Viðskipti innlent

Hlutabréf Century Aluminum hækkaði um 5,88 prósent

Úr álverinu á Grundartanga.
Úr álverinu á Grundartanga.

Gengi hlutabréfa Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls á Grundartanga, hækkaði um 5,88 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgdi gengi bréfa Marels, sem hækkaði um 4,29 prósent.

Á sama tíma féll gengi hlutabréfa Bakkavarar um 5,88 prósent og gengi bréfa Össurar lækkaði um 0,3 prósent.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,42 prósent og endaði í 882,88 stigum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×