Fleiri fréttir Á sjóræningjaslóð Enski leikstjórinn Paul Greengrass er sagður líklegastur til að leikstýra kvikmynd um skipstjórann Richard Phillips sem Navy Seals, sérsveit bandaríska flotans, bjargaði úr klóm sómalskra sjóræningja árið 2009. Tom Hanks hefur þegar samþykkt að leika skipstjórann, sem skrifaði bók um dvöl sína meðal sjóræningjanna. Myndin verður byggð á þeirri bók og hefur þegar verið gefið vinnuheitið Maersk Alabama eftir skipi Phillips. 16.6.2011 09:00 Kjóllinn er gegnsær að neðan Leikkonan Blake Lively, 23 ára, mætti í hvítum Chanel kjól á frumsýningu kvikmyndarinnar The Green Lantern í gær. Eins og myndirnar sýna var Blake stórglæsileg í kjólnum sem var gegnsær eins og sja má á meðfylgjandi myndum. 16.6.2011 08:29 Aðdáandi Quarashi fékk gigg „Ég er mjög spenntur fyrir því að spila á Íslandi en líka kvíðinn því þetta verður í fyrsta skipti sem ég spila í útlöndum,“ segir plötusnúðurinn DJ Red. 16.6.2011 07:00 Human Woman á samning í Þýskalandi Jón Atli og Gísli Galdur í Human Woman gefa út smáskífu hjá þýska útgáfufyrirtækinu HFN í haust. Þessum áfanga var fagnað á Faktorý um síðustu helgi. 16.6.2011 06:45 Brúðkaupinu aflýst Brúðkaupi Playboy-kóngsins Hugh Hefner og fyrirsætunnar Crystal Harris hefur verið aflýst. Þessar fréttir gerði Hefner sjálfur opinberar á samskiptasíðunni Twitter með efirfarandi skilaboðum: „Brúðkaupinu er aflýst. Crystal skipti um skoðun.“ 16.6.2011 04:00 Slapp með skrekkinn Tveir menn voru handteknir í grennd við heimili bresku söngkonunnar Joss Stone í Devon á þriðjudag grunaðir um að hafa ætlað að ræna henni. 16.6.2011 02:00 Hugsaði ekki út í afleiðingarnar Paul McCartney hefur viðurkennt að hann hafi ekki hugsað út í afleiðingarnar þegar hann lýsti því yfir fyrir fjörutíu árum að hann hygðist ekki semja fleiri lög með John Lennon. 15.6.2011 21:00 Ástamál Pippu í brennidepli Breskir og bandarískir fjölmiðlar eru eins og mý á mykjuskán þegar Pippa Middleton og ástamál hennar eru annars vegar. Nýlega var greint frá því að ungfrú Middleton væri hætt með bankastarfsmanninum Alex Loudon en fjölmiðlar voru ekki lengi að þefa hana uppi á fínum veitingastað með George Percy, syni hertogans af Norðymbralandi. 15.6.2011 17:30 Gunni Hans fer bakdyramegin á Grímuna "Ef það kemur eitthvað fyndið þá verður það soðið saman á staðnum. Við erum ekkert plana það. Við erum auðvitað bara fengin til að sjá um þetta vegna vitsmuna okkar og út af því hversu glæsileg við erum,“ segir Gunnar Hansson leikari. 15.6.2011 12:15 Stuttmyndadagar hefjast í dag Átján myndir eru á dagskrá hinna árlegu Stuttmyndadaga í Reykjavík, sem fara fram í Bíó Paradís í dag og á morgun. Hér gefst einstakt tækifæri til að sjá það ferskasta í grasrót íslenskra kvikmynda. 15.6.2011 12:00 Sum grillpartý eru skemmtilegri en önnur Meðfylgjandi myndir voru teknar á tónleikum hljómsveitarinnar HumanWoman á Faktory síðasta sunnudag undir yfirskriftinni "Með kokteil í hönd niðr'á strönd“. Hljómsveitina HumanWoman skipa þeir Gísli Galdur og Jón Atli en sá síðarnefndi fagnaði einnig afmæli sínu þennan dag. Af því tilefni var haldin heljarinnar grillveisla þar sem gestum var boðið upp á ljúffengan Grand Orange kokteil, kjúklingaspjót og sykurpúða. 15.6.2011 11:38 Stuttmynd Marsibilar vekur athygli „Þessi hátíð flokkast undir svokallaða A-hátíð, svo þetta er mikill heiður fyrir mig,“ segir Marsibil Sæmundardóttir, en hún gerði nýverið stuttmynd sem rataði á Palm Springs Internatinoal Shortfest, þriðju stærstu stuttmyndahátíð í heimi. 