Garðabær

Garðabær

Mannfjöldi: 20.116 (2025). Flatarmál: 46 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Þessi leiða Við­reisn í Garða­bæ

Guðlaugur Kristmundsson bæjarfluttrúi, Harpa Þorsteinsdóttir varabæjarfulltrúi, Jón Bjarni Steinsson lögfræðingur, skipa efstu þrjú sætin á lista Viðreisnar í Garðabæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. 

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hafnar því að strandað hafi á honum að bregðast við menguninni

Oddviti Framsóknar segir af og frá að aðgerðir vegna mengunar á höfuðborgarsvæðinu hafi strandað á honum. Hann segir Pírata og Samfylkingu með fullkomlega óraunhæfar hugmyndir til að bregðast við. Kjörnir fulltrúar segjast í svörum til fréttastofu í dag líta málið alvarlegum augum, flestir segja í þetta skiptið nagladekk vera meginorsakavaldinn.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri reita hár sitt yfir skorti á þrifum en nagladekkjum

Meirihluti kjörinna fulltrúa telur að bætt götuhreinsun muni stemma stigu við mikilli svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu, miðað við svör til fréttastofu um málið. Fulltrúarnir skiptast í tvo hópa, þá sem telja að þrifin skipti máli og svo þá sem benda á að nagladekk og samgöngur séu helsta vandamálið. Sumir kenna meirihlutanum í borgarstjórn um vandann en aðrir íhaldsmönnum sem dragi lappirnar að taka á nagladekkjavanda. Öll líta málið alvarlegum augum.

Innlent
Fréttamynd

Brynja Dan vill leiða lista Fram­sóknar í Garða­bæ

Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi og eigandi Extraloppunnar, vill áfram leiða lista Framsóknar í Garðabæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún var oddviti flokksins í kosningunum 2022 og tók í kjölfarið sæti í bæjarstjórn.

Innlent
Fréttamynd

Verra að vera í bíl en gangandi í svif­rykinu

Í mikilli svifryksmengun er betra að fara labbandi í vinnuna en keyrandi, að sögn formanns Félags lækna gegn umhverfisvá. Erlendar rannsóknir sýna að tíðni hjartaáfalla og heilablóðfalla aukist þá daga sem mengun er mikil. 

Innlent
Fréttamynd

Þetta eru launin sem fram­bjóð­endur geta vænst með kjöri í vor

Borgarfulltrúar í Reykjavík eru með langhæstu grunnlaunin meðal kjörinna fulltrúa á höfuðborgarsvæðinu en bæjarstjórar sveitarfélaganna sex eru með á bilinu tvær til þrjár milljónir króna í laun og aðrar fastar greiðslur á mánuði. Almennir bæjarfulltrúar á höfuðborgarsvæðinu eru flestir með á bilinu 350 til 420 þúsund krónur í föst grunnlaun á mánuði, en ofan á það leggjast ýmsar greiðslur fyrir formennsku og setu í ráðum og nefndum, og jafnvel er greitt fyrir setu á einstaka fundum, sem geta togað launin upp um nokkra hundraðþúsundkalla til viðbótar á mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025

Fasteignasalinn Páll Heiðar Pálsson tók saman sjö af dýrustu eignunum sem seldust á Íslandi árið 2025. Ódýrasta eignin af þeim seldist á 365 milljónir á meðan sú dýrasta seldist á 550 milljónir.

Lífið
Fréttamynd

Vetrarhátíðin sjaldan verið stærri

Árleg vetrarhátíð hefst í kvöld á höfuðborgarsvæðinu þegar kveikt verður á ljóslistaverkum í miðborg Reykjavíkur. Viðburðarstjóri segir hátíðina aldrei hafa verið stærri, 150 viðburðir fara fram þar til á sunnudag en hátíðin samanstendur meðal annars af Safnanótt og Sundlauganótt.

Menning
Fréttamynd

Myndi kosta sveitar­fé­lögin 300 milljónir á ári

Áætlað er að það myndi kosta sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu aukalega um 300 milljónir króna á ári að gera Strætó gjaldfrjálsan fyrir grunnskólabörn, þar af 167 milljónir fyrir borgina. Borgarstjóri segir að boðaðar breytingarnar séu til þess fallnar að auka frelsi reykvískra barna.

Innlent
Fréttamynd

Grafið í há­spennu­streng í Urriðaholti

Grafið var í háspennustreng í Urriðaholti í Garðabæ klukkan 10:40 í morgun með þeim afleiðingum að rafmagn fór af öllu Urriðaholti og Kauptúni. Umferðarslys varð á meðan rafmagnslaust var.

Innlent
Fréttamynd

Á­rekstur í Urriðaholti

Árekstur varð á gatnamótum Urriðaholtsstrætis og Kauptúns í Garðabæ um klukkan 11 í morgun. Tveir eru sagðir slasaðir en þó er talið að um minni háttar áverka sé að ræða.

Innlent
Fréttamynd

„Þá kemur bara allt í einu högg“

Maður sem varð fyrir fólskulegri líkamsárás í Garðabæ á föstudagskvöld kveðst þakklátur fyrir að vera á lífi, hugrakkur vegfarandi hafi ekki hugsað sig tvisvar um áður en hann skarst í leikinn. Meintir árásarmenn eru þrír og allir undir lögaldri.

Innlent
Fréttamynd

Töfra­maður lú­barinn í Garða­bæ: „Ég hélt að þetta væri búið“

Töframaðurinn Daníel Örn Sigurðsson hélt að hann myndi aldrei fá að sjá dætur sínar aftur er hann lá máttvana undir kjaftshöggum og spörkum ungmenna í Garðabæ á föstudagskvöld, sem virðast hafa ráðist tilefnislaust á hann. Daníel rankaði marinn við sér á bráðamóttöku með brotinn handlegg, glóðarauga og skurð fyrir ofan annað augað.

Innlent
Fréttamynd

Dagurinn þegar Bessastaðatjörn varð vett­vangur harm­leiks

Í desember 2014 varð mikið áfall innan hestamannahreyfingarinnar þegar tólf hestar fundust drukknaðir í Bessastaðatjörn á Álftanesi. Hrossin höfðu verið í haustbeit á Bessastaðanesinu á vegum Hestamannafélagsins Sóta og Íshesta, og þegar smalað var eftir óveður kom í ljós að óvenju mörg dýr vantaði. Í kjölfarið var farið að leita og þá kom í ljós hið versta: hrossin höfðu farið út á ísinn einhvern síðustu daga, ísinn gefið eftir og þau farið undir.

Lífið