Þýskaland

Þýskaland

Höfuðborg: Berlín. Mannfjöldi: 84,4 milljónir (2025). Flatarmál: 357.592 ferkílómetrar.


Fréttamynd

„Frakk­land má ekki vera fyrir­mynd í þessum efnum“

Efnt var til mótmæla í ríflega þrjátíu borgum Þýskalands um helgina en þau eru skipulögð af ungliðahreyfingu sem mótmælir herskyldu, hækkandi framfærslukostnaði og krefst aukinnar fjárfestingar í menntakerfinu og aðgerða í loftslagsmálum. Mótmælin fóru mestmegnis friðsamlega af stað í gærmorgun en þegar tók að rökkva færðist harka í leikinn.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Búa sig undir þriðju helgi mót­mæla

Sjötíu þúsund lögreglumenn verða við störf víða í Frakklandi í tilraun stjórnvalda til að búa sig undir þriðju helgi mótmæla þar í landi. Lestarstöðvum í París hefur verið lokað og víða hefur verið neglt fyrir glugga verslana. Þá eru þýsk yfirvöld með varann á vegna mótmæla í yfir þrjátíu borgum Þýskalands í dag. 

Erlent
Fréttamynd

Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst

Lögregla segir sterkar vísbendingar um að 33 ára þýskur maður, sem handtekinn var í kjölfar brunans í Arnarhreiðri Adolfs Hitlers í Bæjaralandi, hafi kveikt í húsinu. Bráðabirgðamat geðlæknis bendir til þess að maðurinn glími við geðræn veikindi.

Erlent
Fréttamynd

Segir Ríkis­sjón­varpið bregða fyrir sig fæti

Hlemmur, kvikmynd Ólafs Sveinssonar, hefur öðlast svokallaðan „költstatus“. Myndin er rúmlega tuttugu ára gömul og um hana leikur ljómi. Þar er fjallað um menn götunnar, fólk sem á við drykkjuvanda og/eða geðrænan vanda að stríða. Ólafur er nú með þrjár myndir aðrar í smíðum en hann segir Ríkissjónvarpið vera Þránd í Götu – og tæplega uppfylla lagalegar skyldur sínar.

Lífið
Fréttamynd

Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðju­verkanna

Ulrike Meinhof var landsþekkt blaðakona, tveggja barna móðir og áhrifamikil rödd þýskra vinstri menntamanna. Vorið 1970 tók hún afdrifaríka ákvörðun sem gerði hana að einum eftirlýstasta hryðjuverkamanni Evrópu. Saga hennar og Rauðu herdeildarinnar eru viðfangsefni nýjasta þáttar Skuggavaldsins.

Lífið
Fréttamynd

Kallar ­kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet

Þjóðverjar flykktust á kjörstað í tveimur af sextán sambandslöndum sem mynda þýska ríkið en flokkur kanslarans, Kristilegir demókratar, kemur verulega illa út í nýjustu útgönguspám. Þrátt fyrir að flokkurinn lúri rétt ofan við fimm prósenta mörkin, sem eru nauðsynleg til að halda þingsætum, heitir kanslarinn því að fara ekki fet. 

Erlent
Fréttamynd

Fram­tíð kanslarans í húfi

Framtíð Friedrich Merz sem kanslara Þýskalands er sögð í húfi í kosningum sem haldar eru í tveimur sambandslöndum í dag. Fylgi flokks hans hefur dalað verulega í báðum sambandslöndunum og hefur honum verið kennt um. 

Erlent
Fréttamynd

Rússar svara fyrir sig

Utanríkisráðuneyti Rússlands tilkynnti í dag að ræðismannsskrifstofu Þýskalands í Pétursborg yrði lokað. Þar að auki yrði Þjóðverjum gert að loka þýskum menningarsetrum í Moskvu og Pétursborg. Með þessu eru Rússar að svara með nánast sams konar aðgerðum og Þjóðverjar beittu Rússa á dögunum.

Erlent
Fréttamynd

Stöðnun og dýr­tíð að baki stór­sigri AfD

Langvarandi stöðnun, hátt verðlag, þungt regluverk og versnandi innviðir eiga stóran þátt í sögulegu fylgi AfD í Saxlandi-Anhalt, að mati íslenskrar athafnakonu sem hefur búið í Þýskalandi í rúm tuttugu ár. Hún segir of einfalt að skýra niðurstöðuna eingöngu með útlendingamálum.

Erlent
Fréttamynd

Gengið til tímamótakosninga í Þýska­landi

Íbúar Saxlands-Anhalt í Þýskalandi ganga til kosninga í dag en kjörstaðir voru opnaðir klukkan átta að staðartíma. Straumhvörf gætu orðið í sambandsríkinu og pólitísku landslagi Þjóðverja í kjölfar kosninganna.

Erlent
Fréttamynd

Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn

Í fyrsta sinn frá seinni heimsstyrjöld gæti fjarhægrimaður orðið ríkisstjóri í þýsku sambandsríki þar sem hægrisinnaði harðlínuflokkurinn Alternativ für Deutschland, AfD, leiðir nú skoðanakannanir fyrir þingkosningar í Saxlandi-Anhalt á morgun.

Erlent
Fréttamynd

NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gá­leysi Rússa

Leiðtogar NATO og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafa varað við því að hegðun Rússa verði sífellt glannalegri og heita því að bregðast við „nýju ástandi“. Sendiherrar Rússa hafa víða í Evrópu verið kallaðir til fundar vegna niðurstöðu þýskra rannsakenda að Rússar hafi staðið að fjölþátta árás í Þýskalandi í síðustu viku. 

Erlent
Fréttamynd

Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru

Þýskir rannsakendur telja sig hafa borið kennsl á tvo menn sem grunaðir eru um að hafa reynt fjölþáttaárás á Leipzig/Halle-flugvellinum í síðasta mánuði. Annar er sagður vera Rússi með vegabréf frá Lettlandi en hinn er frá Belarús og með rússneskt vegabréf.

Erlent
Fréttamynd

Løkke kallar rúss­neska sendi­herrann á teppið

Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, hefur boðað sendiherra Rússlands þar í landi á sinn fund í dag. Løkke segist ætla að ræða sjálfsprengidróna sem fundust á flugvelli í Þýskalandi í síðasta mánuði en ráðamenn í Þýskalandi sögðu í gær að Rússar bæru ábyrgð á þeim og að um fjölþáttaárás væri að ræða.

Erlent
Fréttamynd

Sprengjur nærri spenni­stöð

Nokkrar sprengjur fundust við spennistöð í Brandenburg í Þýskalandi í dag en að minnsta kosti ein þeirra sprakk í loft upp. Rafmagnslínur urðu fyrir skemmdum með meðfylgjandi truflunum á dreifikerfi en þær voru fljótt lagaðar.

Erlent
Fréttamynd

Evrópu­sam­bandið þurfi að vera meira að­laðandi

Þýski utanríkisráðherrann Johann Wadepuhl segist harma það að Íslendingar hafi hafnað í atkvæðagreiðslu að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hann telur þetta til marks um að Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi.

Erlent