Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Pælir ekki í vextinum Söngkonan Adele segist ekki hafa tíma til að velta sér upp úr smáhlutum líkt og vexti sínum og segir tónlist sína vera fyrir eyrun, ekki augun. 17.4.2011 15:00
Sjúkdómurinn eins og þrumuský "Það er ekki bara ég sem dett niður heldur detta allir niður með mér. Sjúkdómurinn hangir bara yfir mér eins og þrumuský. Og svona er þetta bara, ég varð bara að leita mér hjálpar,“ segir Catherine Zeta Jones í samtali við breska blaðið Mirror. Zeta Jones lagðist inn á geðdeild í síðustu viku eftir að hún var greind með geðhvörf eða bipolar II. Það var eiginmaður hennar, Michael Douglas, sem fylgdi henni inn á geðsjúkrahúsið Silver Hill í Connecticut. "Ég er mjög heppin og reyni að vera jákvæð. Það er ekki gott fyrir persónuleika minn að vera neikvæð.“ 17.4.2011 14:00
Elvis syngur í Hörpunni Bandaríski tónlistamaðurinn Elvis Costello heldur tónleika í Hörpunni hinn 21. nóvember næstkomandi. Þetta er í annað sinn sem Costello kemur til Íslands en aftur á móti fyrstu tónleikarnir hans; hann kom hingað til lands og hlýddi á tónleika eiginkonu sinnar, Diönu Krall, árið 2003. Elvis Costello verður einn á sviði og hyggst flytja öll sín bestu lög auk þess sem áhugasamir geta farið inn á heimasíðu hans, elviscostello.com, og beðið um óskalög. 17.4.2011 13:00
Afmælispartý Völu Grand Meðfylgjandi myndir voru teknar í 25 ára afmæli Völu Grand á veitingastaðnum Oliver í gærkvöldi. Margt var um manninn og afmælisstelpan í miklu stuði eins og sjá má á myndunum. Pabbi Völu og Haffi Haff héldu tölu áður en hún skar væna sneið af afmælistertunni sem mamma hennar bakaði. 17.4.2011 10:16
Vill fá frí frá unnustanum Söngkonan Jessica Simpson er orðin þreytt á því að hafa unnusta sinn, íþróttamanninn fyrrverandi Eric Johnson, alltaf í kringum sig. Johnson hefur verið atvinnulaus frá árinu 2008 og eyðir því öllum sínum stundum með Simpson. 17.4.2011 09:30
Fjölmenni í afmæli Björgvins Meðfylgjandi myndir voru teknar í Háskólabíó í sextíu ára afmælisveislu Björgvins Halldórssonar eftir síðari tónleika hans í kvöld sem voru vægast sagt frábærir að sögn tónleikagesta. Eins og sjá má á myndunum voru Björgvin og afmælisgestir í hátíðarskapi en hann fékk meðal annars gítar að gjöf frá félögunum. 17.4.2011 00:00
Idol gaur ástfanginn af Twilight stjörnu Paul McDonald, 26 ára, sem var rekinn úr American Idol í gærkvöldi og Twilight leikkonan Nikki Reed, 22 ára, eru yfir sig ástfangin. Já ég og Nikki erum að hittast. Það er opinbert, sagði Paul í viðtali á sjónvarpsstöðinni E! Hún er mjög kúl. Hún er klár og ég er svo ánægður með það. Við höfum verið saman undanfarið þrátt fyrir að hafa nóg að gera. Paul viðurkennir að Nikki er á bömmer yfir því að hann var rekinn úr þættinum í gærkvöldi en sér jákvæðu hliðarnar á brottrekstrinum. Hún sagði við mig: Gaur ekki örvænta. Nú þegar þú verið þú sjálfur og gert það sem þú vilt gera og verið litamaðurinn sem þú sannarlega ert. 16.4.2011 14:00
