Fleiri fréttir

Angraður af æstum konum - myndband

Meðfylgjandi myndir voru teknar í gær af leikaranum Robert Pattinson úr vampírumyndinni Twilight í New York við tökur á kvikmyndinni „Remember Me". Í myndskeiðinu má sjá æsta kvenkynsaðdáendur elta leikarann og nánast stökkva á hann. Sjá aðdáendurna angra Robert hér.

Hljóðfærum stolið af Sudden Weather Change

Brotist var inn í æfingahúsnæði hljómsveitarinnar Reykjavík! og stolið þaðan hljóðfærum úr eigu Sudden Weather Change sem strákarnir höfðu fengið að geyma í húsinu. Meðal annars var stolið effektum og rauðum gítar af gerðinni Fender Mustang, auk þess sem fartölva var tekin.

Alltaf gleði hjá FM 957

Stuðboltarnir á útvarpsstöðinni FM 957 héldu upp á tuttugu ára afmæli sitt á Nasa á laugardaginn. Stöðin stóð svo sannarlega undir nafni því allir voru í stuði.

Bankahrun hjá EVE Online

„Það er hægt að læra margar lexíur í EVE sem kosta ekki mikið,“ segir Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP. Heimasíða New York Times birti grein um banka sem fór á hausinn í íslenska tölvuleiknum EVE Online eftir að bankastjórinn Ricdic stakk af með hluta af innistæðunni og seldi á svörtum markaði fyrir alvöru peninga. Eftir sitja innistæðueigendurnir með sárt ennið. Hilmar Veigar segir að erfitt sé að líkja þessu við íslenska bankahrunið enda sé EVE Online einungis tölvuleikur.

Fyrsta lagið frá Krónu

Hljómsveitin Króna gefur út sitt fyrsta lag, Annar slagur, á morgun á Tónlist.is. Króna er rokktríó skipað þeim Birgi Erni Steinarssyni, Jóni Val Guðmundssyni og Hjalta Jóni Sverrissyni.

Mixdiskur með vögguvísum

Plötusnúðarnir Gísli Galdur Þorgeirsson og Benni B-Ruff, réttu nafni Benedikt Freyr Jónsson, hafa lengi skemmt dansglöðum Íslendingum með tónlist sinni. Nýlega tóku þeir að sér að setja saman sérstaka mixdiska, sem kallast A-D, í samstarfi við Smirnoff og tískuvöruverslunina Kron Kron.

Tár féllu á síðasta tökudegi

„Sko, þetta er pínulítið flókið. En við leikum sem sagt tökuliðið hans Hilmis Snæs í bíómynd sem hann er að leikstýra í kvikmyndinni Mömmu Gó Gó," segir Ragnar Bragason, leikstjóri Fangavaktarinnar.

Tvær gítarhetjur starfa saman

Gítarleikarar úr tveimur af þekktustu hljómsveitum landsins, SSSól og Í svörtum fötum, starfa saman í versluninni Sense Center í Kringlunni. Um er að ræða félagana Eyjólf Jóhannsson og Hrafnkel Pálmarsson sem hafa starfað þar saman í tvö ár.

Hjóla frá Ísafirði til Reykjavíkur

Átta ísfirskir skátar lögðu upp í langan hjólatúr síðasta föstudag, nefnilega frá Ísafirði til Reykjavíkur. Þeir hafa í hyggju að taka þátt í skátamóti í Viðey dagana 19. til 24. júní og ákváðu að hjóla leiðina í stað þess að nýta sér hefðbundnari fararskjóta.

Stjörnurnar streymdu í jarðarför Carradine

Fjölmargar stjörnur úr bandarískum skemmtanaiðnaði voru meðal um fjögur hundruð syrgjenda sem kvöddu í hinsta sinn bandaríska leikarann David Carradine þegar hann var borinn var til grafar í Los Angeles í gær.

Morðvopnið notað til að steikja hamborgara

Hótel Bjarkalundur í Reykhólasveit er orðinn sögustaður eftir þættina um Georg Bjarnfreðarson og félaga og sækist fólk nú í að skoða vettvang og leikmuni helstu atburða Dagvaktarinnar. Morðvopnið, pannan sem Gugga fékk í hausinn, er ennþá notað til að steikja hamborgara.

