157 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Selfoss, Stokkseyri, Eyrarbakki, Tjarnabyggð.


Fréttamynd

Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugg­lega dregin yfir ána

Þessa dagana er unnið að einum mikilvægasta áfanganum við gerð nýrrar Ölfusárbrúar: Að draga brúna hægt en örugglega frá eystri bakkanum og yfir á þann vestari. Áætlað er að þetta muni taka átta til tíu daga en brúin er dregin fimmtíu sentímetra í einu yfir ána, 330 metra vegalengd.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Lítill hluti af milljörðunum þrjá­tíu sem fari í fanga­klefa

Sérfræðingur í dómsmálaráðuneytinu segir kostnað við byggingu nýs fangelsis hafa aukist til muna eftir að framkvæmd var þarfagreining. Einungis lítill hluti upphæðarinnar fari í fangaklefana og þess í stað sé umgjörðin sem kosti bróðurhluta af þrjátíu milljörðunum sem verja á í fangelsið.

Innlent
Fréttamynd

„Ég átti aldrei að lifa þetta af“

Haukur Grønli slökkviliðsmaður hefur stofnað stuðningshóp fyrir fólk sem hefur lent í heilablóðfalli. Fyrsti fundurinn er á morgun. Sjálfur er Haukur að jafna sig eftir slíkt áfall í október 2024. Hann segir að eftir áfallið sé hann eins og Dóra í Nemó og að hann hafi upplifað mikla auðmýkt eftir veikindin. 

Innlent
Fréttamynd

Brekkusöngur á jafn­sléttu há­punkturinn

Töluverður fjöldi fólks hefur gert sér ferð á Selfoss þar sem bæjarhátíðin Sumar á Selfossi fer nú fram. Íbúar hafa lagt mikinn metnað í skreytingar í húsagötum en í kvöld fer fram brekkusöngur á jafnsléttu og alvöru sveitaball.

Lífið
Fréttamynd

Stærsta umferðarhelgi ársins hafin

Fyrstu vísbendinguna um að verslunarmannahelgin sé að renna í garð má finna rétt fyrir utan Selfoss. Löng bílaröð hefur myndast en gera má ráð fyrir að einhverjir farþeganna séu á leið til Vestmannaeyja.

Innlent
Fréttamynd

„Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“

Guðrún Svava Egilsdóttir, betur þekkt sem Gugga í Gúmmíbát, lét veðrið um þarsíðustu helgi ekki stoppa sig og mætti galvösk með míkrafóninn á lofti á hina árlegu Kótelettu á Selfossi. Þar var margt um manninn og lét hún spurningarnar dynja á fólki og sætti sig ekki við nein undanbrögð.

Lífið
Fréttamynd

Grobba sig af stolnum trjám

Trjáþjófnaður er landlægt vandamál að mati formanns Skógræktarfélags Selfoss en trjám var stolið úr Hellisskógi á Selfossi um helgina. Honum svíður að fólk steli trjám úr skógum sem sjálfboðaliðar hafi unnið hörðum höndum að því að byggja upp.

Innlent