Nýtt par í Hollywood Ef marka má slúðurmiðla vestanhafs eru leikaranir Charlize Theron og Keanu Reeves að stinga saman nefjum. Ónefndir heimildarmenn úr vinahópi þeirra staðfesta sambandið en segja leikarana vera að bíða með að opinbera þangað til þau flytja saman til Englands, en bæði eru að taka upp kvikmyndir þar á næstu vikum. 16.4.2011 14:00
Tugir milljóna í íslenskt grín „Þetta þýðir bara það að þættirnir fara í loftið,“ segir Ragnar Hansson, leikstjóri sjónvarpsþáttanna Mið-Ísland, sem verið er að skrifa um þessar mundir. 16.4.2011 14:00
Playmo tryllir lýðinn í sumar Ballhljómsveitin Playmo ætlar að sér stóra hluti í sumar. Vinskapur við hljómsveitirnar Mars og Dalton varð til þess að Playmo var stofnuð. 16.4.2011 13:00
Biðlaði til vina um hreint piss Brooke Mueller, sem er hvað best þekkt fyrir að vera fyrrum eiginkona vandræðagemlingsins Charlie Sheen, á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir. Ekki nóg með að þurfa að takast á fyrrum eiginmann sinn um forræði yfir tveggja ára tvíburadrengjum sínum, virðist Mueller eiga sjálf við fíkniefnavandamál að stríða. 16.4.2011 11:00
Safnar kröftum fyrir risasumar „Ég er ekki búinn að fara úr náttfötunum í svona 72 tíma,“ segir Árni Hjörvar Árnason, bassaleikari bresku hljómsveitarinnar The Vaccines. 16.4.2011 11:00
Aftur saman Heyrst hefur að fyrrum hjónakornin Jude Law og Sadie Frost gætu tekið aftur saman, nú þegar Law hefur skilið í þriðja sinn við leikkonuna Siennu Miller. 16.4.2011 09:00
Bríarí opnað Tómstundahúsið Bríarí var opnað í Kex Hostel við Skúlagötu á fimmtudaginn. Húsið verður opið um helgina í tengslum við tónlistarhátíðina Reykjavík Music Mess. 16.4.2011 07:30
Til heiðurs Perkins Blúshátíð í Reykjavík hefst í áttunda sinn í dag með ýmsum uppákomum í miðbænum. Þar á meðal verður tilkynnt um heiðursfélaga Blúsfélags Reykjavíkur. Bandaríska blúsarans Pinetop Perkins, sem lést á dögunum 97 ára gamall, verður minnst um helgina, enda spilaði hann með íslensku hljómsveitinni Blue Ice Band og kom fram á Blúshátíð fyrir tveimur árum. Tónleikar honum til heiðurs verða haldnir á Rosenberg í kvöld þar sem fjöldi tónlistarmanna ætlar að heiðra Perkins, þar á meðal Vinir Dóra, Ragnheiður Gröndal og Hilmar Örn Hilmarsson. Allur ágóðinn rennur til Pinetop Perkins stofnunarinnar. 16.4.2011 06:00
Þú vinnur ekkert ef þú gerir ekkert Langar þig að lesa góða bók í páskafríinu? Fylgstu þá með á Facebooksíðu Lífsins, deildu henni á vegginn þinn og kvittaðu á síðuna okkar. Í verðlaunapottinum eru alls níu bækur. Það eru bækurnar Mundu mig, ég man þig eftir Dorothy Koomson, Prjónaklúbburinn eftir Kate Jacobs og Brothætt eftir Jodi Picoult. Níu vinningshafar verða dregnir út á miðvikudaginn kemur. Vertu með! Eina sem þú þarft að gera er að ýta á LIKE hnappinn, deila og kvitta HÉR. 15.4.2011 19:43
Brjálæðingur gengur laus Annar þáttur af nýju seríunni af Steindanum okkar fór í loftið á Stöð 2 í gær. Eins og alltaf endaði þátturinn á tónlistarmyndbandi, sannkallaðri sprengju um furðulegan gaur sem kallar sig Altmuligtmand. Í þættinum kölluðu Steindi og Ágúst Bent leikstjóri til sín fjöldan allan af aukaleikurum í frábærum atriðum, þeirra á meðal Þorstein Guðmundsson. Hann leikur erkióvin Altmuligmand í myndbandinu, harðgera og drykkfellda löggu sem hikar ekki við að skjóta til að leysa málið. 15.4.2011 21:26
