Viðskipti innlent

Uppgjör Landsbanka mun dýrara en hinna

Þessi gera búið upp. Kristinn Bjarnason og Pétur Örn Sverrisson ræða við Herdísi Hallmarsdóttur og Halldór Backman.  fréttablaðið/Stefán
Þessi gera búið upp. Kristinn Bjarnason og Pétur Örn Sverrisson ræða við Herdísi Hallmarsdóttur og Halldór Backman. fréttablaðið/Stefán
Rekstrarkostnaður skilanefndar og slitastjórnar gamla Landsbankans nam tólf milljörðum króna í fyrra, samkvæmt gögnum sem kynnt voru á kröfuhafafundi bankans í vikunni.

Kostnaður við lögfræðinga og aðra sérfræðinga erlendis vegur þyngst í uppgjöri bankans. Hann nam 4.691 milljón króna saman­borið við 480 milljónir innanlands.

Athygli vekur að þótt kostnaður við sérfræðikaup innanlands sé um 40 prósentum minni en hjá skilanefndum Kaupþings og Glitnis þá er heildarkostnaður við kaup á lögfræði- og öðrum sérfræðikostnaði nærri 57 prósentum meiri.

Skilanefndir Kaupþings og Glitnis upplýstu fyrr í mánuðinum um kostnað við kaup á sérfræðiþjónustu hjá sér og tilgreindu þá sem skilanefndirnar höfðu átt viðskipti við. Skilanefnd Landsbankans kaus að svara ekki fyrirspurn Fréttablaðsins um efnið heldur vísa til þeirra upplýsinga sem fram áttu að koma í skýrslu skilanefndar síðasta miðvikudag. Skilanefnd Landsbankans hefur því engu svarað um af hverjum hefur verið keypt sérfræðiþjónusta fyrir tæpa 5,2 milljarða króna.

Rekstrarkostnaður skilanefndar og slitastjórnar Landsbankans er engu síður í kringum þremur milljörðum minni en áætlað var í septemberlok í fyrra. Tæp áttatíu prósent af heildarkostnaði féllu til hér og í starfsstöð gamla bankans í London í Bretlandi.

Heildarkostnaður var 0,46 prósent af heildareignum í stýringu og eitt prósent af áætluðu verðmæti eigna. Þær námu 1.172 milljörðum króna í lok síðasta árs. Til samanburðar var heildarkostnaður skilanefndar og slitastjórnar Glitnis og Kaupþings 0,24 til 0,25 prósent af heildareignum.

Uppgjör gamla Landsbankans er sagt vera mun umfangsmeira en Glitnis og Kaupþings þar sem starfsemi hinna heyrði undir dótturfélög í öðrum löndum á meðan Landsbankinn var með útibú í öðrum löndum.

Kristinn Bjarnason, sem fer fyrir slitastjórn Landsbankans, segir að vegna uppbyggingar búsins hafi verið nauðsynlegt að leita til fjölmargra erlendra sérfræðinga og lögfræðinga sem þekkingu hafi á lögum hvers lands fyrir sig.

jonab@frettabladid.is, olikr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×