Héraðsdómur Reykjaness slær því föstu í dómsniðurstöðu sinni að framkvæmdastjóri fiskvinnslunnar Nordic Gourmet í Sandgerði og matsmaður og verkstjóri hjá fyrirtækinu hafi brotið lög um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða með því að hafa ranglega merkt allt að 488 tonn af ýsu og löngu sem þorsk og allt að 653 tonn af keilu sem steinbít.
Fiskistofa kærði tvímenninganna í júní árið 2007 til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra eftir að kvörtun barst frá kaupanda í Þýskalandi sem hafði átt viðskipti við Nordic Gourmet. Í kjölfarið hóf Fiskistofa athugun á fyrirtækinu og kom fljótt í ljós að fyrirtækið seldi mikið magn af þorski og steinbít en keypti miklu minna af þeim sjávarafurðum. Með þessu sparaði fyrirtækið fjármuni í hráefniskaupum með því að láta lít út fyrir að afurðir væru aðrar og verðmeiri en raunin var.
Hinir ákærðu neituðu báðir að gefa skýrslu fyrir dómi en við skýrslutöku hjá lögreglu gekkst framkvæmdastjórinn við því að hafa keypt löngu og ýsu og selt sem þorsk. Þá kvað hann alla keilu hafa verið selda sem steinbít. Hann sagði aðstæður á mörkuðum og kvótaleysi fiskvinnslunnar hefðu valdið því að fyrirtækið fór þessa leið.
Yfirlögfræðingur Fiskistofu sagði við aðalmeðferð málsins að brot tvímenninganna væru alvarleg. Þeir hefðu blekkt kaupendur og háttsemin gæti skaðað íslenskan sjávarútveg því útlendir kaupendur þyrftu að geta treyst merkingum. Ákærðu eru taldir hafa sparað sér 175 milljónir króna með þessum blekkingum.
Með hliðsjón af hreinu sakarvottorði hinna ákærðu og þeirra tafa sem urðu á rannsókn málsins hjá lögreglu þótti refsing þeirra ákveðin hæfileg átta mánaða skilorðsbundið fangelsi.