Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gengið verður nærri gjaldeyrisforðanum á næsta ári Í Markaðsfréttum Íslenskra verðbréfa er fjallað um að töluvert hefur verið rætt um gjalddaga skulda ríkissjóðs og orkufyrirtækja á næsta og þar næsta ári. Í september á næsta ári er 300 milljón evra sambankalán ríkissjóðs á gjalddaga og í apríl 2012 er 250 milljón evra lán á gjalddaga. 2.3.2010 09:17
Össur hf. greiði stjórnarformanni 9,6 milljónir í árslaun Á aðalfundi Össurar hf. sem haldinn verður í næstu viku verður gerð tillaga um að árslaun stjórnarformanns félagsins fyrir síðasta ár nemi 75.000 dollurum eða um 9,6 milljónum kr. 2.3.2010 08:11
Gífurlegar afleiðingar fyrir Evrópu ef Icesave leysist ekki John McFall formaður fjárlaganefndar breska þingins segir að það verði að nást niðurstaða í Icesave málinu. Ef slíkt niðurstaða næst ekki hefði það gífurlegar afleiðingar fyrir Evrópu. 2.3.2010 07:56
Geysir Green Energy selur hlut sinn í bandarísku jarðhitafélagi Geysir Green Energy (Geysir), hefur selt hlut sinn í bandaríska jarðhitafélaginu Ram Power Corp. Salan er hluti af markvissri áætlun til að stuðla að lækkun skulda félagsins samkvæmt tilkynningu frá félaginu. 1.3.2010 23:33
Gruna dótturfélög íslensku bankanna um að hafa falið arðgreiðslur Grunur leikur á að dótturfélög íslensku bankanna í Lúxemborg hafi falið arðgreiðslur til að raunverulegir eigendur félaganna sem fengu arðinn kæmust hjá því að greiða skatt hér á landi. 1.3.2010 18:38
Eyrir Invest selur í Össuri fyrir tæpa 3 milljarða Eyrir Invest hefur selt tæplega 17 milljón af hlutum sínum í Össuri hf. Salan nemur tæpum 3 milljörðum kr. 1.3.2010 18:58
Nettóskuldir þjóðarbúsins lækkuðu um 325 milljarða Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 8.964 milljörðum kr. í lok fjórða ársfjórðungs á síðasta ári en skuldir 14.530 milljarða kr. Hrein staða við útlönd var því neikvæð um 5.566 milljarða kr. og lækka nettó skuldir um tæpa 325 milljarða kr. á milli ársfjórðunga. 1.3.2010 18:13
Viðskiptajöfnuður óhagstæður um 13 milljarða í lok síðasta árs Viðskiptajöfnuður mældist óhagstæður um 13 milljarða kr. á fjórða ársfjórðungi, sem er 19 milljörðum kr. lakara en á fjórðungum á undan. 1.3.2010 18:03
Hlutabréf Century Aluminum hækkaði um 5,88 prósent Gengi hlutabréfa Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls á Grundartanga, hækkaði um 5,88 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgdi gengi bréfa Marels, sem hækkaði um 4,29 prósent. 1.3.2010 16:26
Hafnaði 48,5 milljarða kröfu Landsbankans sem forgangskröfu Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað kröfu Landsbanka Íslands hf., um að krafa hans, alls að fjárhæð 48.5 milljarðar kr., verði viðurkennd sem forgangskrafa í bú Straums - Burðaráss. 1.3.2010 14:16
Lilja Ólafsdóttir nýr stjórnarformaður FME Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur skipað Lilju Ólafsdóttur héraðsdómslögmann formann stjórnar Fjármálaeftirlitsins (FME), í stað Dr. Gunnars Haraldssonar hagfræðings. Gunnar óskaði lausnar frá störfum stjórnarformanns 15. febrúar síðastliðinn, en hann hverfur nú til starfa á vettvangi Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) í París. 1.3.2010 13:57