Zeta-Jones á geðdeild Catherine Zeta Jones hefur lagt sjálfa sig inn á geðdeild. Hún hefur verið greind með geðhvörf en talið er að sjúkdómurinn hafi blossað upp vegna streitu í kringum veikindi eiginmanns hennar. 15.4.2011 19:30
Fann bæði eiginmann og hljómsveit á Íslandi „Ísland er stór hluti af lífi mínu,“ segir Heather Kolker, nýráðinn umboðsmaður hljómsveitarinnar Of Monsters and Men, sigurhljómsveitar Músíktilrauna í fyrra. 15.4.2011 17:30
Var bara fegurðardrottningum boðið? Stóra stundin rann upp í gær þegar að sigurvegari í Trúbadorkeppni FM957 og Corona var krýndur á Players. Það má með sanni segja að stemningin hafi náð nýjum hæðum í Kópavoginum þar sem staðurinn var troðfullur og fólk greinilega mætt til þess að skemmta sér og styðja sitt atriði í keppninni. Verkefni kvöldsins var því ekki öfundsvert fyrir dómnefndina sem var skipuð af þeim Haffa Haff tískugúrú og söngdrottningunum Heru Björk og Regínu Ósk ásamt Brynjari Má sem sat í dómnefnd sem fulltrúi FM957. Eftir að öll atriði kvöldsins höfðu lokið sér af fór dómnefnd afsíðis til að gera það upp sín á milli hver stæði upp sem sigurvegari og kom það á daginn að Eskfirðingarnir og bræðurnir Eiríkur og Magnús Hafdal sigruðu keppnina og var álit dómnefndar einróma. Það voru strákarnir í Bee On Ice, sigurvegararnir frá því í fyrra sem afhentu farandsbikarinn til bræðranna sem eru svo sannarlega vel að sigrinum komnir en atriðið þeirra þótti afburðarbest að mati dómnefndar kvöldsins. FM957 vill nota tækifærið og þakka öllum þeim sem tóku þátt bæði í áheyrnarprufunum og í keppninni sjálfri kærlega fyrir. Keppnin hefur stækkað ár frá ári og er óhætt að segja að keppnin í ár hafi verið sú stærsta hingað til. 15.4.2011 16:13
Lennon-texti boðinn upp Handskrifaður texti Johns Lennon við Bítlalagið Lucy in the Sky with Diamonds verður seldur á uppboði í Los Angeles um miðjan maí. Talið er að yfir 22 milljónir króna fáist fyrir textann. Á textablaðinu er þriðja erindi lagsins skrifað niður og fyrsta setning lagsins She"s Leaving Home. Bæði lögin eru á plötunni Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band sem kom út 1967. 15.4.2011 16:00
Bríarí opið um helgina Tómstundahúsið Havarí, sem lagðist í dvala í janúar, hefur opnað skammtímaútibúið Bríarí á Skúlagötu 28 þar sem Kex Hostel er einnig til húsa. Tilefnið er tónlistarhátíðin Reykjavík Music Mess sem hefst í dag og lýkur á sunnudag. 15.4.2011 16:00
