Skeiða- og Gnúp­verja­hreppur

Skeiða- og Gnúp­verja­hreppur

Mannfjöldi: 617 (2025). Flatarmál: 2.232 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Árnes, Brautarholt á Skeiðum.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Laga þurfi fegurðarskynið að orkuskiptum

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis- orku og loftslagsráðherra segir að laga þurfi fegurðarskynið að orkuskiptabyltingunni. Hann kveðst hæstánægður með ferlið og segir engan afslátt hafa verið gefinn af umhverfiskröfum eða samráði við nærsamfélagið.

Innlent
Fréttamynd

Virkjunar­leyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur gefið grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Um er að ræða aðra atrennu en fyrra leyfi var ógilt í Hæstarétti síðasta sumar og í kjölfarið var nýtt leyfi gefið út á grundvelli nýrra laga.

Innlent
Fréttamynd

Bláa lónið fær sér­leyfi og lóð í Þjórs­ár­dal

Í dag voru sérleyfis- og lóðaleigusamningar á milli íslenska ríkisins og Bláa Lónsins hf. um uppbyggingu og rekstur þjónustumiðstöðvar og annarrar atvinnustarfsemi í ferðaþjónustu í Þjórsárdal undirritaðir. Samningarnir eru fyrsta skrefið í uppbyggingu gestastofu í mynni Þjórsárdals þar sem fjölbreytt þjónusta verður í boði fyrir ferðamenn en dalurinn er sagður eitt merkasta náttúru- og sögusvæði Íslands.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Þetta er bara sann­girnis­mál“

Þó sveitarfélögin á Suðurlandi séu mörg hver stór þá eru þau ekki endilega fjölmenn. Málefnin þar geta þó snert marga og þannig er staðan í Skeiða- og Gnúpverjahreppi en það er eitt af sveitarfélögunum á svæðinu sem hefur ákvarðanarétt varðandi Hvammsvirkjun. Í sveitastjórn hefur oft á tíðum verið hart tekist á um málið.

Innlent
Fréttamynd

Fresta leit að ferða­manninum

Leit að erlendum ferðamanni sem skilaði sér ekki á gististað í gær, eftir að hann fór að Háafossi í Þjórsárdal, hefur ekki borið árangur. Lögreglan á Suðurlandi segir að leitinni verði frestað þar til nýjar vísbendingar koma fram.

Innlent
Fréttamynd

Leita enn að ferða­manninum

Lögreglan á Suðurlandi og björgunarsveitir hafa hægt og rólega útvíkkað svæðið þar sem leitað er að erlendum ferðamanni, sem skilaði sér ekki á gististað í gær, að sögn upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Leitað verður fram á kvöld, að þar til að maðurinn finnst.

Innlent
Fréttamynd

Ár­nesingur og Rang­æingur grafa fyrir Hvammsvirkjun

Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar.

Innlent
Fréttamynd

Plóma mjólkar mest allra kúa og setti Ís­lands­met

Kýrin Plóma er engin venjuleg kýr því hún mjólkar svo mikið að sjaldan eða aldrei hefur annað sést hér á landi, enda sló Plóma Íslandsmet í afurðum á síðasta ári. Plóma er líka alltaf í góðu skapi og finnst fátt skemmtilegra en að hoppa og skoppa í fjósinu sínu.

Innlent