Viðskipti innlent

Markaðsskuldabréf bæta við sig tæpum 12 milljörðum

Staða markaðsskuldabréfa í lok janúar 2010 nam 1.529 milljörðum kr. og hækkaði um 11,8 miljarða kr. í mánuðinum.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að staða ríkisbréfa nam 353,8 milljörðum kr. í lok janúar, samanborið við 235,2 milljarða kr. í sama mánuði árið áður.

Staða íbúðabréfa hækkaði um 6,3 milljarð kr. í mánuðinum og nam 709,3 milljörðum kr. í lok mánaðar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×