Ekki lesa þessa frétt ef þú ert ekki partýdýr Heimildarmyndin Iceland Food Centre eftir Þorstein J. verður frumsýnd á Stöð 2 klukkan 20.00 á páskadag. Af því tilefni var haldinn gleðskapur í Listasafni Reykjavíkur, þar sem aðstandendur myndarinnar og góðir gestir komu saman. Sýnt var brot úr myndinni og leikstjórinn Þorsteinn J. þakkaði samverkafólki frábært starf og sagði lauslega frá sögu myndarinnar sem er byggð á rannsóknum Sólveigar Ólafsdóttur, sem vann gögn um þessa fyrstu íslensku útrás, íslenska veitingastaðinn sem var opnaður með pomp og prakt í London árið 1965. Við þetta tækifæri afhenti Auður Sveinsdóttir, dóttir eins stjórnarmannsins í Iceland Food Centre, Þorsteini og Sólveigu matardiska frá veitingastaðnum. Þeir komu í leitirnar fyrir nokkrum vikum þegar Fréttablaðið sagði frá því að Þorsteinn væri að leita að materstellinu margfræga frá Iceland Food Centre. 15.4.2011 14:55
Sumir blómstra eftir skilnaðinn Desperate Housewives stjarnan Eva Longoria, 36 ára, stillti sér upp klædd í ferskjulitaðan glæsilegan kjól eftir vinkonu sína Victoriu Beckham, áður en hún áritaði nýju bókina sína Eva's Kitchen í verslun Barnes & Noble í Los Angeles. Þá má einnig sjá Evu á leiðinni í sjónvarpsviðtal í myndasafni. 15.4.2011 13:40
Margeir velur tónlistina í háloftunum „Þetta er frábær áskorun,“ segir plötusnúðurinn Margeir Ingólfsson, sem er orðinn nokkurs konar tónlistarstjóri í flugvélum Icelandair. 15.4.2011 12:00
Danir koma Friðriki til varnar Danir skiptast í tvo hópa gagnvart hegðun krónprinsins Friðriks í vikunni. Danska útgáfan af Séð og heyrt birti myndir af prinsinum á djamminu nokkrum dögum fyrir skírn tvíburanna hans og birtir á heimasíðu sinni myndband af verðandi kónginum dansa við föngulega blondínu undir þéttum takti "90 slagarans Rythm of the Night. Tvíburarnir voru skírðir í gær, strákurinn heitir Vincent en stúlkan Jósefína en kóngafólk frá Evrópu var viðstatt og Friðrik virtist hafa hrist grámyglulega þynnkuna af sér. 15.4.2011 11:00
Ágústa Eva og Valgerður Guðna á stórtónleikum Söngkonurnar Valgerður Guðnadóttir og Ágústa Eva Erlendsdóttir verða einsöngvarar á tónleikum í Langholtskirkju á sunnudag og mánudag. Þá efna Samkór Kópavogs og Kór Menntaskólans við Sund til tónleika í samvinnu við kennara og lengra komna nemendur úr tónlistarskólum á höfuðborgarsvæðinu. Fram koma um 100 söngvarar og sinfóníuhljómsveit með 60 hljóðfæraleikurum en flutt verður verkið Stabat Mater eftir Karl Jenkins. 15.4.2011 09:09
Jónas Sigurðsson og Valdimar í Austurbæ í kvöld Það verða þrusutónleikar í Austurbæ í kvöld. Stuðsveitirnar Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtíðarinnar og Valdimar halda tónleika og flytja lög af nýju plötunum sínum, Allt er eitthvað og Undraland. Meðal hápunkta kvöldsins verður án efa þegar Jónas slær í lagið Hamingjan er hér en lagið var valið besta lag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum um daginn. Þar var einnig platan Allt er eitthvað tilnefnd sem plata ársins og Jónas tilnefndur sem textahöfundur ársins. 14.4.2011 16:47
Óánægja með Hróarskelduhátíðina Danskir tónlistargagnrýnendur eru æfir yfir dagskrá Hróarskelduhátíðarinnar og segja hana vægast sagt ömurlega. Danskt tónlistaráhugafólk virðist vera þeim sammála. 14.4.2011 16:00
