Danir koma Friðriki til varnar 15. apríl 2011 11:00 Friðrik krónprins hellti nokkrum drykkjum í sig eftir FCK-leik og dansaði við ljósku á skemmtistaðnum Simon. Málið er talið eiga eftir að auka vinsældir prinsins hjá helmingi þjóðarinnar, hinir munu krefja hann um ábyrgari hegðun.
Danir skiptast í tvo hópa gagnvart hegðun krónprinsins Friðriks í vikunni. Danska útgáfan af Séð og heyrt birti myndir af prinsinum á djamminu nokkrum dögum fyrir skírn tvíburanna hans og birtir á heimasíðu sinni myndband af verðandi kónginum dansa við föngulega blondínu undir þéttum takti "90 slagarans Rythm of the Night. Tvíburarnir voru skírðir í gær, strákurinn heitir Vincent en stúlkan Jósefína en kóngafólk frá Evrópu var viðstatt og Friðrik virtist hafa hrist grámyglulega þynnkuna af sér. En það eru ekki allir Danir sem eru sáttir við fréttaflutning blaðsins Se og hør. Þeir telja að myndbandið sýni ekkert ósæmilegt og að blaðið hafi gert úlfalda úr mýflugu. „Flestir elska hversu alþýðuleg Friðrik og kona hans, Mary Donaldson, eru. Friðrik er á Facebook og hann fer út að skemmta sér með vinum sínum í Kaupmannahöfn. En nú fær hann þetta í bakið á sér,“ skrifar Karina Svensgaard hjá BT. Besti vinur Friðriks, Jeppe Handwerk, segir í samtali við blaðið að fjölmiðlar hafi gert of mikið úr ljóskunni sem Friðrik sást vera kumpánlegur við. „Hún vinnur hjá mér og hún er vinur minn og konunnar minnar. Þau hafa hist nokkrum sinnum,“ segir Jeppe en hann er sá eini sem ekki er með blátt blóð í æðum og boðið er í skírnina. Fjölmiðlar eru almennt sammála um að málið eigi eftir að auka vinsældir prinsins hjá helmingi þjóðarinnar, hinir eigi eftir að krefja hann um ábyrgari hegðun í framtíðinni. „Friðrik hefur náð að auka vinsældir dönsku konungsfjölskyldunnar með hegðun sinni en hann verður að gæta þess að verða ekki merktur sem partý-prinsinn,“ segir Lars Hovbakke Sørensen, sérfræðingur í konungsfjölskyldunni, í samtali við BT.- fgg
Mest lesið Seiðandi víbrur sem virka í bólinu Lífið Þegar Jónas var jarðsettur hundrað árum eftir andlátið Lífið Amman helsta fyrirmynd tískudrottningar Reykjavíkur Tíska og hönnun Ein frægasta bakrödd landsins gifti sig Lífið Ríkulegt einbýlishús knattspyrnukappa falt fyrir 315 milljónir Lífið Skammar vini sína: „Hættum Happy birthday á Facebook“ Menning „Við munum aldrei leyfa minningu hennar að deyja“ Lífið Kemur út sem pankynhneigð Lífið Sannfærði Balta um að snúa aftur Bíó og sjónvarp „Pylsa“ sækir í sig veðrið Lífið Fleiri fréttir Seiðandi víbrur sem virka í bólinu Þegar Jónas var jarðsettur hundrað árum eftir andlátið Ein frægasta bakrödd landsins gifti sig „Pylsa“ sækir í sig veðrið Ómótstæðileg ítölsk steikarloka úr smiðju Hildar Rutar Opnar sig um sviplegt fráfall eiginmannsins „Lítið ömmugull á leiðinni“ hjá Siggu Lund Ríkulegt einbýlishús knattspyrnukappa falt fyrir 315 milljónir Langömmulán hjá Eddu Björgvins Kemur út sem pankynhneigð Vín mun hýsa Eurovision á næsta ári „Við munum aldrei leyfa minningu hennar að deyja“ Einfaldar leiðir til að róa taugakerfið Nýju fötin forsetans Erla og Ólafur selja glæsilegt einbýli í Vesturbænum Bubbi segir Hróa Hattar-brag á stuldinum Dúnmjúkir pizzasnúningar Fáklædd og glæsileg við sundlaugarbakkann Flugfreyjusætið var inni á klósettinu Sunneva veltir Evu Ruzu úr sessi Elskar Kennedy þó þeir ræði lítið pólitík í matarboðum Kennir kettinum hundatrix og heklar á hann föt Martin og Anna María selja hönnunaríbúð í Garðabæ Þaggar niður í orðrómi um sambandsslit Fjörutíu ára draumur Guðmundar rættist Gamlir samherjar funduðu á fiskistað Ein glæsilegasta leikkona landsins á lausu Saga Matthildur orðin tveggja barna móðir WikiLeaks og aðför stórvelda: Uppljóstrun aldarinnar undirbúin í Reykjavík Bryndís Haralds amman og Gunni Helga afinn Sjá meira