Þýskir Jafnaðarmenn krefjast aukinna útgjalda til félagsmála Ný forysta hefur tekið við stjórnartaumunum í Jafnaðarmannaflokknum og óttast margir að með henni kunni stjórnarsamstarfið að vera í hættu. Erlent 8. desember 2019 09:45
Þjóðverjar vísa rússneskum erindrekum úr landi vegna morðs Ákvörðunin er tekin í tengslum við rannsókn á morði á téténskum uppreisnarmanni í Berlín. Erlent 4. desember 2019 14:31
Danir ljúka við gerð landamæragirðingar Danir ljúka í dag við gerð 1,5 metra hárrar girðingar meðfram landamærum Danmerkur og Þýskalands, syst á Jótlandi. Erlent 2. desember 2019 14:39
Þýskir bílaframleiðendur standa í uppsögnum til að fjármagna rafbílarannsóknir Daimler móðurfélag Mercedes-Benz hefur gefið út að 10.000 störf að lágmarki verði skorin niður til að mæta aukinni fjárfestingaþörf vegna þróunar rafbíla. Audi ætlar að fækka starfsfólki um 9.500 af þeim 61.000 sem starfa hjá framleiðandanum í Þýskalandi. Bílar 2. desember 2019 14:00
Stálu orðum og skarti af Stasi-safninu í Berlín Þjófar hafa stolið orðum og skartgripum frá tímum kommúnistastjórnarinnar af Stasi-safninu í þýsku höfuðborginni Berlín. Erlent 2. desember 2019 13:05
Flokkur í miklum vandræðum velur sér nýjan leiðtoga Tilkynnt verður á morgun hver verður næsti leiðtogi þýska Jafnaðarmannaflokksins. Erlent 28. nóvember 2019 13:08
Merkel ósammála Macron og segir NATO aldrei hafa verið mikilvægara Angela Merkel Þýskalandskanslari sagði í dag að Atlantshafsbandalagið væri alveg jafnmikilvægt nú og í kalda stríðinu. Evrópa gæti ekki varið sig sjálf og þyrfti að treysta á NATO-samstarfið. Erlent 27. nóvember 2019 18:30
Brutust inn í eitt stærsta dýrgripasafn álfunnar Lögregla í Þýskalandi segja að brotist hafi verið inn Grænu hvelfinguna í Dresden, eitt stærsta dýrgripasafn álfunnar, snemma í morgun. Erlent 25. nóvember 2019 13:42
Níu hundruð fá boð í DNA-próf í von um að lausn finnist á 23 ára hryllilegu morðmáli Lögregluyfirvöld í þýska bænum Grevenbroich hafa sent 900 mönnum boð um að koma í DNA-próf í von um að komast til botns í 23 ára gömlu morðmáli. Erlent 23. nóvember 2019 18:03
Þrumuræða Karrenbauer á landsþingi Annegret Kramp-Karrenbauer, leiðtogi Kristilegra demókrata, skoraði gagnrýnendur sína á hólm við setningu landsþings flokksins í Leipzig í gær. Erlent 23. nóvember 2019 07:00
Pípuhattur Hitlers boðinn upp Hundruð þúsunda evra söfnuðust í uppboði á eigum Adolfs Hitler og annarra nasistaleiðtoga. Uppboðinu hafði verið harðlega mótmælt þar sem munirnir yrðu hugsanlega notaðir til að upphefja nasismann. Erlent 22. nóvember 2019 06:00
Sonur fyrrverandi forseta Þýskalands stunginn til bana Fritz von Weizsäcker, sonur Richard von Weizsäcker, fyrrverandi forseta Þýskalands, var stunginn til bana í gærkvöldi þar sem hann var að flytja fyrirlestur um lifrarsjúkdóma. Erlent 20. nóvember 2019 13:04
Foringjar gætu fallið Stjórnarsamstarfi Kristilegra demókrata og Sósíaldemókrata í Þýskalandi er ógnað að innan. Báðir flokkarnir hafa mátt þola ósigra í kosningum á árinu. Líkur eru á að róttækari armar gætu komist til valda í vetur, sem leiti frekar Erlent 19. nóvember 2019 06:00
Bólusetningar gegn mislingum orðnar skylda Þýsk stjórnvöld hafa gert bólusetningar gegn mislingum að skyldu. Erlent 15. nóvember 2019 06:00
