Erlent

Draumur Demó­krata að rætast

Eiður Þór Árnason skrifar
James Talarico sigraði Repúblikanaþingmanninn Ken Paxton. Hann verður fyrsti öldungadeildarþingmaður Demókrataflokksins í Texas frá 1993.
James Talarico sigraði Repúblikanaþingmanninn Ken Paxton. Hann verður fyrsti öldungadeildarþingmaður Demókrataflokksins í Texas frá 1993. ap/Eric Gay

Demókrataflokkurinn er sagður hafa tryggt sér meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins eftir kosningar sem margir álíta dóm á störf Donalds Trump forseta. Dæmi eru um að fulltrúar Demókrata hafi náð markverðum árangri í mörgum höfuðvígum Repúblikanaflokksins.

Náði flokkurinn til að mynda öldungadeildaþingsæti í Suður-Karólínu og fær sinn fyrsta öldungardeildarþingmann í Texas í yfir þrjá áratugi með sigri James Talarico.

Repúblikanar hafa verið með meirihluta í báðum þingdeildum. Á meðan kannanir bentu sterklega til þess að Demókratar myndu ná yfirhöndinni í fulltrúadeildinni eftir kosningarnar í gær ríkti meiri spenna um niðurstöðurnar í öldungadeildinni. Virðist flest hafa farið Demókrataflokknum í hag og stefnir í mikinn ósigur Trumps og Repúblikanaflokksins. 

Langan tíma gæti tekið að staðfesta niðurstöður endanlega í sumum umdæmum en helstu miðlar vestanhafs eru sammála um að óvissa fari þverrandi.

Mike Johnson, leiðtogi meirihlutans í fulltrúadeildinni og þingmaður Repúblikana, er sagður hafa viðurkennt ósigur flokksins í kosningapartýi sínu í Louisiana nokkru áður en fjölmiðlar staðfestu þá niðurstöðu. Kosið var um öll 435 þingsæti fulltrúadeildarinnar í gær, 35 sæti í öldungadeildinni, embætti ríkisstjóra víða og önnur embætti.

Demókratar náð yfirhöndinni í öldungadeildinni

Þegar þetta er skrifað eru Demókratar sagðir hafa náð sjö sætum af Repúblikönum í öldungadeild þingsins og tryggt sér 54 þingsæti en 51 þarf þar til að ná meirihluta. 

Samkvæmt spámódeli The New York Times þurfti flokkurinn að sigra í þremur lykilríkjum til þess að ná völdum í deildinni en hefur gert gott betur og tryggt sér sigur í þremur barátturíkjum til viðbótar. Hér er um að ræða Iowa, Kansas, Maine, Ohio, Suður-Karólínu og Texas.

Staðan einnig slæm fyrir Repúblikana í fulltrúadeildinni

Þegar þetta er skrifað eru Demókratar sagðir hafa tryggt sér 228 sæti í fulltrúadeildinni en þeir þurfa 218 til að ná þar meirihluta. Eins og er hefur flokkurinn grætt nítján sæti á kostnað Repúblikana. 

Líkt og yfirleitt í kosningum í Bandaríkjunum ríkti lítil spenna í miklum fjölda umdæma þar sem það er talið öruggt að sæti lendi hjá öðrum hvorum flokknum. Þannig treysta miðlar sér til að spá fyrir um niðurstöðuna þrátt fyrir að ekki sé búið að úrskurða um sigurvegara í sumum umdæmum innan ríkja. 

Stefnir í að Demókratar muni enda með sinn sterkasta meirihluta í fulltrúadeildinni frá árinu 2008. 

Náðu einnig til sín ríkisstjórastólnum í Texas

Einnig var kosið um ríkisstjóra í 36 ríkjum Bandaríkjanna í gær. Þegar þetta er skrifað eru Demókratar sagðir hafa náð til sín fjórum ríkisstjórastólum á kostnað Repúblikana í Iowa, Ohio, Georgíu og Texas. Kom það síðastnefnda hvað mest á óvart. 

Trump Bandaríkjaforseti hefur mælst óvinsæll í könnunum um nokkurt skeið.  Kjósendur víðs vegar um Bandaríkin sögðu í samtali við AP-fréttaveituna að Trump hefði haft slæm áhrif á hagkerfi Bandaríkjanna. Um tveir þriðju svarenda sögðu áhrifin slæm en einungis þrír af tíu sögðu forsetann hafa haft jákvæð áhrif.

Flestir sem fréttaveitan ræddi við sögðu að verðlag og spilling væru helstu málefnin sem þau hefðu í huga fyrir kosningarnar. Eldsneytisverð hefur hækkað skarpt í Bandaríkjunum eftir innrás Bandaríkjanna og Ísrael í Íran og lokun Hormússunds. Þá ríkir víðtæk óánægja með stríðsreksturinn.

Hægt er að fylgjast með nýjustu niðurstöðum talningar í útsendingunum hér fyrir neðan.

Fréttin var síðast uppfærð klukkan 09:20.


Tengdar fréttir

Trump hafi nú engu að tapa

Prófessor í stjórnmálafræði segir niðurstöður þingkosninganna í Bandaríkjunum frekar afhroð Repúblikana í stað sigurs Demókrata. Ákveðið frost gæti verið fram undan á þinginu. Bandaríkjaforseti hafi nú engu að tapa.

Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á loka­metrunum

Demókratinn Abdul El-Sayed sigraði Repúblikanan Mike Rogers í baráttunni um annað öldungadeildarsæti Michigan í þingkosningunum í gær. Hann vakti mikla athygli í kosningabaráttunni og er talinn einn af kyndilberum nýrrar kynslóðar Demókrata og vinstri arms flokksins sem sá framboð hans sem prófraun í einu mikilvægasta sveifluríki landsins.

Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn banda­mönnum sínum

Donald Trump Bandaríkjaforseti lét gamminn geisa á samfélagsmiðli sínum um það leyti sem kosninganiðurstöður og spár fóru að birtast í gær. Ríkisstjórn hans hefur verið sökuð um að reyna að grafa undan trúverðugleika kosninganna en forsetinn segist nú ætla að viðurkenna niðurstöðuna sem hefur verið lýst sem algerum ósigri.

Sögu­legir sigrar í Bandaríkjunum

Keisha Lance Bottoms verður fyrsta svarta konan til að gegna ríkisstjóraembætti í Bandaríkjunum eftir nýafstaðnar kosningar í Georgíu. Hún verður um leið fyrsti Demókratinn til að sitja í ríkisstjórabústað þessa mikilvæga barátturíkis í yfir 25 ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×