15.6.2011 11:00 Það er ekki sjón að sjá þig stelpa Sautján ára leikkonan Taylor Momsen, sem varð heimsþekkt í sjónvarpsþáttaröðinni Gossip Girl, leggur nú áherslu á söngferil sinn með rokkbandinu The Pretty Reckless. Stelpan var í vægast sagt slæmu ástandi eins og meðfylgjandi myndir sýna þegar hún yfirgaf eftirpartý Metal Hammer Golden God tónlistarhátíðarinnar sem fram fór í London í fyrradag. 15.6.2011 10:17 Natalie Portman orðin mamma Óskarsverðlaunahafinn Natalie Portman, sem varð 30 ára 9. júní síðastliðinn, eignaðist sitt fyrsta barn, dreng, með unnusta sínum Benjamin Millepied nýverið. Tímaritið People var fyrst með fréttina en ekki fylgdi sögunni hvaða dag drengurinn kom í heiminn. Parið, sem kynntist við tökur á kvikmyndinni Blak Swan tilkynnti í desember síðastliðinn að þau ættu von á barni. 15.6.2011 09:56 Von á nýjum þætti með Charlie Sheen Charlie Sheen er í samningaviðræðum við sjónvarpsmenn ytra um að fara með aðalhlutverk í nýjum gamanþætti. Sheen fór með aðalhlutverkið í gamanþáttunum Two and a Half Men en var rekinn fyrr á árinu og leikarinn Ashton Kutcher ráðinn í hans stað. Samkvæmt slúðursíðunni TMZ á þátturinn að vera skrifaður sérstaklega fyrir Sheen og fer beint í almennar sýningar, án þess að gera þurfi sérstakan prufuþátt eða „pilot“. 15.6.2011 09:45 Svei mér þá nemendur gerast ekki fallegri Meðfylgjandi myndir voru teknar á útskriftardegi Make up skóla Beautyworld.is þar sem nemendur undirbjuggu sig fyrir próf og myndatökur. Nemendur voru í fjórtán vikur að læra allt það nýjasta í förðun ásamt tímabila förðun, tísku og ljósmynda förðun, brúðarförðun, umhirða húðar, stíliseringu og í raun allt sem góður förðunarfræðingur þarf að vita og kunna," segir Guðrún Möller eigandi Beautyworld spurð út í námsefnið. Þær fengu ýmsa fyrirlesara til að fjalla um sögu förðunar, special effects og fleira í þeim dúr. Nýtt námskeið hefst í september." 15.6.2011 09:08 Grínast á kostnað Gaga Nýjasta lag rapparans Eminem hefur farið fyrir brjóstið á aðdáendum Lady Gaga, en í laginu „A Kiss“ segir rapparinn að söngkonan sé í raun karlmaður. Hann segir þetta þó allt í gríni gert. „Stundum fæ ég bara einhvern brandara í kollinn og mig langar að deila honum með heiminum, ef þið skiljið mig,“ sagði Eminem og bætir því við að hann hafi ennþá mikið dálæti á Lady Gaga. 15.6.2011 08:00 Tapaði heilli hryllingsmynd Rithöfundurinn og grínistinn Hugleikur Dagsson lenti í þeirri óskemmtilegu reynslu að brotist var inn til hans um helgina. Þjófarnir höfðu meðal annars á brott með sér tölvu sem hefur að geyma óbirt leikrit, tvær bækur og handrit að hans fyrstu hryllingsmynd. 15.6.2011 07:45 Eva verður guðmóðir Victoria Beckham hefur beðið Evu Longoria um að vera guðmóðir ófæddrar dóttur sinnar. Beckham-hjónin eiga von á stúlku í júlí en fyrir eiga þau þrjá stráka, hinn tólf ára gamla Brooklyn, hinn átta ára Romeo og hinn sex ára Cruz. „Victoria stakk upp á þessu við David og þau vilja bæði að Eva verði guðmóðirin. Henni finnst þetta mikill heiður,“ sagði vinur hjónanna við dagblaðið The Sun. 15.6.2011 07:00 Nýtt andlit Vuitton Það er engin önnur en leikkonan Angelina Jolie sem er andlit nýrrar auglýsingaherferðar tískuhúss Louis Vuitton. 