Viðskipti innlent

Iceland Express flýgur til New York

Farþegar í fyrstu ferð Iceland Express til New York fengu allir epli í tilefni dagsins.
Farþegar í fyrstu ferð Iceland Express til New York fengu allir epli í tilefni dagsins.

Iceland Express hefur hafið áætlunarflug til New York og þar með er í fyrsta skipti komin samkeppni á flugleiðinni milli Íslands og New York, segir í tilkynningu.

Fyrsta ferðin var farin á þriðjudag.  Bókanir eru mjög góðar og umfram vonir  og hefur flugið gengið afar vel þessa þrjá fyrstu daga, segir í tilkynningunni.

Í sumar verður flogið fjórum sinnum í viku,  á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum. 

Flogið er út síðdegis og komið aftur heim snemma morguns.

Flogið er til og frá Newark flugvellinum, sem er nýlegur flugvöllur og sá fimmti stærsti í Bandaríkjunum. 

Þaðan eru 26 kílómetrar inn til Manhattan, en Newark er sá flugvöllur í Bandaríkjunum, sem býður uppá flest tengiflug innanlands.  Flugvöllurinn er afar vel skipulagður og því auðvelt fyrir ókunnuga að komast ferða sinna.  Mjög góðar samgöngur eru milli flugvallarins og Manhattan, tíðar ferðir fram og til baka  og tekur ferðin inn til Manhattan með lest um 20 mínútur.  Ferðin aðra leið með lestinni kostar 15 dollara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×