Veiðarfæralaus bátur með mesta þorskaflann á Vestfjörðum Það sem af er yfirstandandi fiskveiðiári hefur ekkert skip landað jafn miklu af þorski á Vestfjörðum og brunnbáturinn Papey eða 1044 tonn. Það sem greinir þetta „fengsæla" skip frá öðrum sem landa hér um slóðir er sú staðreynd að það er veiðarfæralaust með öllu. Allur afli þess er nefnilega sóttur í þorskeldiskvíar Hraðfrystihúsins - Gunnvarar hf. 1.3.2010 13:31
Hagnaður Íslandspósts 92 milljónir í fyrra Hagnaður varð af rekstri Íslandspósts hf. á árinu 2009 að fjárhæð 92 milljónir króna og var EBITDA um 540 milljónir króna. Heildartekjur félagsins á síðasta ári námu 6,4 milljörðum króna og drógust saman um 3,7% frá fyrra ári. 1.3.2010 13:23
Aftur snörp lækkun á skuldatryggingaálagi Íslands Í annað sinn á skömmum tíma hefur orðið snörp lækkun á skuldatryggingaálagi Íslands. Samkvæmt CMA gagnaveitunni er álagið nú komið nokkuð undir 500 punkta að nýju og stendur í 480 punktum. 1.3.2010 13:03
Lýsi fékk mikilvæga vottun á Bretlandsmarkaði Um miðjan desember síðastliðinn vottaði BSI (British Standards Institute) að gæðakerfi Lýsis uppfylli kröfur BRC staðalsins. 1.3.2010 12:16
Hagstæð kjör LSS lækka fjármagnskostnað sveitarfélaga Kjörin sem sem Lánasjóður sveitarfélaga (LSS) fékk í útboði sínu á föstudaginn voru með þeim hagstæðustu sem honum hafa staðið til boða undanfarið ár. Ætti það að öðru óbreyttu að leiða til heldur lægri fjármögnunarkostnaðar þeirra sveitarfélaga sem sækja fjármögnun sína til hans þessa dagana. 1.3.2010 11:59
Engin fyrirspurn frá Íslandi um norskt lán Margit F. Tveiten sendiherra Noregs á Íslandi segir að íslensk stjórnvöld hafi ekki lagt fram neina fyrirspurn um hvort Norðmenn væru til í að lána Íslandi fyrir Icesave til að leysa hnútinn sem kominn er í málinu. 1.3.2010 11:15
Markaðsskuldabréf bæta við sig tæpum 12 milljörðum Staða markaðsskuldabréfa í lok janúar 2010 nam 1.529 milljörðum kr. og hækkaði um 11,8 miljarða kr. í mánuðinum. 1.3.2010 10:18
Fiskiskipum fjölgaði um 53 í fyrra Í lok árs 2009 voru 1.582 fiskiskip á skrá hjá Siglingastofnun og hafði þeim fjölgað um 53 frá árinu áður. Fjöldi vélskipa var alls 768 og samanlögð stærð þeirra 86.769 brúttótonn. 1.3.2010 09:02
Ríflega 100 milljóna hagnaður hjá Faxaflóahöfnum Hagnaður af rekstri Faxaflóahafna á síðasta ári nam 103,9 miljónunm kr. Ársreikningur Faxaflóahafna vegna ársins 2009 liggur nú fyrir. Í frétt um reikninginn á vefsíðu félagsins segir að afkoman var viðunandi og umfram áætlun. 1.3.2010 08:45
Enn rýrna eignir lánafyrirtækja Eignir ýmissa lánafyrirtækja námu 1.303 milljarða kr. í lok janúar og lækkuðu um 8,3 milljarða kr. milli mánaða. 1.3.2010 08:18
Reuters: Pólitísk kreppa ofan á þá efnahagslegu Ísland glímir nú við tvær kreppur, aðra efnahaglega og hina pólitíska eftir að samningaviðræður um Icesave sigldu í strand. Þannig hefst ítarleg umfjöllun á Reuters um stöðu Íslands og birt var um helgina. 1.3.2010 08:06
Seðlabanka Íslands er ekki tryggt nægilegt sjálfstæði Sjálfstæði Seðlabanka Íslands gagnvart stjórnvöldum er ekki nægilega tryggt í íslenskri löggjöf. Þetta hefur dregið úr trúverðugleika og virkni peningastefnu íslenskra stjórnvalda, segir greiningarskýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. 1.3.2010 05:00
