Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bretar rannsaka meintan þátt Deutsche bank í brotum Kaupþings Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud office, rannsakar hvort starfsmenn Deutche bank hafi tekið þátt í meintri markaðsmisnotkun í viðskiptum með skuldatryggingar í Kaupþingi. 7.6.2010 03:30
Skattaafsláttur gagnast sprotafyrirtækjum lítið Skattaafsláttur einstaklinga vegna kaupa á hlutafé í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum skilar litlu. „Þetta kerfi er meingallað,“ segir Eggert Claessen, framkvæmdastjóri fjárfestingasjóðsins Frumtaks. Hann gagnrýndi afsláttinn harðlega í málstofu Kauphallarinnar í síðustu viku og sagði um of lágar upphæðir að ræða. Farsælla væri að veita afslátt vegna kaupa í sjóðum, sem fjárfesti í nokkrum fyrirtækjum. 7.6.2010 00:01
Tillögur skoðaðar af alvöru „Þessar tillögur eru allrar athygli verðar og á síðasta fundi nefndarinnar tók ég mig nú reyndar til og bað nefndarmenn að taka eintak af greininni til frekari úrvinnslu,“ sagði Maríanna Jónasdóttir sem er í forsvari fyrir starfshóp fjármálaráðuneytisins sem skoða á skattkerfisbreytingar. Hún vísar þar til tillagna sem Jón Steinsson, hagfræðingur við Columbia-háskóla í Bandaríkjunum, birti í grein í Fréttablaðinu á miðvikudaginn. 5.6.2010 09:15
Rétt ákvörðun tekin 2007 „Þetta eru mjög jákvæð teikn, svona tölur höfum við ekki séð frá 1970," segir Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra. 5.6.2010 06:00
Þorskveiðin aukin um tíu þúsund tonn Hafrannsóknastofnun leggur til að þorskkvóti verði aukinn um 10.000 tonn á næsta fiskveiðiári þannig að leyfilegur hámarksafli verði 160.000 tonn. 5.6.2010 05:45
Úrvalsvísitalan stóð í stað Úrvalsvísitalan stóð í stað í dag og er 904,5 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá verðbréfavefnum Keldunni. Veltan nam 74 milljónum króna. 4.6.2010 17:19
Kaupandi Skeljungs maki stjórnarformannsins Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, sem tilkynnt var um að hafi keypt 49% hlut í Skeljungi í dag, er aðeins 33 ára gömul en áður var hún framkvæmdarstjóri fjárstýringu Straums-Burðaráss. 4.6.2010 14:26
Áliðnaðurinn keyrir áfram jákvæð vöruskipti Vöruskiptin við útlönd voru hagstæð um tæplega 16,8 milljarða kr. í maí síðastliðnum samkvæmt bráðabirgðatölum sem Hagstofan birti nú í morgun. Að baki þessu er mikil aukning á útflutningi iðnaðarvara og þá einkum áls. 4.6.2010 11:58
Veiking evru bætir erlenda stöðu þjóðarbúsins Nokkur breyting hefur orðið til batnaðar í erlendri stöðu þjóðarbúsins samkvæmt tölum Seðlabankans sem birtar voru í gær. Þannig var hrein staða við útlönd neikvæð um 5.895 milljarða kr. í lok fyrsta ársfjórðungs 2010 og batnar um 400 milljarða kr. frá því í lok síðastliðins árs, þá aðallega vegna veikingar evrunnar. 4.6.2010 11:51
Iceland Express flýgur til New York Iceland Express hefur hafið áætlunarflug til New York og þar með er í fyrsta skipti komin samkeppni á flugleiðinni milli Íslands og New York, segir í tilkynningu. 4.6.2010 11:30
Stefnt að frekari eignasölu hjá Íslandsbanka Íslandsbanki hefur selt 49% hlut í Skeljungi til Svanhildar Nönnu Vigfúsdóttur, en hún er hluthafi í Skel Investments sem er eigandi 51% hlutar í Skeljungi. 4.6.2010 11:22
