Árborg

Fréttamynd

Menntaverðlaun Suður­lands fóru á Hellu

Íslenskukennsla Grunnskólans á Hellu er handhafi Menntaverðlauna Suðurlands, sem forseti Íslands afhenti. Þá fengu tvær konur myndarlegan peningastyrk úr Vísinda- og rannsóknasjóði Suðurlands við sama tækifæri, sem forsetinn afhenti líka.

Innlent
Fréttamynd

Vel heppnaðir Stjörnuleikar á Sel­fossi

Stjörnuleikar fóru fram á Selfossi um helgina, sem var íþróttaskemmtun fyrir börn með sér og stuðningsþarfir. Leikarnir tókust einstaklega vel en þeir fóru fram í íþróttahúsi Vallaskóla.

Sport
Fréttamynd

Seldu upp og undir­rituðu samning til 666 ára

Rokkhátíðin Hellfoss fór fram í fyrsta skipti í miðbæ Selfoss, tónleikagestir komu víða að og seldist upp á hátíðina. Í tilefni af vel heppnaðri hátíð undirrituðu Davíð Lúther, eigandi Sviðsins, og Rúnar Hroði, stofnandi Hellfoss, samning til 666 ára um að hátíðin verði áfram haldin í miðbæ Selfoss. 

Menning
Fréttamynd

Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd

Framkvæmdir við nýja Ölfusárbrú eru í fullum gangi og hún farin að taka á sig mynd. Nýja brúin liggur austar en sú gamla sem liggur inn á Selfoss og er ætlunin að færa umferðina fjær þéttbýlinu. Gert er ráð fyrir að brúin verði til haustið 2028.

Innlent
Fréttamynd

Mótor­hjól eru bönnuð í Græn­landi

Íbúi á Eyrarbakka, sem hefur heimsótt Grænland nokkrum sinnum hvetur Íslendinga til að heimsækja landið því fólkið þar sé svo blítt, gestrisið og stolt af landi sínu. Mótorhjól eru hins vegar alveg bönnuð í Grænlandi.

Lífið
Fréttamynd

Þrír gerðir að heiðurs­fé­lögum Sleipnis á Sel­fossi

Aðalfundur Hestamannafélagsins Sleipnis og Sleipnishallarinnar ehf. á Selfossi var haldinn í vikunni. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa undirrituðu Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar og Berglind Sveinsdóttir, formaður Sleipnis, nýjan fimm ára þjónustusamning milli Árborgar og félagsins. Samningurinn markar mikilvægt skref í áframhaldandi og öflugu samstarfi aðila.

Innlent
Fréttamynd

Risa fram­kvæmd við Heil­brigðis­stofnun Suður­lands á Sel­fossi

„Þessi stækkun mun gjörbreyta aðstæðum hjá okkur. Húsnæðisþörfin hefur lengi verið aðkallandi þar sem starfsemin hefur vaxið hratt og er orðin mjög aðþrengd. Þá er endurnýjunarþörf uppsöfnuð og vegna aldurs húsnæðisins uppfyllir skipulag og hönnun þess ekki lengur nútímakröfur um öryggi og gæði. Næstu skref eru að fara í útboð á fyrsta áfanga framkvæmda og síðan heldur þetta áfram koll af kolli,“ segir Díana Óskarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands aðspurð um viðbrögð vegna nýrrar 5.200 fermetra viðbyggingar við húsnæði stofnunarinnar á Selfossi.

Innlent
Fréttamynd

Lista­menn safna fyrir 10 ára dreng á Sel­fossi í dag

Listamenn úr Myndlistarfélag Árnessýslu (MFÁ) standa saman að styrktarviðburði til stuðnings Hinriki Sjørup, 10 ára dreng frá Selfossi, sem glímir við blóðkrabbamein. Hinrik er nú staddur í Svíþjóð ásamt foreldrum sínum í áframhaldandi meðferð, þar á meðal undirbúningi fyrir beinmergsskipti. Söfnunin fer fram í dag, 1. febrúar.

Lífið
Fréttamynd

Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Ár­borg

Mikill áhugi er hjá foreldrum, sem eiga börn á Hjallastefnu leikskóla á Selfossi að næsti grunnskóli, sem verður byggður í bæjarfélaginu verði Hjallastefnuskóli. Undirskriftarlisti þess efnis hefur verið afhentur bæjaryfirvöldum í Árborg.