15.6.2011 07:00 Coppola eins og afi minn Hin unga Elle Fanning fer með eitt aðalhlutverkið í kvikmyndinni Super 8 sem frumsýnd var vestanhafs á dögunum. Fanning er dugleg að veita viðtöl til að kynna kvikmyndina og í einu slíku segist hún líta á leikstjórann Francis Ford Coppola sem afa sinn. 15.6.2011 06:00 Ertu fótósjoppuð í drasl eða bótoxuð? Söngkona Black Eyed Peas, Fergie, 36 ára, prýðir forsíðu Allure tímaritsins og er stórglæsileg að vanda. Pressan vestan hafs veltir sér stöðugt upp úr útliti söngkonunnar sem er annað hvort fótósjoppuð með aðstoð tölvutækninnar á umræddri forsíðu eða áskrifandi að bótoxi. En andlit Fergie er verður sléttara með hverju árinu eins og sjá má í myndasafni. Ég er ung í anda og mun alltaf vera það en ég ætla mér að eldast tignarlega. Ég hef lært að elska nefið á mér í gegnum tíðina því það er sérstakt og það gerir mig einstaka og öðruvísi en aðrar konur," sagði Fergie spurð út í ellina og netið á henni í forsíðuviðtalinu. 14.6.2011 16:57 Í fótspor Daft Punk Danshljómsveitin Steed Lord var aðalnúmer raftónlistarhátíðarinnar Electronica Festival sem fram fór í Istanbúl um síðustu helgi. Að auki var tónlistarmyndband sveitarinnar notað til að auglýsa hátíðina á sjónvarpsstöðinni MTV. 14.6.2011 15:00 Nilli leikstýrir Gísla Erni í stuttmynd um fíkniefni
Sjá næstu 50 fréttir
Á sjóræningjaslóð Enski leikstjórinn Paul Greengrass er sagður líklegastur til að leikstýra kvikmynd um skipstjórann Richard Phillips sem Navy Seals, sérsveit bandaríska flotans, bjargaði úr klóm sómalskra sjóræningja árið 2009. Tom Hanks hefur þegar samþykkt að leika skipstjórann, sem skrifaði bók um dvöl sína meðal sjóræningjanna. Myndin verður byggð á þeirri bók og hefur þegar verið gefið vinnuheitið Maersk Alabama eftir skipi Phillips. 16.6.2011 09:00
Kjóllinn er gegnsær að neðan Leikkonan Blake Lively, 23 ára, mætti í hvítum Chanel kjól á frumsýningu kvikmyndarinnar The Green Lantern í gær. Eins og myndirnar sýna var Blake stórglæsileg í kjólnum sem var gegnsær eins og sja má á meðfylgjandi myndum. 16.6.2011 08:29
Aðdáandi Quarashi fékk gigg „Ég er mjög spenntur fyrir því að spila á Íslandi en líka kvíðinn því þetta verður í fyrsta skipti sem ég spila í útlöndum,“ segir plötusnúðurinn DJ Red. 16.6.2011 07:00
Human Woman á samning í Þýskalandi Jón Atli og Gísli Galdur í Human Woman gefa út smáskífu hjá þýska útgáfufyrirtækinu HFN í haust. Þessum áfanga var fagnað á Faktorý um síðustu helgi. 16.6.2011 06:45
Brúðkaupinu aflýst Brúðkaupi Playboy-kóngsins Hugh Hefner og fyrirsætunnar Crystal Harris hefur verið aflýst. Þessar fréttir gerði Hefner sjálfur opinberar á samskiptasíðunni Twitter með efirfarandi skilaboðum: „Brúðkaupinu er aflýst. Crystal skipti um skoðun.“ 16.6.2011 04:00
Slapp með skrekkinn Tveir menn voru handteknir í grennd við heimili bresku söngkonunnar Joss Stone í Devon á þriðjudag grunaðir um að hafa ætlað að ræna henni. 16.6.2011 02:00
Hugsaði ekki út í afleiðingarnar Paul McCartney hefur viðurkennt að hann hafi ekki hugsað út í afleiðingarnar þegar hann lýsti því yfir fyrir fjörutíu árum að hann hygðist ekki semja fleiri lög með John Lennon. 15.6.2011 21:00
Ástamál Pippu í brennidepli Breskir og bandarískir fjölmiðlar eru eins og mý á mykjuskán þegar Pippa Middleton og ástamál hennar eru annars vegar. Nýlega var greint frá því að ungfrú Middleton væri hætt með bankastarfsmanninum Alex Loudon en fjölmiðlar voru ekki lengi að þefa hana uppi á fínum veitingastað með George Percy, syni hertogans af Norðymbralandi. 15.6.2011 17:30
Gunni Hans fer bakdyramegin á Grímuna "Ef það kemur eitthvað fyndið þá verður það soðið saman á staðnum. Við erum ekkert plana það. Við erum auðvitað bara fengin til að sjá um þetta vegna vitsmuna okkar og út af því hversu glæsileg við erum,“ segir Gunnar Hansson leikari. 15.6.2011 12:15