FME og sérstakur saksóknari berjast um starfsfólk Forstjóri Fjármálaeftirlitisins, Gunnar Andersen, sagðist aðspurður í Morgunútvarpinu á RÚV í morgun, að hann væri ekki viss hvort það væru til nógu margir sérfræðingar til þess að ráða í þær tólf stöður sem FME auglýsir í þessa daganna. 4.6.2010 10:27
Atvinnuleysisbætur innan við tveir milljarðar fyrir maí Þann 1. júni greiddi Vinnumálastofnun rúmlega 1,9 milljarð króna í atvinnuleysistryggingar fyrir tímabilið 20. apríl til 19. maí. Greitt var til 15.700 einstaklinga. 4.6.2010 09:54
Mánabergið komið úr 165 milljóna karfatúr Mánaberg ÓF 42 er nú að koma til hafnar eftir úthafskarfaveiði á Reykjaneshrygg. Veiðiferðin sem hófst 13. maí gekk vel og heildarafli var ca. 650 tonn og aflaverðmæti ca. 165 milljónir króna. Skipið kom inn til millilöndunar 27. maí. 4.6.2010 09:44
Heimilin juku kreditkortaveltu sína um 8,8% Kreditkortavelta heimila jókst um 8,8% í janúar-apríl í ár miðað við janúar-apríl í fyrra. Debetkortavelta jókst um 6,0% á sama tíma. Samtals jókst greiðslukortavelta heimila í janúar-apríl 2010 um 7,4%. 4.6.2010 09:26
Skel Investments keypti 49% hlutinn í Skeljungi Miðengi ehf., eignarhaldsfélag Íslandsbanka, hefur selt 49% hlut sinn í Skeljungi og tengdum félögum, en félögin voru sett í opið söluferli 24. nóvember sl. Kaupandi er Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, en hún er hluthafi í Skel Investments ehf. sem er eigandi 51% hlutar í félögunum. Kaupverðið er trúnaðarmál. 4.6.2010 09:20
Gistinóttum fækkar um 8% í apríl Gistinætur á hótelum í apríl síðastliðnum voru 85.600 en voru 93.100 í sama mánuði árið 2009, segir í frétt Hagstofu Íslands. 4.6.2010 09:07
Vöruskiptin hagstæð um 16,8 milljarða í maí Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir maí 2010 var útflutningur 52,4 milljarðar króna og innflutningur 35,6 milljarðar króna. 4.6.2010 09:00
Skoða lögmæti fjármögnunar ríkisbankanna Verið er að kanna hvort endurfjármögnun bankanna síðasta sumar stangist á við reglur Evrópska Efnahagssvæðisins (EES) og flokkist sem ólöglegur ríkisstuðningur. ESA (Eftirlitstofnun EFTA) er nú með málið til skoðunar. 4.6.2010 06:00
Stefna að opnu og gagnsæju ferli Arion banki leggur á það mat í hverju máli fyrir sig hvaða kostur sé heppilegastur þegar koma á í verð eignarhlutum í fyrirtækjum sem bankinn hefur þurft að taka yfir í þeim tilgangi að tryggja fullnustu eigna. 4.6.2010 05:00
Verð hækkar þar til evra fer í 140 krónur Neytendur þurfa að bíða þar til evran lækkar í um 140 krónur áður en verðlag kemst í jafnvægi. Samtök atvinnulífsins hafa reyndar talið að enn sé inni verðhækkun upp á um tíu prósent. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, formaður samtakanna. 4.6.2010 05:00
Viðskiptajöfnuður óhagstæður um 27 milljarða Viðskiptajöfnuður var óhagstæður um 27 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 1 milljarð afgang á sama tímabili árið áður. Þetta kemur fram í frétt frá Seðlabankanum. 3.6.2010 16:29
Landsbankinn uppfyllir kröfur FME Landsbankinn vill árétta vegna þess sem fram kemur í nýrri skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika sem kynnt var í gær, og sagt hefur verið frá í fréttum, að bankinn uppfyllir allar kröfur FME um stórar áhættuskuldbindingar, segir í yfirlýsingu. 3.6.2010 15:59