Innlent
Fréttamynd

Jói Fel málar með puttunum

Málverk eftir Jói Fel eins og hann er alltaf kallaður hafa vakið mikla athygli á veggjum Sundhallar Selfoss því þar eru til sýnis fjölmörg verk hans, til dæmis af þríeykinu í Covid og nokkrum heimsfrægum knattspyrnustjörnum. Margar af myndunum málar hann eingöngu með puttunum.

Lífið
Fréttamynd

Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suður­landi

Þrátt fyrir að Guðni Guðmundsson, bóndi á Þverlæk í Rangárþingi ytra sé orðinn 92 ára gamall þá er hann enn að ganga með fram vegum og tína upp einnota umbúðir, dósir og flöskur. Hann hefur safnað tæplega 30 milljónum á síðustu 20 árum og gefið meira og minna íþróttafélaginu í sveitinni hans allan peninginn.

Innlent
Fréttamynd

Allir hafi á­huga á Ís­landi

Hugvit og tækni er orðin stór hluti af starfsemi Íslandsstofu þar sem vaxtatækifærin felast meðal annars í lífvísindum, hugbúnaðarþróun og matvæla- og sjávartækni. Markhópar eru erlendir fjárfestar, erlendir sérfræðingar og erlend fyrirtæki í leit að lausnum.

Innlent
Fréttamynd

Tvær ak­greinar í hvora átt frá Rauða­vatni að Markar­fljóti

Á ársþingi Samtaka Sunnlenskra sveitarfélaga sem haldið var 23 – 24 október 2025 komu saman kjörnir fulltrúar allra sveitarfélaga á Suðurlandi. Ársþingið er vettvangur þar sem sameiginleg sýn sveitarfélaga er lögð fram ásamt áherslumálum þar sem sameiginlegur flötur hefur náðst.

Skoðun
Fréttamynd

„Klikkuð“ norður­ljós fyrir utan Sel­foss

„Þetta var bara klikkað. Við vorum á leiðinni í bæinn en sáum þessi norðurljós rétt fyrir utan Selfoss, þannig við stoppuðum og fylgdumst með þessu,“ segir Sif Baldursdóttir, sem fangaði sjónarspilið á myndskeiði.

Innlent
Fréttamynd

Sósa­lista­flokkurinn ekki með í Vori til vinstri

Oddvitar og borgarfulltrúr á vinstri væng stjórnamál í Reykjavík funda enn um möguleikann á sameiginlegu framboði fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Niðurstaða ætti að liggja fyrir síðar í mánuðinum. Grasrót Vinstri grænna fundar og Pírata funda á næstu vikum. Sósíalistaflokkurinn tekur ekki þátt í framboðinu en oddviti flokksins segir það ábyrgðarhluta að bjóða fram sterkan valkost á vinstri væng.

Innlent
Fréttamynd

Skauta­svell á Stokks­eyri slær í gegn

Íbúum á Stokkeyri þykir fátt skemmtilegra en að bregða sér á skauta á stóru svelli í þorpinu en mikil hefð er fyrir skautamenningu á staðnum. Kona, sem býr í Danmörku en er í heimsókn á Íslandi, segir skautasvellið á Stokkseyri algjöra paradís.

Lífið
Fréttamynd

Berjast við tals­verðan sinueld við Sel­foss

Brunavarnir Árnessýslu vinna nú að slökkvistarfi rétt sunnan við Selfoss þar sem töluverður sinueldur brennur. Tilkynning barst um eldinn þegar klukkan var um korter yfir tvö í dag. Þetta staðfestir Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu í samtali við Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Bana­slys á Biskupstungnabraut

Einn er látinn eftir umferðarslys sem varð á Biskupstungnabraut skammt frá Þrastarlundi í dag. Tveir til viðbótar voru fluttir til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

Innlent
Fréttamynd

Nýársbarnið á Suður­landi býr á Eyrar­bakka

Nýársbarnið á Suðurlandi fæddist á fæðingadeildinni á Selfossi í gær, 1. janúar, klukkan 17:06 en það var stúlka og fjölskyldan býr á Eyrarbakka. Foreldrar hennar eru þau Natalía Embla Þórarinsdóttir og Halldór Ingvar Bjarnason og stóri bróðir heitir Stormur Hrafn Halldórsson.

Innlent
Fréttamynd

Græna gímaldið ljótast

Niðurstöður liggja fyrir í kosningu Arkitektúruppreisarinnar, áhugamannahóps um framtíð arkitektúrs, um nýbyggingu ársins, bæði þá fallegustu og ljótustu. Græna gímaldið við Álfabakka 2a var valin ljótasta nýbyggingin og Hafnarstræti 75 á Akureyri sú fallegasta.

Menning