Noregur

Noregur

Höfuðborg: Ósló. Mannfjöldi: 5,6 milljónir (2025). Flatarmál: 385.207 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Hnýta í Trump í nýrri her­ferð: „Vel­komin til skítalands“

Ferðamálastofa Noregs hefur ráðist í nýja auglýsingaherferð þar sem hún býður ferðamenn velkomna til „skítalandsins“ Noregs. Hnýta Norðmenn þar í Donald Trump Bandaríkjaforseta sem fór ófögrum orðum um landið eftir að honum varð ljóst að hann hlyti enn og aftur ekki friðarverðlaun Nóbels.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Gangast í á­byrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni

Austur Holding AS hyggst, með fyrirvara um endanlega samningsgerð, veita ábyrgð að fjárhæð 25 milljónir evra, um það bil 3,4 milljarða króna, vegna lánasamnings Kaldvik AS við lánveitendur sína. Ísfélag hf. er 43,4 prósenta hluthafi í Austur Holding AS. Kaldvík stefnir á stóra hlutafjáraukningu á yfirstandandi ársfjórðungi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns

Þegar þeir Alexander Stubb, forseti Finnlands, og Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, hringdu í Vladimír Pútín Rússlandsforseta á dögunum, stóð til að símtalið myndi taka um tuttugu mínútur. Þess í stað stóð það yfir í rúmar níutíu mínútur og kom mögulegt vopnahlé í Úkraínu varla til umræðu.

Erlent
Fréttamynd

Selenskí og banda­menn hitta full­trúa Trump í Osló

Volodýmýr Selenskí, forseti Úkraína, ásamt evrópskum bandamönnum fundar nú með fulltrúa Bandaríkjastjórnar í Osló í skugga áframhaldandi harðra árása Rússa á landið. Bandaríkjastjórn hefur nálgast verulega stjórnvöld í Kreml að undanförnu.

Erlent
Fréttamynd

Norð­menn hrepptu öll verð­laun Norður­landa­ráðs

Söguleg úrslit urðu við verðlaunaafhendingu Norðurlandaráðs í dag þegar Norðmenn hlutu verðlaun í öllum fimm flokkum. Norska kvikmyndin Sentimental Value varð hlutskörpust í flokki kvikmynda og norsk-samíska skáldið Sigbjørn Skåden í bókmenntaflokknum.

Menning
Fréttamynd

Norska tromman á heims­meistara­mótinu seldist fyrir margar milljónir

Fólk hefur oft gaman af því að kaupa hluti sem hafa verið notaðir á sögulegum augnablikum. Gengi Noregs á heimsmeistaramótinu í fótbolta í sumar var frábært og urðu mikið af stórum augnablikum fyrir norsku þjóðina. Þar var fagn liðsins með róðri sem stóð rækilega upp úr hjá þeim sem fylgdust með mótinu.

Fótbolti
Fréttamynd

Hand­teknir fyrir að fé­fletta NATO-skip í Noregi

Fimm menn voru handteknir í Björgvin í Noregi í dag en þeir eru grunaður um að hafa ofrukkað skip á vegum Atlantshafsbandalagsins sem þeir þjónustuðu. Húsleit sem tengist rannsókninni var einnig gerð í Rúmeníu og Þýskalandi.

Erlent
Fréttamynd

Verð­launaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki sam­tímans

Tveir bandarískir hagfræðingar hlutu hagfræðiverðlaun Seðlabanka Svíþjóðar fyrir að framlag þeirra til bættra hagstjórnartækja samtímans. Þeir lögðu rekstrarhagfræði til grundvallar þjóðarhagfræðilegra líkana sem eru sögð hafa hjálpað til við peninga- og fjármálastefnu og dregið úr sveiflum.

Erlent
Fréttamynd

Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin?

Nóbelsverðlaunin eru meðal virtustu alþjóðlegu verðlauna sem veitt eru fyrir framúrskarandi framlag til vísinda, bókmennta og friðar. Þau byggja á erfðaskrá sænska uppfinningamannsins og iðnjöfursins Alfreds Nobel og voru fyrst veitt árið 1901. Verðlaun eru veitt í eðlisfræði, efnafræði, lífeðlisfræði eða læknisfræði, bókmenntum og friðarstarfi.

