Gruna dótturfélög íslensku bankanna um að hafa falið arðgreiðslur Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 1. mars 2010 18:38
Grunur leikur á að dótturfélög íslensku bankanna í Lúxemborg hafi falið arðgreiðslur til að raunverulegir eigendur félaganna sem fengu arðinn kæmust hjá því að greiða skatt hér á landi. Skattyfirvöld hafa undanfarna mánuði unnið að því að greina eignarhald á félögum í skattaskjólum í eigu íslenskra aðila. Búið er að greina eignarhald á um 100 félögum. Íslensku bankarnir, bæði hér og í Lúxemborg, stofnuðu flest þessara félaga. Kaupþing í Lúxemborg hafði t.a.m. þann háttinn á að stofna félög í gegnum 2 til 3 skúffufélög á eyjunni Tortola. Slík félög fjárfestu í mörgum tilfellum í íslenskum hlutabréfum og verðbréfum. Samkvæmt heimildum fréttastofu leikur grunur á að dótturfélög íslensku bankanna í Lúxemborg hafi hagað skráningu á hlutabréfunum þannig hér að landi að það liti út fyrir að þau ættu þau. Málið var hins vegar að raunverulegir eigendur bréfanna voru svokölluð 1929 félög sem voru í eigu Íslendinga. Slík félög eru undanþegin frá skatti. Dótturfélögum íslensku bankanna bar ekki að halda eftir neinni staðgreiðslu af arði af hlutabréfum. Grunur leikur því á að þetta hafi verið gert til að eigendur félaganna kæmust hjá því að greiða skatt af arði hér á landi. Komi það í ljós að eigendur félaganna hafi komist hjá því að greiða skatt með þessum hætti geta þeir átt það á hættu að fá endurálagningu frá skattyfirvöldum. Hún nemur fjármagnstekjuskattinum auk 25 prósenta álagi, samtals 43 prósentum af arðgreiðslunum. Nú þegar hafa tveir einstaklingar sem áttu 1929 félög í Lúxemborg óskað eftir að félögin verði skattlögð hér á landi.
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira