Trent með á HM og Liverpool fær væna summu Real Madrid tilkynnti í dag að náðst hefði samkomulag við Liverpool svo að félagið fengi Trent Alexander-Arnold strax til sín, í tæka tíð fyrir HM félagsliða í júní. Enski boltinn 30.5.2025 10:22
Skrifar undir fimm ára samning við Liverpool Englandsmeistarar Liverpool hafa fyllt upp í skarðið sem að Trent Alexander-Arnold skyldi eftir sig. Jeremie Frimpong hefur skrifað undir fimm ára samning í Bítlaborginni og kemur frá Bayer Leverkusen. Enski boltinn 30.5.2025 10:01
Fyrirliði Man. Utd íhugar alvarlega risatilboð frá Sádi-Arabíu Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, íhugar nú alvarlega að yfirgefa félagið og samþykkja gríðarhátt tilboð frá Al-Hilal í Sádi-Arabíu. Hann gæti spilað með liðinu á HM félagsliða í júní. Enski boltinn 30.5.2025 09:32
Stuðningsmenn Chelsea köstuðu glösum og stólum í Póllandi Úrslitaleikur Sambandsdeildarinnar fer fram í Wroclaw í Póllandi annað kvöld þar sem Chelsea og Real Betis eigast við. Stuðningsmönnum liðanna lenti saman í gær þar sem glös og húsgögn flugu manna á milli. Enski boltinn 27.5.2025 23:15
„Án Meistaradeildarinnar þurfum við ekki stóran leikmannahóp“ Ruben Amorim lofar að leikmenn verði keyptir til Manchester United fyrir næsta tímabil en segir jafnframt að engin þörf sé á stórum leikmannahópi þar sem félagið verður ekki í Meistaradeildinni. Enski boltinn 27.5.2025 17:31
Forstjóri Liverpool þakkar stuðningsmönnum sem hjálpuðu hver öðrum Forstjóri Liverpool, Billy Hogan, ávarpaði stuðningsmenn félagsins í morgun, eftir að bíl var ekið inn í skrúðgöngu í borginni í gærkvöldi. Enski boltinn 27.5.2025 12:45
Niðurbrotinn Klopp í sjokki Jurgen Klopp, fyrrverandi þjálfari enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, segist í færslu á samfélagsmiðlum núna í morgun vera í sjokki og niðurbrotinn vegna atburðarins í Liverpoolborg í gær þar sem að maður ók bíl sínum á hóp fólks sem var að fagna Englandmeistaratitli Liverpool. Enski boltinn 27.5.2025 11:21
Man City vilja Reijnders áður en HM félagsliða hefst Enska knattspyrnufélagið Manchester City mun gera allt sem það getur til að Tijjani Reijnders verði orðinn leikmaður félagsins áður en HM félagsliða hefst þann 15. júní næstkomandi. Enski boltinn 26.5.2025 22:31
Settu met í töpum en spila í Meistaradeild Evrópu Með 4-1 tapinu á heimavelli gegn Brighton í gær setti Tottenham met yfir flest töp án þess að það kosti fall, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Það er ástæðan fyrir því að óvissa ríkir um framtí Ange Postecoglou, þrátt fyrir Evrópudeildarmeistaratitil og sæti í Meistaradeildinni. Enski boltinn 26.5.2025 17:15
Wirtz vill bara Liverpool og metupphæð komin á borðið Ensku meistararnir í Liverpool eru staðráðnir í að landa Þjóðverjanum Florian Wirtz og gera hann um leið að dýrasta leikmanni í sögu félagsins. Enski boltinn 26.5.2025 15:46
Bein útsending: Englandsmeistaratitlinum fagnað í Liverpool Það verður mikið um dýrðir í Liverpoolborg í dag þegar að leikmenn og þjálfarateymi Englandsmeistara Liverpool ferðast um borgina á opinni rútu og fagna Englandsmeistaratitlinum með stuðningsmönnum sínum. Enski boltinn 26.5.2025 12:45
Allt klárt fyrir fyrstu kaup Man. Utd í sumar Manchester United hefur náð munnlegu samkomulagi við Wolves og Matheus Cunha um að þessi brasilíski sóknarmaður verði leikmaður United næstu fimm árin. Enski boltinn 26.5.2025 09:00