Húnarnir í Berlín farnir að skríða Pönduhúnarnir tveir í Berlínardýragarðinum, sem fæddust þann þrítugasta og fyrsta ágúst síðastliðinn, eru nú orðnir um fjögur kíló. Lífið 12. nóvember 2019 19:00
Lögðu á ráðin um árás í nafni ISIS Lögreglan í Þýskalandi handtók í dag þrjá menn sem grunaðir eru um að hafa ætlað sér að fremja sprengjuárás í nafn Íslamska ríkisins. Erlent 12. nóvember 2019 13:39
Úranagnir fundust á leynilegum stað í Íran Alþjóðlega kjarnorkustofnunin (IAEA) fann úraneindir í starfsstöð í Íran sem hafði ekki verið tilkynnt af írönskum yfirvöldum. Erlent 11. nóvember 2019 21:10
Nýtt app færir Berlínarmúrinn inn í nútímann App sem styðst við aukinn veruleika gerir fólki nú kleift að sjá Berlínarmúrinn, en í dag eru þrjátíu ár síðan múrinn féll. Erlent 9. nóvember 2019 20:30
Lýsir tilfinningaríkri stund þegar múrinn féll fyrir þrjátíu árum Þrjatíu ár eru í dag síðan að Berlínarmúrinn féll þann 9. nóvember 1989. Innlent 9. nóvember 2019 14:15
Lufthansa aflýsir 1.300 flugferðum Tveggja daga verkfall starfsmanna í áhöfn véla hófst á miðnætti að staðartíma. Viðskipti erlent 7. nóvember 2019 10:30
Kovac rekinn frá Bayern Bayern München hefur látið þjálfarann Niko Kovac fara frá félaginu eftir aðeins 16 mánuði við stjórnvöllinn. Fótbolti 3. nóvember 2019 20:17
Lýsa yfir neyðarástandi vegna nasista Borgarfulltrúi sem lagði tillöguna fram segir um að ræða alvarlegt vandamál sem ógni lýðræði í Dresden. Erlent 2. nóvember 2019 19:49
Deutsche bank tók fimm ár í að tilkynna grunsamlegar færslur Danske bank Færslurnar eru allt að fimm ára gamlar en þýski bankinn tilkynnti þær ekki til yfirvalda fyrr en í febrúar á þessu ári. Viðskipti erlent 15. október 2019 12:06
Merkel bað Erdogan um að hætta við innrásina Kanslari Þýskalands, Angela Merkel, ræddi símleiðis við tyrkneska forsetann Recep Tayyip Erdogan í dag. Erlent 13. október 2019 14:55
Árásin á bænahús gyðinga sögð hægriöfgahryðjuverk Árásarmaðurinn er talinn hafa reynt að apa eftir fjöldamorðingja sem drap tugi manna í tveimur moskum á Nýja-Sjálandi fyrr á þessu ári. Erlent 10. október 2019 15:25
Gyðingahatur talið hafa ráðið för í Halle Alríkissaksóknarar hafa tekið yfir rannsókn skotárásar í Halle í Þýskalandi þar sem minnst tveir létu lífið og tveir eru særðir. Erlent 9. október 2019 17:29
Tveir látnir eftir skotárás í Halle Lögregla í Þýskalandi segir að tveir séu látnir hið minnsta og margir hafi særst í eftir skotárás í bænum Halle fyrr í dag. Erlent 9. október 2019 11:40
Schweinsteiger leggur skóna á hilluna Þýska goðsögnin Bastian Schweinsteiger tilkynnti í dag að hann hefði ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir ákaflega farsælan feril. Fótbolti 8. október 2019 14:57
Útiloka samkomulag um Brexit eftir símtal Johnson og Merkel Þýska ríkisstjórnin hefur ekki gefið út lýsingu á símtali Johnson og Merkel en evrópskur embættismaður vefengir lýsingar bresku ríkisstjórnarinnar á ummælum Merkel. Erlent 8. október 2019 10:43
Hundruð loftslagsaðgerðasinna handteknir um allan heim Hundruð aðgerðarsinna, sem eru meðlimir í Extinction Rebellion hreyfingunni, voru handteknir á mótmælum sem fóru fram úti um allan heim. Erlent 7. október 2019 19:12