Stuttmyndadagar hefjast í dag Átján myndir eru á dagskrá hinna árlegu Stuttmyndadaga í Reykjavík, sem fara fram í Bíó Paradís í dag og á morgun. Hér gefst einstakt tækifæri til að sjá það ferskasta í grasrót íslenskra kvikmynda. 15.6.2011 12:00
Sum grillpartý eru skemmtilegri en önnur Meðfylgjandi myndir voru teknar á tónleikum hljómsveitarinnar HumanWoman á Faktory síðasta sunnudag undir yfirskriftinni "Með kokteil í hönd niðr'á strönd“. Hljómsveitina HumanWoman skipa þeir Gísli Galdur og Jón Atli en sá síðarnefndi fagnaði einnig afmæli sínu þennan dag. Af því tilefni var haldin heljarinnar grillveisla þar sem gestum var boðið upp á ljúffengan Grand Orange kokteil, kjúklingaspjót og sykurpúða. 15.6.2011 11:38
Stuttmynd Marsibilar vekur athygli „Þessi hátíð flokkast undir svokallaða A-hátíð, svo þetta er mikill heiður fyrir mig,“ segir Marsibil Sæmundardóttir, en hún gerði nýverið stuttmynd sem rataði á Palm Springs Internatinoal Shortfest, þriðju stærstu stuttmyndahátíð í heimi. 15.6.2011 11:00
Það er ekki sjón að sjá þig stelpa Sautján ára leikkonan Taylor Momsen, sem varð heimsþekkt í sjónvarpsþáttaröðinni Gossip Girl, leggur nú áherslu á söngferil sinn með rokkbandinu The Pretty Reckless. Stelpan var í vægast sagt slæmu ástandi eins og meðfylgjandi myndir sýna þegar hún yfirgaf eftirpartý Metal Hammer Golden God tónlistarhátíðarinnar sem fram fór í London í fyrradag. 15.6.2011 10:17
Natalie Portman orðin mamma Óskarsverðlaunahafinn Natalie Portman, sem varð 30 ára 9. júní síðastliðinn, eignaðist sitt fyrsta barn, dreng, með unnusta sínum Benjamin Millepied nýverið. Tímaritið People var fyrst með fréttina en ekki fylgdi sögunni hvaða dag drengurinn kom í heiminn. Parið, sem kynntist við tökur á kvikmyndinni Blak Swan tilkynnti í desember síðastliðinn að þau ættu von á barni. 15.6.2011 09:56
Von á nýjum þætti með Charlie Sheen Charlie Sheen er í samningaviðræðum við sjónvarpsmenn ytra um að fara með aðalhlutverk í nýjum gamanþætti. Sheen fór með aðalhlutverkið í gamanþáttunum Two and a Half Men en var rekinn fyrr á árinu og leikarinn Ashton Kutcher ráðinn í hans stað. Samkvæmt slúðursíðunni TMZ á þátturinn að vera skrifaður sérstaklega fyrir Sheen og fer beint í almennar sýningar, án þess að gera þurfi sérstakan prufuþátt eða „pilot“. 15.6.2011 09:45
Svei mér þá nemendur gerast ekki fallegri Meðfylgjandi myndir voru teknar á útskriftardegi Make up skóla Beautyworld.is þar sem nemendur undirbjuggu sig fyrir próf og myndatökur. Nemendur voru í fjórtán vikur að læra allt það nýjasta í förðun ásamt tímabila förðun, tísku og ljósmynda förðun, brúðarförðun, umhirða húðar, stíliseringu og í raun allt sem góður förðunarfræðingur þarf að vita og kunna," segir Guðrún Möller eigandi Beautyworld spurð út í námsefnið. Þær fengu ýmsa fyrirlesara til að fjalla um sögu förðunar, special effects og fleira í þeim dúr. Nýtt námskeið hefst í september." 15.6.2011 09:08
Grínast á kostnað Gaga Nýjasta lag rapparans Eminem hefur farið fyrir brjóstið á aðdáendum Lady Gaga, en í laginu „A Kiss“ segir rapparinn að söngkonan sé í raun karlmaður. Hann segir þetta þó allt í gríni gert. „Stundum fæ ég bara einhvern brandara í kollinn og mig langar að deila honum með heiminum, ef þið skiljið mig,“ sagði Eminem og bætir því við að hann hafi ennþá mikið dálæti á Lady Gaga. 15.6.2011 08:00
Tapaði heilli hryllingsmynd Rithöfundurinn og grínistinn Hugleikur Dagsson lenti í þeirri óskemmtilegu reynslu að brotist var inn til hans um helgina. Þjófarnir höfðu meðal annars á brott með sér tölvu sem hefur að geyma óbirt leikrit, tvær bækur og handrit að hans fyrstu hryllingsmynd. 15.6.2011 07:45