Lífið
Fréttamynd

Mennirnir sem létust voru feðgar

Mennirnir sem létust í skotárásinni í Halden í Noregi í morgun voru feðgar á áttræðis- og fimmtugsaldri. Þriðji maðurinn er alvarlega slasaður og liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi.

Erlent
Fréttamynd

Tveir látnir eftir skot­á­rás í Noregi

Mikill viðbúnaður lögreglu var í bænum Halden í morgun eftir skotárás þar sem tveir létust og einn særðist. Einn er í haldi lögreglu vegna málsins. Þeir þrír sem urðu fyrir skotum voru allir hluti af veiðihópi.

Erlent
Fréttamynd

Við­vörunar­merki fyrir ís­lenskt sam­fé­lag

Niðurstöður nýrrar rannsóknar sem sýna að íslenskir karlmenn hafi íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku en kynbræður þeirra á hinum Norðurlöndunum er viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag að mati doktorsnema sem kallar eftir viðbrögðum. 

Innlent
Fréttamynd

Sláandi hug­myndir ís­lenskra karla um of­beldi

Íslenskir karlmenn hafa íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku en kynbræður þeirra á Norðurlöndum samkvæmt nýrri rannsókn. Doktorsnemi segir niðurstöðurnar sláandi og sérstaklega komi á óvart að mun fleiri íslenskir karlar en norrænir telji að hægt sé að leysa úr ágreiningi með ofbeldi. Svör þeirra skera sig einnig úr þegar kemur að spurningum um lýðræði.

Innlent
Fréttamynd

Haaland stefnir flug­fé­lagi í Noregi

Erling Haaland hefur stefnt Norwegian Air eftir heimsmeistaramótið í fótbolta. Samkvæmt norskum miðlum er það líklegast vegna auglýsinga þar sem flugfélagið notar líkindi Haaland án hans leyfis.

Fótbolti
Fréttamynd

Mætir Haaland eftir að hafa þjálfað hann 16 ára

Brian Riemer, þjálfari danska landsliðsins, var að þjálfa U19 lið FC København þegar ungur norskur framherji var í prufu hjá liðinu í eina viku. Sá framherji var Erling Haaland og mætast þeir í kvöld í Þjóðadeildinni þegar Noregur tekur á móti Danmörku.

Fótbolti
Fréttamynd

Høiby skiptir um verj­endur

Nýir verjendur munu fara með mál Mariusar Borg Høiby, stjúpsonar Hákons VIII Noregskonungs, þegar þau verða tekin fyrir að nýju fyrir dómstólum eftir áfrýjun. Verjendurnir segjast ætla að leggja fram sönnunargögn sem ekki hafa sést áður og fá ný vitni til að gefa skýrslur fyrir dómi. 

Erlent
Fréttamynd

Ís­lensk ung­menni drekka minnst af orku­drykkjum

Fimmtungur íslenskra ungmenna á aldrinum fimmtán til nítján ára drekkur orkudrykk einu sinni á dag eða oftar. 36 prósent drekka orkudrykk vikulega eða oftar. Töluvert fleiri íslensk ungmenni drekka aldrei orkudrykk en ungmenni á öðrum Norðurlöndum. 

Innlent
Fréttamynd

Noregur og Kanada auka sam­starf í varnar­málum

Forsætisráðherra Noregs segist vinna að því að efla samstarf við Kanada í varnar- og norðurslóðamálum. Hann sér fyrir sér að Norðmenn, Kanadamenn og Íslendingar vinni nánar með Evrópusambandinu að málefnum norðurslóða.

Erlent
Fréttamynd

„Við höfum iðu­lega verið tossinn í bekknum“

„Þetta eru ekki einhverjar grundvallarbreytingar, þetta er bara hlutur sem er verið að reyna að vinna í og gera betur. Ef Norðmenn finna betri leiðir þá ættum við endilega að fylgjast með því en við erum ekki með sæti við borðið og ég sé enga töfralausn á því.“ 

Innlent