Aukakílóin hrynja af skokkandi útgáfustjóra 14. apríl 2011 06:00 Útgáfustjórinn Eiður Arnarsson hleypur í Elliðaárdalnum fjórum til fimm sinnum í viku. fréttablaðið/stefán
Eiður Arnarsson, útgáfustjóri afþreyingarfyrirtækisins Senu, hefur misst þrettán kíló síðan hann byrjaði að stunda langhlaup í september ásamt eiginkonu sinni. Hann stefnir á að hlaupa hálfmaraþon (21 km) í Reykjavíkurmaraþoninu í haust. „Það var engin sérstök ástæða fyrir því að ég ákvað að prófa þetta. Það var kominn tími til að reyna að gera eitthvað. Ég var orðinn aðeins of þungur,“ segir Eiður, sem hafði ekki hreyft sig að ráði síðan hann var kjörinn besti leikmaður 5. flokks B-liða hjá Þór í Vestmannaeyjum árið 1978. Hann fær mikla ánægju út úr hlaupunum, auk þess sem þau nýtast honum vel í starfinu. „Ég held að þetta sé þetta margfræga endorfínkikk sem margir tala um og ég get ekki hugsað mér að fara út að hlaupa án þess að hlusta á músík. Fyrir vikið er ég að hlusta ennþá meira en áður.“ Hann hleypur í Elliðaárdalnum fjórum til fimm sinnum í viku, tíu til tuttugu kílómetra í senn. „Einhver benti mér á að maður ætti að nota önnur áhugamál inn í þetta til að hjálpa sér. Ég er eins og flestir karlmenn með óttalega tæknidellu og ég er búinn frá fyrsta degi að hlaupa með GPS-staðsetningarkerfi. Þannig að maður er að nota nýja, flotta snjallsímann til að halda utan um vegalengdir og hraða.“ Eiður er mikill matgæðingur og hefur verið duglegur að deila því áhugamáli með vinum sínum á Facebook. Hann segir að hlaupin geri sér kleift að halda áfram að borða gómsætan mat án þess að fá of mikið samviskubit. „En eflaust kemur að því að maður þarf að vitkast á þeim vettvangi líka.“ freyr@frettabladid.is
Mest lesið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Lífið Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Fleiri fréttir Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Sjá meira