Eva verður guðmóðir Victoria Beckham hefur beðið Evu Longoria um að vera guðmóðir ófæddrar dóttur sinnar. Beckham-hjónin eiga von á stúlku í júlí en fyrir eiga þau þrjá stráka, hinn tólf ára gamla Brooklyn, hinn átta ára Romeo og hinn sex ára Cruz. „Victoria stakk upp á þessu við David og þau vilja bæði að Eva verði guðmóðirin. Henni finnst þetta mikill heiður,“ sagði vinur hjónanna við dagblaðið The Sun. 15.6.2011 07:00
Nýtt andlit Vuitton Það er engin önnur en leikkonan Angelina Jolie sem er andlit nýrrar auglýsingaherferðar tískuhúss Louis Vuitton. 15.6.2011 07:00
Coppola eins og afi minn Hin unga Elle Fanning fer með eitt aðalhlutverkið í kvikmyndinni Super 8 sem frumsýnd var vestanhafs á dögunum. Fanning er dugleg að veita viðtöl til að kynna kvikmyndina og í einu slíku segist hún líta á leikstjórann Francis Ford Coppola sem afa sinn. 15.6.2011 06:00
Ertu fótósjoppuð í drasl eða bótoxuð? Söngkona Black Eyed Peas, Fergie, 36 ára, prýðir forsíðu Allure tímaritsins og er stórglæsileg að vanda. Pressan vestan hafs veltir sér stöðugt upp úr útliti söngkonunnar sem er annað hvort fótósjoppuð með aðstoð tölvutækninnar á umræddri forsíðu eða áskrifandi að bótoxi. En andlit Fergie er verður sléttara með hverju árinu eins og sjá má í myndasafni. Ég er ung í anda og mun alltaf vera það en ég ætla mér að eldast tignarlega. Ég hef lært að elska nefið á mér í gegnum tíðina því það er sérstakt og það gerir mig einstaka og öðruvísi en aðrar konur," sagði Fergie spurð út í ellina og netið á henni í forsíðuviðtalinu. 14.6.2011 16:57
Í fótspor Daft Punk Danshljómsveitin Steed Lord var aðalnúmer raftónlistarhátíðarinnar Electronica Festival sem fram fór í Istanbúl um síðustu helgi. Að auki var tónlistarmyndband sveitarinnar notað til að auglýsa hátíðina á sjónvarpsstöðinni MTV. 14.6.2011 15:00
Opnar English Pub í Hafnarfirði „Það var kominn tími á að gera eitthvað almennilegt fyrir Hafnfirðinga,“ segir Arnar Þór Gíslason, eigandi English Pub í Austurstræti. 14.6.2011 14:00
Sveppi í sólarhring uppi á jökli „Það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart hversu mikið vesen það er að gera eina bíómynd,“ segir Sverrir Þór Sverrisson. Hann er byrjaður á þriðju Sveppa-myndinni en hinar tvær hafa slegið rækilega í gegn hjá yngstu kynslóðinni. Í síðustu mynd prófaði Sverrir að gera myndina með hinni vinsælu þrívíddar-tækni en mynd númer þrjú verður unnin á hefðbundinn hátt. „Við erum búnir með þrívíddina.“ 14.6.2011 12:15
Skemmdu bíl öryrkja og ældu á hann líka "Ekki nóg með að það sé búið að skemma bílinn svona þá er búið að æla á hann hérna," segir Una Nikulásdóttir í meðfylgjandi myndskeiði þegar hún lýsir skemmdarverknaði sem unninn var á bíl föður hennar, Toyotu Hiace árgerð 1998, aðfaranótt mánudags. 14.6.2011 10:01
Arnar Grant og Ívar í matarbisness Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar félagarnir Arnar Grant og Ívar Guðmundsson héldu glæsilegt partý um helgina upp á efstu hæð í Turninum á Höfatorgi þar sem vinir og vandamenn komu saman til að fagna nýjustu afurð þeirra, Pakkanum, en þar bjóða þeir upp á heilan dag af hollum, næringarríkum og hitaeiningasnauðum mat. Matarpakkinn inniheldur allar máltíðir dagsins og kemur í tveimur stærðum, 1.800 og 1.500 hitaeiningum. Meistarakokkurinn Snorri Snorrason sér um matseldina fyrir Pakkann og er maturinn eingöngu unninn úr fersku hráefni. Snorri hefur viðamikla alþjóðlega reynslu af ljúffengri og hollri matargerð sem gerir matarpakkana afar fjölbreytta. Arnar og Ívar passa að öll hlutföll