Sveppi í sólarhring uppi á jökli 14. júní 2011 12:15 Bragi Þór Hinriksson, leikstjóri Sveppa-myndanna, leiðbeinir þeim Guðjóni Davíð, Sveppa og Vilhelm Antoni fyrir tökur.Myndir/Ægir J. Guðmundsson „
Það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart hversu mikið vesen það er að gera eina bíómynd," segir Sverrir Þór Sverrisson. Hann er byrjaður á þriðju Sveppa-myndinni en hinar tvær hafa slegið rækilega í gegn hjá yngstu kynslóðinni. Í síðustu mynd prófaði Sverrir að gera myndina með hinni vinsælu þrívíddar-tækni en mynd númer þrjú verður unnin á hefðbundinn hátt. „Við erum búnir með þrívíddina." Sverrir var nýkominn niður af Langjökli þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Þar var hann ásamt leikurum og leikstjóranum Braga Hinrikssyni í nánast heilan sólarhring að taka upp eina senu. „Það svífur svolítill James Bond-andi yfir vötnum í því atriði, við Bragi höfum heldur aldrei verið feimnir við að vísa í aðra myndir." Sverrir segir tökurnar hafa verið hreint ævintýri þótt þær hafi vissulega tekið á enda voru þeir uppi á jökli í tæpa tuttugu klukkutíma með snjótroðara og snjósleða í fullri vinnu. Dularfullur og fljúgandi töfraskápur leikur lykilhlutverk í myndinni en vondi karlinn, leikinn af Halli Ingólfssyni, ásælist hann mjög og vill selja hann til útlanda. „Vondi karlinn er ekkert það vondur ef maður les milli línanna, hann er góður að upplagi en hefur bara villst af braut," segir Sverrir sem lofar mikilli og spennu og miklu fjöri. „Þetta er mikið ævintýri."- fggBragi leikstjóri sáttur með ferðina.Það var ægifagurt um að litast uppi á Langjökli þegar tökuliðið var að störfum.Smá James Bond-andi sveif yfir vötnum þegar þeir félagarnir þeyttust eftir ísnum.
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Fleiri fréttir Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sjá meira