Hætt að gera heimskulega hluti

Leikkonan Sienna Miller er mun frægari fyrir ákvarðanir sínar í ástarlífinu en fyrir þau hlutverk sem hún hefur tekið að sér í hverri stórmyndinni á fætur annarri. Nú reynir hún að breyta því. Leikkonan fer með hlutverk í nýrri G.I. Joe mynd og í nýlegu viðtali við Vogue tímaritið viðurkenni hún að hafa stundum gert slæma hluti.

Rukkar 1.600.000 krónur á mínútuna

Hin brotthætta Susan Boyle getur nú andað léttar og hætta ð kvarta yfir þeim 130 pundum sem hún fær í bætur á viku. Nú rukkar hún 8 þúsund pund, rúmar 1.600.000 krónur á mínútuna fyrir að koma fram.

Yfirgaf Paris og fór til Vegas

Knattspyrnukappinn Cristiano Ronaldo yfirgaf Paris í gær og hélt til Las Vegas þar sem hann hyggst halda áfram að skemmta sér. Ronaldo snéri bakinu við lystisemdum Hilton í Los Angeles og hreiðraði um sig á fimm stjörnu Wynn hótelinu í höfuðborg spilavítanna, Las Vegas.

Íslandsvinirnir í Blur byrjaðir aftur

Íslandsvinirnir í hljómsveitinni Blur eru komnir aftur á fullt. Damon Albarn og félagar hafa ákveðið að taka upp þráðinn aftur eftir níu ára hlé. Hundrað og fimmtíu manns mættu á tónleika þeirra á lestrsafni í Colchester á Englandi í gærkvöldi en þar komu þeir fyrst fram opinberlega árið 1988.

Miley og Jónasarbróðir saman á ný

Sá orðrómur hefur lengi verið uppi að söngkonan Miley Cyrus sé að slá sér upp með fyrrum kærasta sínum, Nick Jonas, sem er einn af hinum vinsælu Jonas-bræðrum. Sambandsslit Miley og Justin Gaston þykja styðja þann orðróm en þau hættu saman nýlega.

Melanie með stöðumælasekt - myndir

Fræga fólkið í Hollywood gleymir líka stundum að borga í stöðumæli. Því komst leikkonan Melanie Griffith að í vikunni þegar hún fór út að versla með stelpunum sínum tveimur. Ljósmyndarar eltu hana í verslunarferðina og festu á filmu þegar hún uppgötvaði sektina.

Paris neitaði Bruno sem þurfti að sætta sig við Eminem

Uppákoman á MTV verðlaunahátíðinni fyrr í mánuðinum þar sem Bruno datt ofan á Eminem er flestum sennilega enn í fersku minni. Síðar kom í ljós að atriðið var fyrirfram ákveðið en margir héldu að um slys hefði verið að ræða. Nú hefur komið í ljós að upphaflega hugmyndin var að fá sjálfa Paris Hilton til þess að taka þátt í atriðinu. Hún neitaði.

Ekkert bílasalavæl frá SSSól

Helgi Björnsson er að ræsa hljómsveitina SSSól sem hann líkir við Kröflu. Og sér við Ferguson. Hann hefur úr slíkri breidd að spila að hann getur skipt inn á í bandið eftir hentugleika.

Systkini hjóla með ferðamenn

Systkinin Sólveig og Páll Pálsbörn munu í sumar bjóða ferðamönnum, erlendum jafnt sem íslenskum, upp á ókeypis hjólaferðir um miðbæ Reykjavíkur. Verkefnið, sem hlotið hefur nafngiftina Crymoguide, er unnið í samstarfi við skapandi sumarstörf Hins hússins.

Skipið slær í gegn í DK

„Jájá, það er einhver djöfullinn danskur í gangi,“ segir Stefán Máni rithöfundur. Sem ekki getur kvartað undan viðtökum þeim sem bók hans Skipið er að fá um þessar mundir úti í Danmörku. Í dag birtist opnuumfjöllun um Stefán Mána og viðtal í stórblaðinu Politiken. Og í glænýjum dómi í Jyllands-Posten fær Skipið fimm stjörnur af sex mögulegum. „Den syvende krimi fra Stefán Máni er sublim,“ skrifar Lars Ole Sauerberg.

Pabbi Sandy stoltur

Söngleikurinn Grease var frumsýndur við glimrandi undirtektir á fimmtudaginn var.