próteins, kolvetna og fitu séu virt svo að líkaminn fái alla þá næringu sem hann þarfnast án þess að fara umfram 1.500 eða 1.800 hitaeiningar. Arnar og Ívar segja að Pakkinn sé góð leið til að grennast og byggja upp heilsusamlegan lífsstíl. “Hver þekkir ekki að vera að hamast á fullu í ræktinni en ná ekki þeim árangri sem lagt var upp með. Það er langoftast vegna þess að ekki hefur verið hugað nægilega vel að mataræðinu. Fólk gleymir nefnilega að rétt mataræði vegur um 70% í að ná árangri í líkamsrækt. ” segja hreystikapparnir. “Við ætlum að koma góðu orði á pakkamat og í leiðinni að hjálpa Íslendingum að grennast og komast í gott form með hollu mataræði” segja félagarnir. Nánar má sjá um Pakkann á Pakkinn.is. 14.6.2011 07:19
Gospeltónleikar Bjarna Ara Meðfylgjandi myndir voru teknar í Guðríðarkirkju á Elvis Gospel tónleikum þar sem Bjarni Arason ásamt hjómsveit fór á kostum. Bjarni flutti hvern slagarann á eftir öðrum ásamt hrynsveit og frábærum raddsöngvurum. Um var að ræða gospeltónlist úr söngbók Elvis Presley. Það var mál manna að Bjarni hafi aldrei verið betri. 13.6.2011 16:05
Longoria fallin fyrir unglambinu Desperate Housewives stjarnan, Eva Longoria, 36 ára, og kærastinn hennar Eduardo Cruz, 25 ára, gengu hönd í hönd í gegnum LAX flugvöllinn í Los Angeles. Þá var parið myndað á lúxussnekkju á Spáni þar sem þau létu vel að hvort öðru. 13.6.2011 15:15
Tengdó sátt við Bieber Leikkonan Selena Gomez mætti í viðtal til Jay Leno á dögunum, en þar var hún meðal annars spurð út í samband sitt og Justins Bieber. Leno spurði hana meðal annars að því hvort móðir leikkonunnar hefði hitt Bieber. Gomez svaraði því játandi og þegar hún var innt eftir því hvernig mömmu hefði líkað nýi tengdasonurinn svaraði stúlkan: "Hann stóðst prófið.“ 13.6.2011 15:15
Úfið hár og eftirminnilega þröngur galli Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá söngkonuna Jennifer Lopez, 41 árs, flytja lagið On the floor, í breska sjónvarpsþættinum So You Think You Can Dance, með hárið áberandi úfið klædd í eftirminnilega þröngan galla sem fer henni þetta líka afburða vel. Þá má sjá myndir af Jennifer á hlaupum fyrir utan hótelið sitt, á rauða dreglinum uppástrílaða í klikkuðum stígvélum og í notalegum gráum íþróttagalla ómálaða með hárið tekið í tagl. Sjá myndirnar hér. 13.6.2011 14:17
Pippa vildi verða módel Pippa Middleton reyndi fyrir sér sem fyrirsæta þegar hún var við nám í Edinborgar-háskólanum. Hún kom fram á svipaðri góðgerðasýningu og systir hennar gerði þegar hún fangaði hug og hjarta Vilhjálms Bretaprins. 13.6.2011 12:00
Ánægð með Clooney Elisabetta Canalis segist vera afskaplega hamingjusöm með leikaranum George Clooney og að ekkert sé hæft í sögusögnum um sambandsslit þeirra. 13.6.2011 09:00
Steed Lord í So You Think You Can Dance Við urðum að skrifa undir rosa samning við Fox og gefa löglegt leyfi fyrir not af laginu okkar og gerðum það alveg fyrir tveimur mánuðum síðan. Við gáfum leyfi fyrir tveimur öðrum Steed Lord lögum sem verða í þættinum seinna eftir nokkrar vikur, svarar Svala Björgvinsdóttir söngkona hljómsveitarinnar Steed Lord sem búsett er í Los Angeles en lag sveitarinnar, Vanguardian, var notað í þættinum í vikunni. Lagið er af plötunni okkar Heart II Heart sem kom út í fyrra. Það hefur fengið góðar viðtökur út um allt og við höfum verið að spila það live mjög lengi út um allan heim, segir Svala. Það horfa margar milljónir á þennan þátt þannig að þetta er bara góð auglýsing fyrir bandið. Okkar tónlist er notuð mikið í bandarískum sjónvarpsþáttum og er til