Scarlett er ekki ólétt Bandaríska leikkonan Scarlett Johansson blæs á sögusagnir þess efnis að hún sé með barni. Bandarískir slúðurmiðlar hafa mikið verið að velta þessu fyrir sér eftir að mynd birtist af leikkonunni úti að skokka og breiðari um sig miðja en gengur og gerist. Barnsfaðirinn mun þá vera leikarinn og meintur ástmaður Johansson, Sean Penn. Þess ber að geta að síðast þegar Johansson sló á sögusagnir um sjálfa sig í slúðurmiðlunum var það einmitt um samband hennar við Penn sem nú er staðfest. 14.4.2011 14:00
Spennandi myndir frumsýndar Nóg er um að vera í íslenskum kvikmyndahúsum um þessa helgi. Að venju má finna vandaðar kvikmyndir í Bíó Paradís en þar ber hæst frumsýning Boy, nýsjálenskrar kvikmyndar um Dreng, 11 ára gamlan strák sem hittir pabba sinn í fyrsta skipti. Og sá reynist vera allt öðruvísi en Drengur hafði gert sér í hugarlund um. 14.4.2011 12:00
Skapbráðir snúa bökum saman Stórleikararnir Christian Bale og Sean Penn eru nú sagðir líklegastir til að hreppa aðalhlutverkin í spennutryllinum The Last Photograph. Þetta er gæluverkefni bandaríska leikstjórans Zach Snyder sem gerði síðast hina arfaslöku Sucker Punch en hann mun einnig leikstýra næstu Ofurmennismynd. 14.4.2011 12:00
Jón Jónsson reynir að vera einlægur á fyrstu plötunni Jón Jónsson hefur vakið talsverða athygli undanfarið fyrir sumarlega popptóna sem hafa hljómað á öldum ljósvakans. Nú er plata á leiðinni frá Jóni Ragnari og félögum. „Við tókum lögin upp í janúar og erum búnir að vera að fínpússa síðan. Ferlið er komið mjög langt,“ segir tónlistarmaðurinn Jón Ragnar Jónsson. 14.4.2011 11:00
Gyllenhaal hreifst af íslensku stelpunum „Ég var að koma heim frá Ástralíu þar sem við vorum að hljóðblanda nýjustu myndina mína, The Killer Elite, og rakst þá á Jake í flughöfninni,“ segir Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi með meiru. Hann hitti Jake Gyllenhaal á mánudaginn í flugstöð Leifs Eiríkssonar þegar leikarinn var að yfirgefa landið eftir ævintýralega helgi. 14.4.2011 11:00
Elin ekki fengið krónu frá Tiger Elin Nordegren hefur ekki fengið krónu frá fyrrverandi eiginmanni sínum, Tiger Woods. Hjónakornin skildu í ágúst í fyrra og samkvæmt dómsátt á Tiger að greiða Elin 110 milljónir dollara. En samkvæmt bandarískum netmiðlum hefur sænska fyrirsætan ekki fengið neitt. Tiger greiðir henni þó meðlag en það er ekki hluti af skilnaðarsamkomulaginu sjálfu. 14.4.2011 11:00
Kvikmyndafólk syrgir Lumet Bandaríski leikstjórinn Sidney Lumet andaðist í síðustu viku, 86 ára að aldri. Fjölmargir kvikmyndagerðarmenn hafa vottað honum virðingu sína að undanförnu og látið í það skína að hann hafi verið í fremstu röð leikstjóra. 14.4.2011 11:00
Spennandi tónlistarkokkteill TV on the Radio frá Brooklyn í New York hefur gefið út plötuna Nine Types of Light. Hljómsveitin er þekkt fyrir að hrista saman ýmsar tónlistarstefnur í litríkan og bragðgóðan kokkteil. 14.4.2011 10:00
Leikrit um leðurblöku Framleiðendur nýrrar Batman-leiksýningar í Bretlandi hafa lofað því að vandamálin við sýninguna verði ekki þau sömu og í söngleik um Köngulóarmanninn í Bandaríkjunum sem ítrekað hefur verið frestað. „Sú sýning er allt öðruvísi en okkar. Einu líkindin eru þau að bæði verkin fjalla um ofurhetjur,“ sagði Anthony van Laast, leikstjóri Batman Live, í viðtali við BBC. 14.4.2011 09:00
