Lífið

Oddaflug dr. Bjarna

Dr. Bjarni heyrði forseta Íslands á Vogi, Þórarinn Tyrfingsson, flytja skörulegt mál í útvarpi og við það skildu leiðir með Bjarna og áfenginu. fréttablaðið/arnþór
Dr. Bjarni heyrði forseta Íslands á Vogi, Þórarinn Tyrfingsson, flytja skörulegt mál í útvarpi og við það skildu leiðir með Bjarna og áfenginu. fréttablaðið/arnþór

Einhver skæðasti myndlistarmaður þjóðarinnar - dr. Bjarni Þórarinsson - efnir til sjónþings sem heitir Oddaflug sirkilhyrninganna á menningarknæpunni Grand Rokk.

„Menn hafa verið að vara mig við að nota orðið oddaflug. Segja það tengjast einhverju fyrirtæki Hannesar Smára. En hann á náttúr­lega engan einkarétt á því orði um þetta fallega náttúru­fyrirbæri," segir dr. Bjarni Þórarinsson sjónháttafræðingur.

Fréttablaðið greip Bjarna, einhvern stórbrotnasta listamann þjóðarinnar, glóðvolgan á miðvikudag er hann var hengjandi upp sýningu á menningarknæpunni Grand Rokk - hans fimmta sjónþing þar en dr. Bjarni hefur efnt til rúmlega tuttugu sjónþinga á sínum litríka ferli. Og nú leikur allt á reiðiskjálfi. Því í sínum pælingum hvað varða sjónháttafræðina hefur dr. Bjarni uppgötvað tvígulinn. „Menn þekkja tígla. En ég hef nú skilgreint fyrirbærin „tvígull" og „þrígull". Allt rúmast þetta innan hringsins sem er þá alhyrningur," segir dr. Bjarni en sjónþing hans nú ber yfirskriftina Oddaflug sirkilhyrninganna. Bjarni hefur unnið hörðum höndum að þessu þingi, við innrömmun verka sinna, en Guðmundur Bjartmarsson kvikmyndagerðarmaður liðsinnti Bjarna við að koma verkunum á staðinn.

Síðan er það að semja þá sinfóníu sem felst í því að raða sýningunni saman. Guðmundur Oddur er hægri hönd Bjarna við þann gjörning en mikið á eftir að bætast við.

Sjálfur er Bjarni í gríðargóðu formi, betra formi en oft. „Árið 2009 verður stórt og mikið ár. Ég vann listsigur strax í upphafi árs. Árið byrjaði með trukki hjá mér. Og fleiri sýningar eru í pípunum. En það er komin hefð á að ég sýni hér á Grand Rokk. Hér hefur verið gerð hallar­bylting. Meiri menningarbragur en oft. Hér er nýlokið menningar­hátíð sem tókst mjög vel. Mörg athyglisverð atriði voru flutt af miklum metnaði. Sannleikurinn er sá að þetta er alþýðumótsstaður. En einnig er hér mikið af góðum listamönnum. Framúrskarandi listamönnum sem sækja staðinn. Og hér hefur kaffidrykkja aukist til mikilla muna," slær dr. Bjarni fram. Forvitnileg staðhæfing. Sem Bjarni skýrir meðal annars á þann hátt að sjálfur hafi hann ekki smakkað áfengi í tvo mánuði. „Ég heyrði forseta Íslands á Vogi, Þórarin Tyrfingsson, flytja skörulegt mál í útvarpi. Og þá skildu leiðir. Ég varð viðskila við áfengi. Hef verið í kaffinu síðan. Og stefni að því að verða útrásarvíkingur. Og þá meina ég: Alvöru útrásar­víkingur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.