Múlaþing

Múlaþing

Mannfjöldi: 5.232 (2025). Flatarmál: 10.671 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Brúarás, Eiðar, Fellabær, Hallormsstaður, Djúpivogur, Borgarfjörður eystri.


Fréttamynd

Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni

Fjölmargir hafa gert sér leið austur í land til að njóta í veðurblíðunni þar um helgina. Sveitarstjóri Múlaþings segir það frábært fyrir sveitarfélagið að fá svo gott veður. 

Innlent
Fréttamynd

„Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“

Spáð er allt að tuttugu og sex gráðum og bjartviðri á Austurlandi um helgina og landinn virðist streyma þangað í von um nokkra sólardaga. Fáir flugmiðar eru óseldir frá Reykjavíkurflugvelli til Egilsstaða um helgina og tjaldsvæðin fyrir austan eru að fyllast. 

Innlent
Fréttamynd

Hættu­á­stand skapist eftir frá­hvarf 3G

Byggðaráð Múlaþings lýsir þungum áhyggjum af skerðingu fjarskipta í sveitarfélaginu í kjölfar þess að slökkt var á 2G og 3G sendum. Sveitarfélagið er sérlega víðfeðmt og teygir sig frá Borgarfirði eystri suður á Djúpavog.

Innlent
Fréttamynd

Mikil­vægi Fjarðarheiðarganga

Samgöngur eru ein af mikilvægustu undirstöðum samfélagsins. Þær tengja saman byggðir, auðvelda aðgengi að atvinnu, menntun og heilbrigðisþjónustu og skapa forsendur fyrir öflugu atvinnulífi.

Skoðun
Fréttamynd

Saka ríkis­stjórnina um svik

Sveitarstjórn Múlaþings sakar ríkisstjórnina um svik með því að samþykkja samgönguáætlun þar sem Fjarðarheiðargöng eru sett aftar í forgangsröðunina. 

Innlent
Fréttamynd

„Hann var orðinn svo of­boðs­lega kaldur“

Sigurgeir Svanbergsson sjósundskappi varð að ljúka sundi niður Lagarfljót snemma vegna ofkælingar en fljótið var kaldara en búist var við. Hann hóf sundið niður Lagarfljót um klukkan níu í gærkvöldi, mánudaginn 15. júní, en áætlað hafði verið að það tæki um sólarhring að synda þessa leið sem er um fimmtíu kílómetra löng. Tilgangurinn var að vekja athygli á þjónustu Píeta samtakanna á Austurlandi og um land allt.

Innlent
Fréttamynd

Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi

Alexandros Katsanos, grískur karlmaður á fimmtugsaldri, hefur verið ákærður fyrir að flytja 43 kíló af sterku kókaíni til landsins með Norrænu í mars síðastliðnum. Um er að ræða eitt stærsta kókaínsmygl Íslandssögunnar.

Innlent
Fréttamynd

Ætlar að synda niður Lagar­fljót fyrstur manna

Sigurgeir Svanbergsson sjósundskappi stefnir á sögulegt sund niður Lagarfljót. Tímasetning er ekki enn ljós en kappinn stefnir á að láta til skarar skríða um leið og veður leyfir eftir sjómannadag. Tilgangurinn er að vekja athygli á þjónustu Píetasamtakanna á Austurlandi og um land allt.

Innlent
Fréttamynd

Syngjandi dúx

Ína Berglind Guðmundsdóttir er dúx Menntaskólans á Egilsstöðum. Hún brautskráðist af náttúrufræðibraut með meðaleinkunnina 9,92. Alls voru 47 nemendur brautskráðir frá ME laugardaginn 23. maí. 

Innlent
Fréttamynd

Sjálf­stæðis­menn og Fram­sókn í eina sæng í Múla­þingi

Oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í Múlaþingi skrifuðu í dag undir málefnasamning og staðfestu myndun nýs meirihluta þar. Samningurinn er sagður byggja á sameiginlegri sýn um öflugt samfélaga, ábyrga fjármálastjórn, eflingu atvinnulífs og áframhaldandi uppbyggingar.

Innlent
Fréttamynd

Telja frum­varp um sjókvía­eldi stangast á við gildandi lög

Forsvarsmenn félagsins VÁ! – félags um um vernd fjarðar mættu í dag á fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. Tilefnið er frumvarp til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga. Fulltrúar VÁ! bentu á að um 70 prósent af núverandi sjókvíaeldi er ólögmætt vegna þess að starfsemi þess gengur í berhögg við núgildandi lög um vitamál.