GAMMA: Skuldabréfavísitalan hækkaði Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,2% í dag í 6,3 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,2% í 2,3 ma. viðskiptum og GAMMAxi: 3.6.2010 15:56
Ávöxtunarkrafa á aflahlutdeild hefur minnkað verulega frá 1992 Óvissa um framtíð stjórnunar fiskveiða getur bæði haft áhrif á verð á aflamarki og aflahlutdeildum. Mikilvægt er að lágmarka þá óvissu og fastmóta stefnu til framtíðar sem ekki er hvikað frá. Þetta kemur fram í skýrslu frá Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu sem ber heitið Skilvirkni markaða fyrir aflaheimildir. 3.6.2010 13:49
Kröfur Landsbankans á Straum ekki forgangskröfur Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms um að kröfur Landsbankans upp á 48,5 milljarða kr. á hendur Straumi séu ekki forgangskröfur. 3.6.2010 12:35
Tæp 800 fyrirtæki gjaldþrota með 400 milljarða skuldir 780 fyrirtæki með útistandandi skuldir upp á 400 milljarða króna urðu gjaldþrota á síðasta ári, en árangurslaus fjárnám hafa verið gerð í 1.500 fyrirtækjum til viðbótar. 3.6.2010 12:20
Spáir jákvæðum tóni hjá matsfyrirtækjum í garð Íslands Greining Íslandsbanka telur líklegt að tónninn hjá matsfyrirtækjunum í garð Íslands á næstunni verði frekar jákvæðari en áður. Telur greiningin ólíklegt að lánshæfismat ríkissjóðs versni, nema verulegt bakslag verði í þróun gjaldeyrismála hér á landi og lausn Icesave deilunnar dragist enn á langinn. 3.6.2010 12:06
FME stóreflir rannsóknir sínar á bankahruninu Fjármálaeftirlitið (FME) mun á næstu vikum og mánuðum stórefla rannsóknarhóp sinn sem sinnir athugunum á mögulegum brotum í tengslum við bankahrunið. 3.6.2010 11:56
Tæp 15% fækkun erlendra gesta í maí Um 28 þúsund erlendir gestir fóru frá landinu í maímánuði síðastliðnum samkvæmt brottfarartalningum Ferðamálastofu í Leifsstöð og er því um að ræða 19% fækkun frá því í maí á síðasta ári. Að meðtöldum 1.300 brottförum erlendra gesta um Akureyrarflugvöll nemur fækkun erlendra gesta 14,8% milli ára. 3.6.2010 11:45
Velta á gjaldeyrismarkaði 3 milljarðar í maí Veltan á millibankamarkaðinum með gjaldeyri nam rúmum 3 milljörðum kr. í maí. Er þetta sexfalt meiri velta en var í apríl þegar hún nam rétt rúmum 500 milljónum kr. 3.6.2010 11:13
Seðlabankinn opinn fyrir gjaldmiðlaskiptasamningum Seðlabankinn segir að ekki sé loku fyrir það skotið að hann komi tímabundið að lausn mála varðandi misvægi gjaldeyriseigna og -skulda. Yrði það að öllum líkindum gert með vaxta- og gjaldmiðlaskiptasamningum af einhverjum toga þar sem bankinn yrði milliliður á milli bankanna og innlendra aðila með öfugt ójafnvægi. 3.6.2010 10:02
Stjórn Spkef styrkir innra eftirlit Stjórn SpKef sparisjóðs hefur gengið frá ráðningu Mjallar Flosadóttur í stöðu innri endurskoðanda sparisjóðsins. Mjöll mun taka við af Evu Stefánsdóttur sem senn fer í barneignarleyfi. 3.6.2010 09:14
Áhætta banka er yfir mörkum Fjármálaeftirlitsins Stórar áhættuskuldbindingar bankanna eru yfir leyfilegum mörkum, segir í Fjármálastöðugleika 2010, nýju riti Seðlabankans. 3.6.2010 00:01