Yoko Ono verðlaunuð

Yoko Ono, ekkja Johns Lennon, var heiðruð fyrir æviframlag sitt til tónlistarheimsins af breska tímaritinu Mojo. Þetta eru fyrstu tónlistarverðlaunin sem hún hlýtur á ferli sínum. Yoko, sem hefur hingað til verið gagnrýnd fyrir að hafa valdið því að Bítlarnir hættu, þakkaði Mojo fyrir hugrekki sitt. Á 41 ári hefur hún gefið út 24 plötur, bæði ein og með Lennon.

Oddaflug dr. Bjarna

Einhver skæðasti myndlistarmaður þjóðarinnar – dr. Bjarni Þórarinsson – efnir til sjónþings sem heitir Oddaflug sirkilhyrninganna á menningarknæpunni Grand Rokk.

Japönsk menning beint í æð

„Þetta er einn stærsti viðburður sem Norræna húsið hefur lagt í og er í fyrsta skipti sem við erum með fókusinn á annað land en eitthvert Norðurlandanna,“ segir Ilmur Dögg Gísladóttir, kynningarfulltrúi fyrir 101 Tokyo snerting við Japan.

Stór útihátíð háskólanema

Stór útihátíð fyrir háskólanema verður haldin í Hallgeirsey í Austur-Landeyjum dagana 3.-5. júlí. Nóg verður um að vera, þar á meðal trúbadorakeppni, brekkusöngur og blauthokkí, auk þess sem hljómsveit leikur fyrir dansi. Útihátíðin er orðin fastur liður í félagslífi stúdenta og hafa um fimm hundruð manns sótt hana á hverju ári. Það er félag verkfræðinema við Háskóla Íslands sem skipuleggur hátíðina og hvetur það alla háskólanema, þar á meðal þá sem eru ekki í HÍ, til að láta sjá sig. Nánari upplýsingar má finna á hallgeirsey.rokkar.com.

Nafn komið á plötu Múm

Fimmta plata hljómsveitarinnar Múm nefnist Sing Along to Songs You Don"t Know og kemur út 21. ágúst.

Fyrsta plata Audio

Audio Improvement gefur á mánudag út sína fyrstu plötu sem nefnist Story Fragments. Hljómsveitin, sem var stofnuð fyrir tæpum tveimur árum, er skipuð átta tónlistarmönnum. Spila þeir tilraunakennda hiphop-tónlist þar sem ýmsum tónlistarstefnum er blandað saman.

Stofna Bad Lieutenant

Þrír fyrrverandi meðlimir hljómsveitanna New Order og Joy Division hafa stofnað nýja hljómsveit með gítarleikara Blur, Alex James. Sveitin nefnist Bad Lieutenant og gefur út sína fyrstu plötu í október.

Lohan og Ronson rífast

Lindsay Lohan og plötusnúðurinn Samantha Ronson eru byrjaðar saman að nýju og segir slúðurpressan að Lindsay hafi sést með trúlofunarhring á fingri. Er dvölin ekki löng í para­dís frekar en fyrri daginn hjá stúlkunum og eru þær strax farnar að rífast að nýju.

Carradine framdi ekki sjálfsvíg

Sjálfsvíg olli ekki dauða leikarans Davids Carradine, sem fannst látinn á hótelherbergi í Taílandi fyrir skömmu. Fjölskylda hans bað um að leikarinn yrði krufinn í annað sinn til að útiloka að hann hefði fyrirfarið sér og komst læknirinn að fyrrgreindri niðurstöðu.

Georg of ljótur fyrir Bandaríkjamenn

Framleiðslufyrirtæki í Hollywood hefur tryggt sér réttinn á að endurgera íslensku gamanseríuna Næturvaktina. Ragnar Bragason leikstjóri heldur að það verði erfitt að finna amerískan Georg Bjarnfreðarson.

Bubbi mætti í afmæli FM 957 - myndir

Á meðfylgjandi myndum má sjá gamla útvarpsmenn og frægar poppstjörnur eins og Bubba, Ragga Bjarna, Helgi Björns og Pétur Jóhann fagna 20 ára afmæli FM 957. „Þór og Steini voru reglulega með fastan lið í þættinum hjá sér sem var „Hver er í flottari sokkum". Í morgun þá var Steini í tveimur mismunandi sokkum, annar var Bubbi Byggir sokkur og hinn var svona dökkblár með stoppara á ilinni eins og fyrir litlu börnin," segir Heiðar Austmann útvarpsmaður aðspurður út í sokkana sem skoða má í myndsafninu.

