Íslendingar með í nýju evrópsku milljarðalottói 11. júní 2011 10:00 Ef Euro Jackpot verður að veruleika eiga Íslendingar möguleika á að vinna allt frá 1,7 milljörðum íslenskra króna í hverri viku upp í tæpa fimmtán milljarða. Alls eiga tíu lönd aðild að þessum risapotti og því gætu um 200 milljón spilarar verið að keppa um hinar háu fjárhæðir. Stefán Konráðsson segir nýja lottóið frábæra hugmynd. Mynd/Stefán Karlsson
Tuttugu lottófyrirtæki í tíu Evrópulöndum skrifuðu hinn 7. júní síðastliðinn undir samstarfssamning um að byrja með nýtt lottó undir nafninu Euro Jackpot. Vinningsupphæðin í nýja lottóinu yrði aldrei lægri en tíu milljónir evra, eða 1,7 milljarðar íslenskra króna. Hann gæti þó orðið allt að níutíu milljónum evra, eða tæpir fimmtán milljarðar íslenskra króna. Löndin tíu eru Þýskaland, Holland, Danmörk, Ísland, Noregur, Slóvenía, Finnland, Eistland, Ítalía og Spánn. Samtals búa um 200 milljónir manna í þessum löndum. „Það er ekkert öruggt í hendi, þetta er gríðarlega flókið tæknilega en við gerum okkur vonir um að línur skýrist hinn 23. nóvember. Þetta er frábær hugmynd en hún þarf líka að fá leyfi hjá ríkisstjórnum allra þeirra landa sem eiga aðild að þessu,“ segir Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar getspár. Samkvæmt frétt sem birtist í ríkisútvarpi Eistlands er gert ráð fyrir því að fyrsti drátturinn í lottóinu verði strax á næsta ári en Stefán vill ekki staðfesta það; enn eigi eftir að hnýta ansi marga lausa hnúta. „Við höfum unnið í þessu í sex ár, höfum kannað hvort þetta væri raunhæfur möguleiki. Samningaviðræðurnar hafa síðan staðið yfir í þrjú ár,“ segir Stefán, sem kveðst þó vera spenntur fyrir þessu, ef af verður. Og það er kannski ekkert skrýtið að Stefán skuli setja varnagla við málið, því fyrir þremur árum greindi Fréttablaðið frá því að nýtt milljarðalottó væri væntanlegt. Þá átti lottóið að hefjast strax síðar sama ár. Stærsti lottópotturinn sem Íslendingar geta unnið í dag er Víkingalottóið, sem dregið er í á miðvikudögum. Einfaldur pottur í því er yfirleitt um hundrað milljónir íslenskra króna. Vinsælasta lottóið er hins vegar hið sígilda Lottó á laugardögum, þar sem dregið er í beinni útsendingu. Þar er fyrsti vinningur í kringum fimm milljónir íslenskra. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Fleiri fréttir Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Sjá meira