Innlent
Fréttamynd

Hyggjast halda sam­starfinu á­fram

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkur hafa formlega hafið viðræður um myndun meirihluta í Múlaþingi. Flokkarnir hafa unnið saman síðustu kjörtímabil.

Innlent
Fréttamynd

Árni skóla­meistari heldur em­bættinu

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Árna Ólason í embætti skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi. Hann hefur sinnt embættinu undanfarin tíu ár en hann heyrði af því í útvarpinu nýverið að til stæði að auglýsa embættið

Innlent
Fréttamynd

Sé gríðar­lega nei­kvætt fyrir sam­fé­lagið í heild sinni

Í nýjasta þætti af Ísland í dag var ferðinni heitið á Austurland. Þar virðist sem samgöngumál, þá sérstaklega áform um Fjarðarheiðargöng, brenni á íbúum. Annars var algengt að fólk nefndi skipulagsmál, þjónustu við aldraða og skólamál aðspurt hvað væri aðkallandi. Í kjölfar breytinga á tilhögun leikskólavistar í Fjarðabyggð hafa konur tekið á sig að minnka starfshlutföll sín.

Innlent
Fréttamynd

Með eina þriggja mánaða í vinnunni

Ungt par sem tók nýlega við rekstri veitingastaðarins á Skriðuklaustri býður upp á strangheiðarlegan íslenskan mat og segir móttökurnar hafa verið vonum framar. Þriggja mánaða dóttirin sem mætir með þeim á vaktina unir sér vel.

Lífið
Fréttamynd

Oddvitaáskorunin: Nína ekki eins mið­aldra

Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.

Lífið
Fréttamynd

Er byggða­stefna á Ís­landi?

Af mörgum ómerkilegum plöggum ríkisvaldsins hljóta byggðaáætlanir og aðgerðaáætlanir þeirra að vera eitt það alla ómerkilegasta. Í landi hvar leitun er að annarri eins bjögun á íbúadreifingu er niðurlægjandi fyrir landsbyggðirnar að litlum 650 milljónum sé varið í byggðamál.

Skoðun
Fréttamynd

Stefni í sömu átt og Sví­þjóð

Aukinn innflutningur fíkniefna með Norrænu veldur verulegum áhyggjum. Lögreglan segir málin tengjast skipulagðri glæpastarfsemi og að grípa verði inn í áður en ástandið versni.

Innlent
Fréttamynd

Lög­reglan á Austur­landi kom að hand­töku fimm­tíu

Um fimmtíu voru handteknir í samræmdri lögregluaðgerð evrópskra yfirvalda gegn skipulagðri brotastarfsemi á svæðinu kringum Eystrasalt í síðustu viku. Verðmæti upp á rétt um 70 milljónir króna voru haldlögð. Lögreglumaður frá Lögreglunni á Austurlandi tók þátt í aðgerðunum.

Innlent
Fréttamynd

Lýðheilsa og leiðin til Siglu­fjarðar

„Nú berast fréttir af einu fjalli enn til að bora og aka í gegnum til Siglufjarðar“, sagði góður vinur á árdögum Valkyrjustjórnarinnar. Við sammæltumst um að ábyrg stjórnsýsla og meðferð skattfjár tryggðu að fullrannsökuðum Fjarðarheiðargöngum yrði ekki frestað fyrir órannsökuð Fljótagöng.

Skoðun
Fréttamynd

Við stöndum vörð um Múla­þing

Starf sveitarstjórnarfulltrúa er umfangsmikið og tekur á fjölmörgum þáttum er varðar stefnu og rekstur sveitarfélagsins, þjónustu við fólk og vellíðan fólks í daglegu lífi, tækifæri til atvinnu og tækifæri atvinnulífsins til að vaxa og dafna.

Skoðun
Fréttamynd

Árni vill stöðuna þrátt fyrir aug­lýsingu

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt lista yfir umsækjendur um þrjú embætti skólameistara, sem auglýst voru laus til umsóknar þann 19. mars síðastliðinn. Meðal tveggja umsækjenda um embætti skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum er núverandi skólameistari skólans, sem heyrði í fréttum að staða hans yrði auglýst.

Innlent