Leik lokið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni

Gunnar Berg Stefánsson skrifar
Þróttur - Breiðablik Besta deild kvenna Haust 2026
Þróttur - Breiðablik Besta deild kvenna Haust 2026 vísir/Diego

Bikarmeistarar Þróttar enduðu tímabilið á 3-2 sigri á Grindavík/Njarðvík en liðin sem mættust í bikarúrslitaleiknum mættust einnig í lokaumferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Það var markalaust í hálfleik en mörkunum rigndi inn í þeim seinni. Þróttur endar í fjórða sæti, stigi á eftir ÍBV.

Sierra Marie Lelii skoraði tvö mörk á upphafsmínútum seinni hálfleiks og hin unga Bríet Fjóla Bjarnadóttir skoraði síðan sitt áttunda mark í úrslitakeppninni. Fyrra mark Suðurnesjakvenna var sjálfsmark en hitt kom úr vítaspyrnu.

Bríet Fjóla er ein efnilegasta knattspyrnukona landsins.KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ ÞRÓTTUR

Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“

Bríet Fjóla Bjarnadóttir, leikmaður Þróttar, var ánægð eftir 3-2 sigur liðsins gegn Grindavík/Njarðvík í lokaumferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Hún segir mikla baráttu hafa einkennt leikinn en er jafnframt ánægð með eigin frammistöðu að undanförnu.

„Mér fannst við mjög góðar. Það var mikil barátta og þetta var mjög jafn leikur langt fram í leik,“ sagði Bríet Fjóla eftir leik.

Bríet hefur verið sjóðandi heit fyrir framan markið að undanförnu og segir aukið sjálfstraust eiga stóran þátt í því.

„Mér finnst bara sjálfstraustið mitt hafa komið til baka. Ég var ekki alveg að finna mig fyrr á tímabilinu en mér finnst ég passa mjög vel inn í hópinn hérna hjá Þrótti og mér líður mjög vel.“

Bríet staðfesti jafnframt að hún ætlaði að halda áfram hjá Þrótti á næstu leiktíð.

„Já, ég ætla að vera áfram hjá Þrótti. Mér líður mjög vel hérna og ég ætla bara að halda áfram að þróast hér. Svo veit ég ekki hvað gerist.“

Jóhann Kristinn Gunnarsson er þjálfari Þróttar.vísir/Anton

Jóhann Kristinn: „Ég er gríðarlega þakklátur þeim“

Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, var ánægður eftir sigur liðsins á Grindavík/Njarðvík í lokaumferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Hann segir liðið hafa tekið miklum framförum eftir erfiða byrjun á tímabilinu.

„Það var gott að klára þetta með sigri,“ sagði Jóhann Kristinn eftir leik.

Jóhann sagði að þrátt fyrir erfiða byrjun á tímabilinu hefði liðið smám saman fundið taktinn. Honum þætti leikmennirnir nú vera að finna þær leiðir sem lagt hefði verið upp með og að liðið væri orðið betur tengt inni á vellinum.

Hann sagði jafnframt bikarmeistaratitilinn standa upp úr ásamt því hvernig leikmenn hefðu unnið sig út úr erfiðum vikum og mánuðum.

„Mér finnst þær vera til fyrirmyndar og ég er gríðarlega þakklátur þeim,“ sagði Jóhann Kristinn.

Þjálfarinn staðfesti að hann yrði áfram hjá Þrótti á næsta tímabili og sagðist spenntur fyrir framhaldinu.

„Ég sé hvað við getum gert og mér finnst ekki vera langt í það. Mér finnst ekki vera stór skref sem eru eftir.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira