Árborg

Árborg

Mannfjöldi: 12.064 (2025). Flatarmál: 157 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Selfoss, Stokkseyri, Eyrarbakki, Tjarnabyggð.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Gylfi seldi sumar­bú­staðinn á 85 milljónir

Knattspyrnumaðurinn Gylfi Sigurðsson hefur selt 152 fermetra sumarbústað sinn að Stangarbraut 27 í Öndverðarnesi. Gylfi keypti bústaðinn árið 2010 og seldi hann í ágúst til Guðmundar Hjaltasonar á 85 milljónir, tæpum fimm milljónum undir ásettu verði.

Lífið
Fréttamynd

Brekkusöngur á jafn­sléttu há­punkturinn

Töluverður fjöldi fólks hefur gert sér ferð á Selfoss þar sem bæjarhátíðin Sumar á Selfossi fer nú fram. Íbúar hafa lagt mikinn metnað í skreytingar í húsagötum en í kvöld fer fram brekkusöngur á jafnsléttu og alvöru sveitaball.

Lífið
Fréttamynd

Stærsta umferðarhelgi ársins hafin

Fyrstu vísbendinguna um að verslunarmannahelgin sé að renna í garð má finna rétt fyrir utan Selfoss. Löng bílaröð hefur myndast en gera má ráð fyrir að einhverjir farþeganna séu á leið til Vestmannaeyja.

Innlent
Fréttamynd

„Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“

Guðrún Svava Egilsdóttir, betur þekkt sem Gugga í Gúmmíbát, lét veðrið um þarsíðustu helgi ekki stoppa sig og mætti galvösk með míkrafóninn á lofti á hina árlegu Kótelettu á Selfossi. Þar var margt um manninn og lét hún spurningarnar dynja á fólki og sætti sig ekki við nein undanbrögð.

Lífið
Fréttamynd

Grobba sig af stolnum trjám

Trjáþjófnaður er landlægt vandamál að mati formanns Skógræktarfélags Selfoss en trjám var stolið úr Hellisskógi á Selfossi um helgina. Honum svíður að fólk steli trjám úr skógum sem sjálfboðaliðar hafi unnið hörðum höndum að því að byggja upp.

Innlent
Fréttamynd

Gotta-rennibraut lokað vegna slysa­hættu

Vegna slysahættu hefur Gotta-rennibrautinni í sundlauginni á Selfossi verið lokað. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu Árborg kemur fram að rennibrautinni hafi verið lokað tímabundið vegna slysa barna. 

Innlent
Fréttamynd

Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns

Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE), óskar eftir tilboðum fyrirtækja eða teyma fyrirtækja í almennu útboði sem felur í sér jarðvinnuframkvæmd á nýju öryggisfangelsi að Stóra-Hrauni í sveitarfélaginu Árborg. FSRE óskar eftir tilboðunum fyrir hönd dómsmálaráðuneytisins. Útboðið opnar í dag og stendur til 20. ágúst.

Innlent