Stærstu eigendur Landsbankans og Glitnis hugsanlega krafðir um bætur Slitastjórnir Landsbankans og Glitnis skoða nú möguleika á því að krefja fyrrverandi stærstu eigendur bankans um skaðabætur vegna tjóns sem grunur leikur á að þeir hafi valdið bankanum. 28.2.2010 19:14
Bóksala með mesta móti í Perlunni Kristján B. Jónasson, formaður Félags íslenskra bókaútgefanda, segir að bóksala á árlega Bókamarkaðnum í Perlunni hafi verið með almesta móti og aðsókn góð þrátt fyrir rysjótt veður. 28.2.2010 14:15
Farice fær frest til að semja um skuldirnar Samkomulag það sem Eignarhaldsfélagið Farice og kröfuhafar gerðu í desember hefur verið framlengt til 19. mars n.k. Samkomulagið felur sem fyrr í sér að félagið fær frest til að greiða eða semja um gjaldfallnar afborganir. 28.2.2010 08:47
Milljarða skuld Finns líklega afskrifuð Finnur Ingólfsson, fyrrverandi seðlabankastjóri og viðskiptaráðherra, skuldar þrjá komma sjö milljarða króna í gegnum fjárfestingafélag sitt. Eftir því sem næst verður komist eru engar eignir til upp í skuldina. 28.2.2010 18:43
Uppgjör Landsbanka mun dýrara en hinna Rekstrarkostnaður skilanefndar og slitastjórnar gamla Landsbankans nam tólf milljörðum króna í fyrra, samkvæmt gögnum sem kynnt voru á kröfuhafafundi bankans í vikunni. 27.2.2010 09:15
Grunur um innherjasvik Móðir, systir og mágur Gunnars Gíslasonar, fyrrverandi stjórnarmanns í Spron seldu stofnfjárbréf í sparisjóðnum fyrir tugi milljóna haustið 2006. Málið er hluti af rannsókn efnahagsbrotadeildar á meintum innherjasvikum í Spron. 27.2.2010 19:02
SS hagnaðist um 412 milljónir króna Sláturfélag Suðurlands bætti afkomu sína um tæpar 1970 milljónir króna á síðasta ári. Hagnaðu félagsins nam þá 412 milljónum króna, en félagið tapaði 1555 milljónum árið á undan. Svokölluð EBITDA afkoma var 390 milljónir króna á síðasta ári en 499 milljónir króna árið 2008. 26.2.2010 18:18
Gengi hlutabréfa Marels hækkaði um 3,4 prósent Gengi hlutabréfa Marels hækkaði um 3,4 prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta var einkennandi fyrir daginn, þar sem engin bréf lækkuðu í verði. Hin sem hækkuðu í verði voru hlutabréf Century Aluminum, sem hækkaði um 2,85 prósent og Færeyjabanka, sem hækkaði um 2,04 prósent. 26.2.2010 16:41
Moody´s boðar lækkun á lánshæfiseinkunn Íslands Matsfyrirtækið Moody´s boðaði í dag lækkun á lánshæfiseinkunn Íslands. Ástæðan sem Moody´s gefur fyrir þessu er að samningaviðræður í Icesave málinu hafa stöðvast. 26.2.2010 15:21
Hollendingar áforma ekki frekari Icesave fundi Hollendingar áforma ekki frekari samningaviðræður við Íslendinga í Icesave málinu. Þetta kemur fram í frétt á Reuters. 26.2.2010 14:45
Seðlabankastjóri verður með 400 þúsund í fasta yfirvinnu Grunnlaun seðlabankastjóra verða 863 þúsund krónur á mánuði samkvæmt úrskurði kjararáðs frá því á mánudaginn. Úrskurðurinn byggir á því að lagabreytingu þess efnis að forsætisráðherra skuli vera launahæsti maður ríkisins. Seðlabankastjóri mun hins vegar fá greiddar 80 einingar á mánuði fyrir yfirvinnu og álag sem fylgir starfinu. Fram kemur í úrskurði kjararáðs að ein eining jafngildi 5.058 krónum. Því lætur nærri að Seðlabankastjóri muni fá um 400 þúsund krónur greiddar í fasta yfirvinnu á mánuði. 26.2.2010 14:42