Til Íslands í þriðja sinn Þýski plötusnúðurinn Stephan Bodzin spilar á Nasa miðvikudaginn 20. apríl. Hann er að koma hingað í þriðja sinn. Bodzin er þekktur fyrir að spila mínímalíska teknótónlist. Aðrir sem koma fram á Nasa eru Oculus, Steffan J, Mr. Cuellar og Balrock. Miðasalan er í Mohawks í Kringlunni og kostar 2.500 krónur. 14.4.2011 08:00
Aukakílóin hrynja af skokkandi útgáfustjóra Eiður Arnarsson, útgáfustjóri afþreyingarfyrirtækisins Senu, hefur misst þrettán kíló síðan hann byrjaði að stunda langhlaup í september ásamt eiginkonu sinni. Hann stefnir á að hlaupa hálfmaraþon (21 km) í Reykjavíkurmaraþoninu í haust. 14.4.2011 06:00
Uppstokkun á FM 957 „Ég vil ekki gefa mikið upp, en það eru stórir hlutir að gerast á FM,“ segir Heiðar Austmann, dagskrárstjóri FM 957. 14.4.2011 06:00
Aðdáendur Coldplay fara ekki alla leið Aðdáendur bresku hljómsveitarinnar Coldplay eru ólíklegastir allra tónlistaraðdáenda til að stunda kynlíf á fyrsta stefnumóti. Könnun vefsíðunnar Tastebuds.fm leiðir þetta í ljós, en vefsíðan leiðir saman fólk eftir tónlistarsmekk. 14.4.2011 05:00
Danski prinsinn á kvennafari Danskir fjölmiðlar fara nú mikinn vegna myndbands sem sýnir Friðrik krónprins láta vel að konu á skemmtistað nokkrum dögum fyrir skírn tvíbura hans. 14.4.2011 04:00
Með ævintýralegt húðflúr af Mjallhvíti Ég er sérstakur aðdáandi Disney-teiknimyndanna og hef alla tíð horft mikið á fyrstu teiknimynd Disney; Mjallhvíti,“ segir Eyrún Helga Guðmundsdóttir klippari. Hún skartar litskrúðugu húðflúri af aðalpersónum teiknimyndarinnar Mjallhvítar og vekur mikla athygli fyrir vikið. "Ég vinn sem klippari, er til dæmis að klippa þættina Makalaus núna. Ég er útskrifuð úr Kvikmyndaskóla Íslands, teikna mikið sjálf og langaði að fá mér tattú sem væri fullt af litum og fallegum persónum, eins og ævintýrið um Mjallhvíti hefur.“ Jón Páll Halldórsson húðflúrmeistari hjá Íslenzku húðflúrstofunni sá um verkið. "Ég treysti Jóni Páli vel þannig að ég var ekkert stressuð, en ég hefði ekki treyst öðrum til að gera þessa mynd, það er mjög gott að vinna með honum. Jú, þetta hefur vakið mikla athygli og fólki finnst ótrúlegt að hægt sé að gera tattú að svona miklu listaverki, með þessum skyggingum. Tattúlistin hefur nefnilega þróast svo mikið síðustu árin, með betri nálum og tækni.“ 13.4.2011 22:30
Hjálmar spila fyrir íslenska keppendur Hljómsveitin Hjálmar heldur tónleika til styrktar íslenskum keppendum á Special Olympics 2011. Tónleikarnir fara fram á Nasa á föstudaginn. Sérstakur gestur verður hljómsveitin Valdimar. Meðlimir Hjálma vilja koma því á framfæri að þeim þykir afskaplega vænt um að fá að standa fyrir þessum tónleikum og hjálpa þannig einstöku íslensku íþróttafólki að láta draum sinn rætast. Miðaverð er kr. 1.500 og renna peningarnir óskiptir til ferðarinnar. Miðasala er við innganginn. Húsið verður opnað kl. 21 og tónleikarnir hefjast kl. 22. 13.4.2011 18:45