dæmis mikið í þáttum á stöðvum einsog MTV, V-H1 ,E Channel, Bravo og fleiri stöðvum. Fox stöðin sem er með So You Think You Can Dance styður mikið við bakið á þeim tónlistarmönnum sem gefa leyfi á tónlist sinni fyrir þættina og það er bara frábært fyrir okkur og opnar allskyns dyr, segir hún jafnframt og heldur áfram: Svo er hún Sonya Tayeh,danshöfundur, sem notar tónlistina okkar í þættina og hún vann að myndbandinu okkar 123 sem kom út fyrir fjórum mánuðum síðan og vann einnig með okkur að nýju myndbandi sem er að koma út í júlí. Hún er náin vinur okkar og það er bara rosalega gaman að okkar vinkona sé að semja svona flotta dansa við tónlistina okkar. Vefsíða Steed Lord. 1. Já auðvitað vissum við af þessu,við urðum að skrifa undir rosa samning við Fox og gefa löglegt leyfi fyrir not af laginu okkar og gerðum það alveg fyrir 2 mánuðum síðan. Við gáfum leyfi fyrir 2 öðrum Steed Lord lögum sem verða í þættinum seinna eftir nokkrar vikur. 2. Lagið sem var notað í gær er lag sem heitir Vanguardian og var af plötunni okkar Heart II Heart sem kom út í fyrra. Það hefur fengið góðar viðtökur út um allt og við höfum verið að spila það live mjög lengi út um allan heim. 3. Það horfa margar milljónir á þennan þátt þannig að þetta er bara góð auglýsing fyrir bandið. Okkar tónlist er notuð mikið í bandarískum sjónvarpsþáttum og er til dæmis mikið í þáttum á stöðvum einsog MTV,V-H1,E Channel,Bravo og fleiri stöðvum. Fox stöðin sem er með So You Think You Can Dance styður mikið við bakið á þeim tónlistarmönnum sem gefa leyfi á tónlist sinni fyrir þættina og það er bara frábært fyrir okkur og opnar allskyns dyr. Svo er hún Sonya Tayeh,danshöfundur, sem notar tónlistina okkar í þættina og hún vann að myndbandinu okkar 123 sem kom út fyrir 4 mánuðum síðan og vann einnig með okkur að nýju myndbandi sem er að koma út í júlí. Hún er náin vinur okkar og það er bara rosalega gaman að okkar vinkona sé að semja svona flotta dansa við tónlistina okkar. Takk takk fyrir að hafa áhuga á þessu Ellý...kann að meta það :) Hugs Svala 12.6.2011 11:27
Lífið býður í bíó Lækaðu Facebook síðu Lífsins og póstaðu bíóleiknum á Facebooksíðunni þinni ef þú vilt eiga möguleika á að vinna tvo miða á kvikmyndina SUPER 8 sem verður frumsýnd 15. júní í Sambíóunum. Meðfylgjandi má sjá myndir af Tom Cruise, sem mætti á frumsýningu Super 8 í Los Angeles til að styðja leikstjóra myndarinnar og vin sinn J.J. Abrams en hann leikstýrði Mission Impossible III. Steven Spielberg framleiðir myndina. Tom stillti sér upp með Elle Fanning, sem leikur Alice, í Super 8, en hún er búin að skapa sér nafn í Hollywood þrátt fyrir að vera aðeins 13 ára gömul. Skráðu þig í bíóleik Lífsins hér. 10 bíómiðar eru í verðlaunapottinum. 12.6.2011 10:05
Toppaði eigið brúðkaup með óléttufréttum Söngkonan Lily Allen giftist Sam Cooper í gær. Eins og sjá má var brúðurin, 26 ára, geislandi fögur í hvítum kjól síðum blúndukjól eftir franska hönnuðinn Delphine Manivet sem fór henni afskaplega vel og þá sér í lagi af því að hún er barnshafandi en nýgift hjónin tilkynnti fjölskyldu og vinum eftir athöfinina að Lily er gengin 16 vikur á leið með barnið þeirra. Það var virkilega tilfinningaþrungin stund þegar þau sögðu frá gleðitíðindinunum því Lily hefur tvisvar gengið í gegnum fósturmissi, fyrst sárið 2007 og síðan aftur árið 2010 sökum blóðeitrunar. Lily, sem ber nú eftirnafnið Cooper, ætlar að taka það rólega yfir meðgönguna og fara einstaklega vel með sig. 12.6.2011 09:45