Lokaumferðin í enska: Newcastle hélt Meistaradeildarsætinu Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta fór fram í dag. Mikil barátta var um þrjú laus sæti í Meistaradeild Evrópu. Enski boltinn 25.5.2025 14:30
Garnacho ekki í hóp Alejandro Garnacho er ekki í leikmannahópi Manchester United sem tekur á móti Aston Villa í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Hann gæti verið á förum frá félaginu. Enski boltinn 25.5.2025 14:00
Ætlar að biðja stuðningsmennina afsökunar eftir lokaleikinn Ruben Amorim, knattspyrnustjóri Manchester United, ætlar að biðja stuðningsmenn liðsins afsökunar eftir lokaleik þess í ensku úrvalsdeildinni í dag. Enski boltinn 25.5.2025 11:49
Sunderland vann milljónaleikinn og komst upp í úrvalsdeildina Tom Watson skoraði sigurmark Sunderland gegn Sheffield United í uppbótartíma í úrslitaleik umspils um sæti í ensku úrvalsdeildinni á Wembley í dag. Enski boltinn 24.5.2025 16:15
Salah bestur og Gravenberch besti ungi Mohamed Salah var valinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar og samherji hans hjá Liverpool, Ryan Gravenberch, besti ungi leikmaðurinn. Enski boltinn 24.5.2025 13:58
Forest bannaði Neville að mæta á völlinn Gary Neville, sparkspekingur á Sky Sports, segir að Nottingham Forest hafi meinað sér að mæta á leik liðsins gegn Chelsea á City Ground í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn. Enski boltinn 24.5.2025 11:00
Gæti hætt við að fara til Man Utd eftir tapið gegn Tottenham Liam Delap virtist ákveðinn í að fara til Manchester United í sumar, það var áður en Rauðu djöflarnir töpuðu fyrir Tottenham Hotspur í úrslitum Evrópudeildar karla í knattspyrnu. Nú eru Chelsea og Newcastle United einnig í myndinni hjá þessum 22 ára gamla framherja. Enski boltinn 23.5.2025 18:02
Klopp snýr aftur á Anfield Jurgen Klopp, fyrrverandi þjálfari enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, verður á meðal áhorfenda á Anfield þegar að Liverpool tekur á móti Crystal Palace í lokaumferð deildarinnar á sunnudaginn. Enski boltinn 23.5.2025 15:17
Reka 200 manns eftir tapið fyrir Tottenham Starfsfólk hjá Manchester United kemst að því í dag hvort það haldi starfi sínu hjá félaginu eftir tap liðsins í úrslitaleik Evrópudeildarinnar fyrir Tottenham á miðvikudagskvöld. Félagið verður af miklum fjárhæðum vegna tapsins og ljóst að fjölda fólks verður sagt upp í dag. Enski boltinn 23.5.2025 14:32
Fyrrverandi leikmaður Man. Utd hlaut fjórtán mánaða dóm Brandon Williams hefur nú hlotið fjórtán mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir glæfraakstur sinn í ágúst 2023, þegar hann var leikmaður Manchester United. Enski boltinn 23.5.2025 13:44
Var ekki nógu ánægður með Trent Arne Slot, þjálfari Englandsmeistara Liverpool, hefur greint frá því að hann hafi ekki verið nógu ánægður með framlag Trent Alexander Arnold á æfingum liðsins í upphafi tímabils. Trent er á leið til Real Madrid á frjálsri sölu eftir tímabilið. Enski boltinn 23.5.2025 12:02
Toney í enska hópnum en enginn úr Man. Utd Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands í fótbolta, segist vilja sjá með berum augum hvernig Ivan Toney komi út í enska hópnum. Toney er nú valinn í fyrsta sinn síðan hann gekk í raðir sádi-arabíska liðsins Al-Ahli frá Brentford síðasta sumar. Enski boltinn 23.5.2025 09:45