Lyf og heilsa ætlar að leita til dómstóla „Það er því staðföst trú okkar að dómstólar kveði upp hlutlausan dóm en þangað munum við leita til þess að fá fullnaðarúrskurð í þessu máli," segtir Guðni B. Guðnason, framkvæmdastjóri Lyfja og heilsu í yfirlýsingu sem hann hefur sent um úrskurð Samkeppniseftirlitsins í dag. 26.2.2010 13:35
Fasteignakaupum fækkar milli vikna Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 19. febrúar til og með 25. febrúar 2010 var 45. Til samanburðar voru þeir 57 talsins í síðustu viku. 26.2.2010 13:29
Minnisblað: Buðu 2,5 til 3,5% vexti á Icesave lánið Samkvæmt minnisblaði frá samninganefnd Íslands í Icesave deilunni bauð samninganefndin Bretum og Hollendingum að vextir af Icesave láninu yrðu á bilinu 2,5 til 3,25% fram til ársins 2016 og síðan 3,5% +a fyrrihluta þess árs þegar afborganir hæfust. Jafnframt vildi nefndin að engir vextir yrðu greiddir fyrr en 2012 af láninu. 26.2.2010 13:01
Upplýst verði um eignarhald banka og annarra fyrirtækja Hlutaskrár bæði hlutafélaga og einkahlutafélaga verða öllum opnar og aðgengilegar, nái frumvarp sem þingmenn þriggja flokka hafa lagt fram á Alþingi. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. 26.2.2010 12:40
Myndarlegur afgangur hélt krónunni á floti Myndarlegur afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum á fjórða ársfjórðungi síðasta árs á eflaust talsverðan þátt í því hversu vel krónan hélt sjó á því tímabili þrátt fyrir talsverðar vaxtagreiðslur til útlendinga í desember. 26.2.2010 12:34
ÍLS leysti til sín 56 íbúðir í Kirkjugarðsblokkunum Íbúðalánasjóður (ÍLS) leysti til sín 56 íbúðir í svokölluðum Krikjugarðsblokkum á Egilsstöðum í gærdag. Vefmiðilinn Austurglugginn greinir frá þessum. 26.2.2010 11:24
Síminn beintengdur við Google og YouTube Nýverið tengdist Síminn beint við Google, sem er einn alstærsti efnisveitandinn á netinu sem rekur meðal annars einnig YouTube. 26.2.2010 10:30
Miklir fjármunir lagðir í rannsóknir á makríl Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa lagt verulega fjármuni í rannsóknir og þróun veiða á makríl á undanförnum árum um leið og þau hafa smám saman verið að ná tökum á veiðum og vinnslu þessarar mikilvægu uppsjávartegundar. Þetta kom fram á fjölsóttri málstofu um um veiðar og vinnslu á makríl sem sjávarútvegsráðuneytið stóð fyrir í vikunni. 26.2.2010 10:28
Lyf og heilsa sektuð um 130 milljónir fyrir markaðsmisnotkun Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins sem birt er í dag er komist að þeirri niðurstöðu að Lyf og heilsa hf. (L&h) hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með aðgerðum sem höfðu það markmið að hindra að nýr keppinautur í lyfsölu á Akranesi næði fótfestu á markaðnum. 26.2.2010 10:04
Vöruskiptin í janúar ekki eins hagstæð og talið var Í janúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 38,7 milljarða króna og inn fyrir 32,1 milljarð króna. Vöruskiptin í janúar voru því hagstæð um 6,5 milljarða króna. 26.2.2010 09:11
Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 3,9% Vísitala framleiðsluverðs í janúar 2010 var 200,4 stig og hækkaði um 3,9% frá desember 2009. 26.2.2010 09:04