Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Hjörvar Ólafsson skrifar 23. október 2026 19:54 Breiðablik - ÍBV Breiðablik - ÍBV besta deild kvenna knattspyrna vísir/Anton ÍBV tryggði sér þriðja sætið í Bestu-deild kvenna í fótbolta með 2-0 sigri sínum gegn Stjörnunni í lokaumferð deildarinnar á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í kvöld. Eyjakonur voru heilt yfir sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og það var því sanngjarnt þegar Olga Sevcova kom heimakonum yfir með snotru marki eftir tíu mínútna leik. Olga fékk boltann við vítateigslínuna, snéri laglega og setti boltann í fjærhornið með hnitmiðuðu skoti. Allison Patricia Clark tvöfaldaði svo forystu ÍBV undir lok fyrri hálfleiks. Ágústa María Valtýsdóttir renndi þá boltanum inn fyrir vörn Stjörnunnar á Allison sem kláraði færið með góðu skoti. Bæði lið fengu fín færi til þess að bæta við mörkum í seinni hálfleik þá sérstaklega ÍBV. Fridrikka Marie Clementsen komst næst því þegar hún átti skot í stöngina. Niðurstaðan 2-0 sigur ÍBV sem endar með 33 stig í þriðja sæti deildarinnar. Það verður að teljast vel af sér vikið einkum og sér í lagi þegar litið er til þess að Eyjakonur voru nýliðar á þessari leiktíð. Stjarnan hafnar aftur á móti í sjötta sæti með 27 stig. Atvik leiksins Mörkin tvö stóðu upp úr í þessum annars flotta og skemmtilega fótboltaleik tveggja liða sem mættu til leiks með það í huga að spila blússandi sóknarbolta. Stjörnur og skúrkar Olga Sevcova var hættuleg á vinstri kantinum og braut ísinn fyrir Eyjaliðið. Fridrikka Marie Clementsen var svo iðin við að búa til hættulegur stöður á miðsvæðinu og hægra megin á vellinum. Allison Patricia Clark skapaði svo nokkur góð færi fyrir utan markið sem hún skoraði. Ágústa María Valtýsdóttir var eins og klettur í vörn ÍBV og gerði vel í uppspili liðsins. Hrefna Jónsdóttir var skeinuhætt á hægri vængnum hjá Stjörnunni og Ingibjörg Lucia Ragnarsdóttir var öflug inni á miðsvæðinu. Dómarar leiksins Dómarar leiksins, þeir Ásmundur Þór Sveinsson, Nour Natan Ninir, Heimir Árni Erlendsson og Bryngeir Valdimarsson áttu fremur náðugan dag og létu leikinn flæða vel. Þeir fá átta í einkunn fyrir góða ferð til Vestmannaeyja og vel unninn störf. Stemming og umgjörð Fallegt haustkvöld í Vestmanneyjum og léttur andi á vellinum. Bæði innan vallar og utan hans. Góður endir á flottu keppnistímabili hjá Eyjaliðinu. Besta deild kvenna ÍBV Stjarnan