Læri Lewinsky - myndir

Þegar Monica Lewinsky, 35 ára, sést á förnum vegi vekur hún ávallt athygli eins og í gær þegar hún var mynduð með skoska leikaranum Alan Cumming og eiginmanni hans Grant Shaffer. Á meðfylgjandi myndum má sjá læri Monicu sem var hjásvæfa Bill Clinton þegar hún var aðeins 21 árs gömul.

Föstudagsfiðrildi í miðbænum

Á hádegi í dag hófst fyrsta Föstudagsfiðrildi sumarsins hjá H2, skapandi sumarhópum ungs fólks sem vinna í þágu menningar og lista á vegum Hins hússins. Á Föstudagsfiðrildunum leika sumarhóparnir listir sínar fyrir gesti og gangandi, en alls verða haldin þrjú fiðrildi yfir sumarið.

Svala selur ekki drasl

„Við erum að selja stelpu og strákaföt, háhælaða skó, strigaskó, kjóla, samfestinga, jakka, sólgleraugu, skart og margt fleira," svarar Svala Björgvins aðspurð hvað hún ætlar að selja í Kolaportinu á morgun, laugardag. „Ég er alltaf með fatamarkað einu sinni til tvisvar sinnum á ári. Mér finnst alltaf gott að hreinsa til hjá mér. Ég er ekki að selja eitthvað drasl, þetta er allt rosalega flott föt og skór," segir Svala.

Joly á Saga Class

Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu lét heldur betur heyra í sér þegar hún var í einni af vinnuferðum sínum hér á landi í vikunni. Eva mætti í viðtöl hjá fjölmiðlum þar sem hún sagði að mörgu væri ábótavant í rannsókninni.

Næturvaktin endurgerð í Bandaríkjunum

Bandarískt framleiðslufyrirtæki, Reveille Production, hefur keypt réttinn af Næturvaktinni og hyggst framleiða útgáfu af þáttunum fyrir bandarískan markað. Fyrirtækið framleiðir hina geysivinsælu Office-þætti.

Mónitor í sjónvarpið

„Ég var að koma inn úr fyrstu tökum. Vá! Þetta er í fyrsta skipti sem ég segi þetta,“ segir Atli Fannar Bjarkason, ritstjóri tímaritsins og vefsins Mónitors.

Þrír leikarar með ellefu hlutverk

Æfingar á öðru stykki Grindvíska atvinnuleikhússins, GRAL, eru hafnar. Að þessu sinni á að setja upp frumsamið barnaleikrit, Horn á höfði. Bergur Þór Ingólfson leikstýrir og leika Víðir Guðmundsson, Sólveig Guðmundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson í verkinu.

Útskrifaður af sjúkrahúsi

Duncan McKnight, söngvari bandarísku hljómsveitarinnar The Virgin Tongues, hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi eftir að hafa slasast lífshættulega í miðborg Reykjavíkur 1. maí síðastliðinn. Hann er nú í endurhæfingu og á meðan hann jafnar sig dvelja hinir meðlimir sveitarinnar á Íslandi og leita sér að vinnu til að hafa í sig og á. Þeir verða plötusnúðar á Sódómu Reykjavík í kvöld á tónleikum Singapore Sling. Einnig koma fram The Deathmetal Supersquad og Skelkur í bringu.

Eurovisionstjarna auglýsir morgunkorn

„Þetta hefur verið uppáhaldsmorgunkornið mitt frá því ég var krakki þannig að ég vildi gjarnan taka að mér að auglýsa vöruna," segir söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, en hún leikur í nýrri auglýsingu fyrir Havre Fras-morgunkornið.

Eins og í ekta spennusögu

„Ég er gjörsamlega í skýjunum. Þetta var alveg eins og í ekta spennusögu,“ segir rithöfundurinn Steinunn Jóhannesdóttir. Fartölva í eigu hennar er komin í leitirnar eftir að henni var stolið úr bíl hennar fyrir mánuði síðan, eins og Fréttablaðið greindi frá. Í tölvunni voru drög að skáldsögu sem hún hefur verið að vinna að síðustu ár sem fjallar um sögulegar persónur á 17. öld.

Íslenskt stefnumót Travolta

John Travolta segir Denzel Washington frá stefnumóti sínu við undirfatafyrirsætu á Íslandi í þeirra nýjustu spennumynd, Taking of Pelham 1 2 3. Travolta leikur náunga að nafni Ryder, fyrrverandi fjárfesti á Wall Street, sem rænir neðanjarðarlest í New York og krefst lausnargjalds fyrir farþegana.

Sjá næstu 50 fréttir