Grænland

Grænland

Höfuðborg: Nuuk. Mannfjöldi: 56 þúsund. Flatarmál: 2.166.000 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Ís­land á Ameríkukorti Trumps

Donald Trump Bandaríkjaforseti birti mynd af korti á samfélagsmiðlum þar sem Ísland, auk Grænlands og allrar Norður-Ameríku, er þakið fánalitum Bandaríkjanna.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Mætt til Græn­lands með pyngju fulla af peningum

Bandaríkjaforseti er ekki einn um það að líta hýru auga til Grænlands. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, er sögð munu í heimsókn sinni í dag boða aukinn fjárstuðning við Grænland. Þetta gerist í skugga hótana Bandaríkjaforseta um að leggja undir sig eyjuna. Erlendir miðlar setja þetta einnig í samhengi við nýafstaðna atkvæðagreiðslu þar sem Íslendingar höfnuðu aðildarviðræðum við Evrópusambandið.

Erlent
Fréttamynd

Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast fram­halds­líf

Helsti tengiflugvöllur milli Grænlands og Íslands um áratugaskeið, flugvöllurinn í Narsarsuaq, er á leið með að öðlast framhaldslíf. Varnarmálaráðherra Danmerkur hefur óskað eftir samþykki fjárlaganefndar danska þingsins fyrir fjárveitingu sem tryggir lágmarksrekstur Narsarsuaq-flugvallar í ár og næsta ár.

Innlent
Fréttamynd

Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Banda­ríkjunum

Bogi Ágústsson telur marga landsmenn vera að hluta til í afneitun varðandi breyttan heim og að sú vernd sem við höfum hlotið frá Bandaríkjunum blindi fólk fyrir því að Evrópa gæti verið valkostur. Neikvæð niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst myndi þýða að ekkert verði af framhaldi aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem fram fóru árin 2009-2013.

Innlent
Fréttamynd

„Fólk er ekki heimskt“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir nú góðan tíma fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið en það njóti góðs af stöðu heimsmála. Hún segist hafa áhyggjur af gangi mála í Evrópu og að ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland sé mikið áhyggjuefni. Markmiðið sé að fá já þann 29. ágúst en sjálf sé hún gagnrýnin á Evrópusambandið.

Innlent
Fréttamynd

Sneri sér við, greip í spaðann á Krist­rúnu og gekk út

Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins fór fram í Ankara í Tyrklandi í gær og í morgun en Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur farið mikinn þar. Athygli vakti að eftir myndatöku með leiðtogum bandalagsins sneri Trump sér við og tók í spaðann á Kristrúnu Frostadóttur en engum öðrum.

Innlent
Fréttamynd

Danir ætla að verja Græn­land

Það hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgist með fréttum að Trump, forseti Bandaríkjanna hefur gert sjálfan sig að helsta fréttaefni leiðtogafundarins í Ankara með yfirlýsingum um óánægju með Atlantshafsbandalagið, hótunum um að draga bandarískt herlið frá Evrópu og ítrekun á ásetningi um að ná fullum yfirráðum yfir Grænlandi.

Skoðun
Fréttamynd

Um­mæli Trump um Græn­land þurfi ekki að koma á ó­vart

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um Grænland þurfi ekki að koma á óvart. Hún segist þó vongóð um að farsæl lausn náist þar sem formlegur vinnuhópur bandarískra, danskra og grænlenskra stjórnvalda sé starfandi.

Innlent
Fréttamynd

Trump sló harðan tón við upp­haf leið­toga­fundar NATO

Bandaríkjaforseti hefur ítrekað á ný að Grænland eigi að tilheyra Bandaríkjunum. Hann lét í ljós vonbrigði og óánægju með viðbrögð NATO-ríkja við stríðinu í Íran. Hann hafi lagt próf fyrir evrópsk bandalagsríki þegar hann hafi óskað eftir stuðningi þeirra.

Erlent
Fréttamynd

Enn besta lausnin að kaupa Græn­land

Að kaupa Grænland er að mati Bandaríkjamanna enn besta langtímalausnin til að mæta öryggisþörfum Bandaríkjanna á norðurslóðum. Þetta kom fram í máli ónafngreinds bandarísks embættismanns á blaðamannafundi í Tyrklandi í dag. Samningaviðræður hafa staðið yfir milli Bandaríkjanna og Danmerkur síðustu mánuði.

Erlent
Fréttamynd

Kominn á sjúkra­hús eftir krefjandi ferð

Veikur einstaklingur sem sóttur var af Landhelgisgæslunni um borð í skemmtiferðaskip sem var statt á milli Grænlands og Vestfjarða í kvöld er kominn á Landspítalann. Þyrla og flugvél gæslunnar lentu í Reykjavík um klukkan 22 og var hann í kjölfarið fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús.

Innlent
Fréttamynd

Námu­félagið Green­land Mines tryggir sér for­kaups­rétt í Helgu­vík

Námufyrirtækið Greenland Mines hefur náð samkomulagi við Reykjanes Investment sem veitir bandaríska félaginu forkaupsrétt á um 60 þúsund fermetra lóð sem áður hýsti kísilverið í Helguvík ásamt fyrirliggjandi iðnaðarhúsnæði og innviðum. Samkvæmt áformum Greenland Mines gæti svæðið orðið að miðstöð fyrir vinnslu og flutninga á sjaldgæfum málmum tengt verkefnum félagsins á Grænlandi.

Innherjamolar
Fréttamynd

Icelandair hefur flug til Qaqortoq

Icelandair flaug í gær sitt fyrsta flug til Qaqortoq á Suður-Grænlandi. Flogið verður til Qaqortoq fjórum sinnum í viku frá júní til ágúst, segir í fréttatilkynningu frá Icelandair.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

SAS fellir niður allt flug til Græn­lands

Skandinavíska flugfélagið SAS hefur óvænt fellt niður alla flugáætlun sína í sumar milli Danmerkur og Grænlands. Félagið segir ástæðurnar vera hærra eldsneytisverð og minni eftirspurn.

Erlent