Tapaði heilli hryllingsmynd 15. júní 2011 07:45 Stolið leikrit Rithöfundurinn Hugleikur Dagsson er í sárum eftir að tölvu hans var stolið. Á henni var meðal annars handrit að leikriti sem sett verður upp í Borgarleikhúsinu í vetur. fréttablaðið/stefán
Rithöfundurinn og grínistinn Hugleikur Dagsson lenti í þeirri óskemmtilegu reynslu að brotist var inn til hans um helgina. Þjófarnir höfðu meðal annars á brott með sér tölvu sem hefur að geyma óbirt leikrit, tvær bækur og handrit að hans fyrstu hryllingsmynd. „Ég er hálf lamaður eftir þetta,“ segir Hugleikur Dagsson rithöfundur, en brotist var inn til hans á laugardagskvöldið og heimilið hreinsað af tölvum, hljómgræjum, sjónvarpsflakkara og upptökuvél. Ein af tölvunum tveimur sem var stolið frá Hugleiki, grá MacBook Pro þakin Star Wars límmiðum, hefur að geyma ævistarf Hugleiks. Þar á meðal er leikrit sem hann hefur verið með í smíðum í nokkurn tíma og áætlað er að fari á fjalir Borgarleikhússins á komandi leikári. „Ég vil ekki gefa of mikið uppi um söguþráð og titil leikritsins en ég var tilbúinn með fyrsta uppkastið. Svo var ég hálfnaður með annað uppkastið og á ekki til neitt afrit af því,“ segir Hugleikur. Á umræddri tölvu voru einnig handrit að framhaldsbókunum Popular Hits 2 og Garðarshólmi 2 en þær eiga báðar að koma út fyrir jólin. „Handritið að minni fyrstu hryllingsmynd er einnig á tölvunni og það væri frekar súrt að glata því. Á upptökuvélinni var svo skemmtileg heimildarmynd um ferðalag mitt um páskana á hátíðina Aldrei fór ég suður. Allt er þetta ómetanlegt í mínum augum og ég er í sjokki yfir að þetta sé horfið,“ segir Hugleikur og bætir við að hann geti ekki hugsað þá hugsun til enda að tölvan komi ekki í leitirnar. Hugleikur er því tilbúinn að greiða fundarlaun og biður almenning að hafa augu og eyru opin enda framtíð gríns á Íslandi í húfi. alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Fleiri fréttir Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Sjá meira