Áhætta fylgir markaðsskráningu Viðskipti Mikill ábyrgðarhlutur er að setja fyrirtæki í almenna sölu á hlutabréfamarkaði og bjóða þannig öðrum en fagfjárfestum að kaupa vegna áhættunnar sem fylgir slíkum kaupum, segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. 3.6.2010 00:01
Auður reisir skjaldborg um kröfuhafa Auður Capital hefur stofnað nokkur fyrirtæki sem bera nöfnin Skjaldborg kröfuhafafélag og svo númer hvað það er; 1, 2, 3 og þar fram eftir götunum. Margir hugsa ef til vill í kjölfarið til skjaldborgarinnar margumtöluðu um heimilin, sem þetta er jú ekki. 2.6.2010 16:41
Skuldabréfavísitölur hækkuðu lítillega Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,1% í dag í 12,2 milljarða króna viðskiptum og er 189 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá GAM Management. 2.6.2010 17:09
Hlutabréf Marels hækka um 1,3 prósent Gengi hlutabréfa Marels hækkaði um 1,3 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgdi gengi bréfa Össurar, sem fór upp um 0,82 prósent. Önnur hlutabréf á Aðallista hreyfðust ekki úr stað. 2.6.2010 16:59
Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,7% Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,7% í dag og er 891 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá verðbréfavefnum Keldunni. Marel hækkaði um 1,3% og Össur um 0,8%. Ekkert félag lækkaði. 2.6.2010 16:27
Seðlabankastjóri: Stutt í botninn Líklega er stutt í að botninum í efnahagsumsvifum sé náð, segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Hann segir þó að efnahagsbatinn hafi tafist og „forsendur varanlegs hagvaxtar séu um sumt enn ótraustar." 2.6.2010 15:36
Íslandsbanki afskrifar 4 milljarða kúlulán starfsmanna Kúlulán níu núverandi starfsmanna Íslandsbanka, uppá ríflega fjóra milljarða króna, verða afskrifuð. Starfsmennirnir fengu lánin hjá Glitni til hlutafjárkaupa í bankanum sjálfum í gegnum einkahlutafélög. Stjórn Íslandsbanka hefur óskað eftir því að starfsmennirnir gefi félög sín upp til gjaldþrotaskipta, segir í frétt RÚV. 2.6.2010 15:03
Landsbankinn telur launakjör starfsmanna eðlileg Landsbankinn telur launakjör starfsmanna sinna, sem eru með hærri laun en forsætisráðherra, eðlileg og vísar til eigendastefnu ríkisins sem gefin var út af Bankasýslunni á síðasta ári. 2.6.2010 12:01
Dæmdir fyrir að selja ýsu sem þorsk og keilu sem steinbít Starfsmaður og framkvæmdastjóri fyrirtækisins Nordic Gourmet hafa verið dæmdir í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að tilgreina ranglega allt að þúsund tonn af sjávarafurðum til útflutnings, en þeir merktu ýsu sem þorsk og keilu sem steinbít. Þannig blekktu þeir útlendinga en brotin eru talin alvarleg. 2.6.2010 11:58
Segir bleikjueldi Samherja vaxa hratt „Markaðssetning er kostnaðarsöm og eitt árið var 19% af veltunni varið til markaðs- og kynningastarfs á bleikjunni sem var og er víða óþekkt vara," sagði Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri fiskeldis Samherja, á almennum atvinnumálafundi fyrirtækisins á Akureyri. 2.6.2010 11:02
Mjög góð aflabrögð á karfamiðunum Aflabrögð hafa verið mjög góð á karfamiðunum hjá togurum HB Granda og má heita að full vinnsla hafi verið um borð í skipunum frá fyrsta degi vertíðarinnar en afkastageta þeirra er um 40 til 50 tonn af fiski upp úr sjó á sólarhring. 2.6.2010 10:29