J-Lo baðaði sig upp úr hænsnablóði Jennifer Lopez giftist þjóninum Ojani Noa í byrjun árs 1997 og entist hjónabandið í heilt ár. Eiginmaðurinn hefur þó ekki alveg horfið úr lífi Lopez því hann veitir enn viðtöl um tíma þeirra saman. 12.6.2011 09:30
Hætt að selja stolinn Hugleiksbol „Ég man ekki eftir að hafa rekist áður á að einhver sé að taka myndirnar mínar í leyfisleysi og setja á boli,“ segir listamaðurinn Hugleikur Dagsson. 12.6.2011 09:00
Halda skilnaðarpartý Rokkarinn Jack White og eiginkona hans, módelið Karen Elson, ætla að halda veislu fyrir sína nánustu, bæði til að fagna sex ára brúðkaupsafmæli sínu og svo skilnaðinum sem þau ganga nú í gegnum. 11.6.2011 18:27
Tónleikahaldari leitar sátta við lögreglu „Þetta kom flatt upp á mig, ég man ekki eftir því að þetta hafi verið gert áður. Maður skyldi ætla að það væri hægt að líta fram hjá þessu þegar svona stórir tónleikar fara fram. Ég veit ekki alveg hvaða tilgangi þetta þjónar, þetta virkar á mig eins og fjáröflun,“ segir Ísleifur B. Þórhallsson tónleikahaldari. Hann er ósáttur við aðgerðir lögreglunnar á tónleikum Eagles á fimmtudagskvöld, en fjöldi fólks fékk sekt fyrir að leggja ólöglega fyrir utan Laugardalshöllina. 11.6.2011 16:30
Fjölmennt á Skjaldborg á Patreksfirði Meðfylgjandi myndir voru teknar á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda, sem var sett í fimmta sinn í gærkvöldi á Patreksfirði. Við setningarathöfnina var klukkan færð fram um eina klukkstund og tekinn upp sumartími eða Skjaldborgartími öllu heldur. Opnunarmynd hátíðarinnar var heimildamyndin Jón og séra Jón eftir Steinþór Birgisson. Myndin fjallar um Jón Ísleifsson prest á Vestfjörðum. Yfir tuttugu nýjar íslenskar heimildamyndir verða frumsýndar á hátíðinni. Heiðursgestur Skjaldborgar í ár er Ómar Ragnarsson. Hátíðinni lýkur á sunnudagskvöld þegar áhorfendaverðlaun hátíðarinnar, Einarinn, verða afhent. Fjölmennt er á Patreksfirði í tilefni af hátíðinni. 11.6.2011 16:23
Kate Winslet fótósjoppuð í tætlur Leikkonan Kate Winslet, 35 ára, auglýsir haustlínu St. John í ár en fyrsta myndin úr herferðinni þar sem Kate situr fyrir í svörtum kjól stórglæsileg að vanda hefur verið birt. Ég læt eins og ég sé fyrirsæta þegar ég klæðist fötunum þeirra en ég er augljóslega ekki fyrirsæta. Ég er ekki með rétta fyrirsætu-andlitið eða líkamslögunina, sagði Kate. Þá má sjá Kate með hárið í tagl, ómálaða á hlaupum um götur New York borgar í vikunni og auglýsingamyndir þar sem leikkonan er fótósjoppuð með aðstoð tölvutækninnar. 11.6.2011 12:58
Bloggarar ráða ekki hvað er í sjónvarpinu "Ég er mjög sáttur við útkomuna,“ segir Gestur Valur Svansson, leikstjóri gamanþáttanna Tríó sem voru frumsýndir á RÚV á fimmtudagskvöld. Tríó virðist ætla að vekja misjöfn viðbrögð hjá almenningi. Á fréttablogginu Fréttir af Facebook á Eyjunni voru tekin saman neikvæð ummæli úr ýmsum áttum í kjölfar frumsýningar þáttarins. Kvikmyndagerðarmaðurinn Gagga Jónsdóttir bað RÚV til dæmis um að endurgreiða sér afnotagjöldin með millifærslu. 11.6.2011 11:00
Íslendingar með í nýju evrópsku milljarðalottói Tuttugu lottófyrirtæki í tíu Evrópulöndum skrifuðu hinn 7. júní síðastliðinn undir samstarfssamning um að byrja með nýtt lottó undir nafninu Euro Jackpot. Vinningsupphæðin í nýja lottóinu yrði aldrei lægri en tíu milljónir evra, eða 1,7 milljarðar íslenskra króna. Hann gæti þó orðið allt að níutíu milljónum evra, eða tæpir fimmtán milljarðar íslenskra króna. Löndin tíu eru Þýskaland, Holland, Danmörk, Ísland, Noregur, Slóvenía, Finnland, Eistland, Ítalía og Spánn. Samtals búa um 200 milljónir manna í þessum löndum. 11.6.2011 10:00