Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Astrópía frumsýnd í kvöld Frumsýning á myndinni Astrópíu fer fram í Sambíóunum Álfabakka í kvöld. Ottó Geir Borg og Jóhann Ævar Grímsson skrifuðu handritið. Gunnar Björn Guðmundsson leikstýrir myndinni og framleiðendur eru þeir Ingvar Þórðarson og Júlíus Kemp. 22.8.2007 16:46
Britney hætti við að syngja með Timberlake Samkvæmt heimildum Page Six hugðist Justin Timberlake reyna að aðstoða fyrrum kærustu sína Britney Spears við að hleypa glæðum æ dapurlegri feril hennar með því að bjóða henni að syngja með sér dúett. Timberlake á að hafa samið sérstakt lag að því tilefni og voru umboðsmenn Britneyjar yfir sig hrifnir. 22.8.2007 15:43
Geir Ólafs keyrir um á Range Rover Glöggir vegfarendur hafa tekið eftir að söngvarinn og athafnamaðurinn geðþekki Geir Ólafs ekur um bæinn á flottum dökkbláum Range Rover. Geir hefur nýlega stofnað plötufyrirtæki og sagði í samtali við Vísi að bíllinn, sem er rúm 300 hestöfl, væri hluti af ímyndinni. 22.8.2007 15:24
Rammíslensk fiðla í rammíslensku safni Sunnudaginn 26. ágúst er komið að síðustu stofutónleikum Gljúfrasteins í sumar. Á þeim munu þau Guðný Guðmundsdóttir, fiðluleikari og Gerrit Schuil, píanóleikari flytja verk eftir Ludwig van Beethoven og Fritz Kreisler. Guðný mun auk þess vígja nýja fiðlu sem smíðuð var á Íslandi af Hans Jóhannssyni fiðlusmiði. 22.8.2007 14:36
Lindsay gæti sloppið við fangelsisvist Samkvæmt heimildum TMZ.com gæti verið að Lindsay Lohan slyppi við fangelsisvist vegna fíkniefnabrota sem hún hefur verið kærð fyrir. Kærurnar snúa að tveimur nýlegum handtökum vegna aksturs leikkonunnar undir áhrifum áfengis og fíkniefna sem fundust í fórum hennar. 22.8.2007 13:57
Pitt gagnrýnir hægfara uppbyggingu í kjölfar Katrínar Hollywoodleikarinn Brad Pitt segir að uppbygging í New Orleans, eftir að fellibylurinn Katrín fór þar yfir fyrir um tveimur árum, sé allt of hæg en bylurinn olli mikilli eyðileggingu á svæðinu. 22.8.2007 12:31
Perez Hilton mælir með Hafdísi Huld Einn frægasti og vinsælasti bloggari heims, slúðurberinn Perez Hilton, fer fögrum orðum um tónlist Hafdísar Huldar á heimasíðu sinni. Perez hefur sérhæft sig í slúðri af ríka og fræga fólkinu í Bandaríkjunum og víðar og sækja milljónir manna síðu hans daglega. 22.8.2007 12:06
Megas í fyrsta sinn í Höllinni Laugardaginn 13. október næstkomandi mun tímabótaviðburður eiga sér stað í íslensku tónlistarlífi þegar Megas stígur á stokk í Laugardalshöllinni og heldur sína allra fyrstu stórtónleika ásamt Senuþjófunum. 22.8.2007 10:51
Leit að Nylon stúlku slegin af Ekkert verður af fyrirhuguðum sjónvarpsþætti Nylon flokksins á Stöð 2 Sirkuss í haust eins og efni stóðu til. Búið var að gera samkomulag um raunveruleikaþætti sem áttu að fjalla um fyrirhugaðar áheyrnarprufur hjá Nylon og upptökur erlendis í kjölfarið. Ástæða þess að hætt er við þættina er sú að stúlkurnar vilja ekki bæta meðlimi við flokkinn eftir vel heppnaða framkomu á Kaupþingstónleikunum á föstudaginn síðastliðinn. 22.8.2007 09:54
Skammbyssa Presleys fannst á kamri Skammbyssa, sem stolið var úr After Dark safninu sem tileinkað er Elvis Presley, fannst á kamri fyrir utan safnið. Ræstingarmaðurinn Janitor Travis Brookins fann byssuna þegar hann var að þrífa kamarinn. Byssan var tekin úr sýningarkassa á safninu í Graceland þann 16. ágúst síðastliðinn þegar fjöldi fólks var þar saman kominn til að minnast þess að 30 ár voru liðin frá dauða rokkkóngsins. 22.8.2007 09:12
Donald Trump réttir partígellum hjálparhönd Það má segja að þeim Britney Spears, Linsay Lohan og Paris Hilton veiti ekki af hjálparhönd. Nú hefur boð um hjálp borist úr ólíklegustu átt. Donald Trump mun nefnilega vera að falast eftir því að fá þær í stjörnuútgáfu af sjónvarpsþætti sínum The Apprentice. 21.8.2007 16:55
Samið um kvikmyndarétt á Fólkinu í kjallaranum Kvikmyndaframleiðslufélagið Túndra undirritaði í gær samning við Auði Jónsdóttur og Eddu útgáfu um kaup á réttindum til að gera kvikmynd eftir bókinni Fólkið í kjallaranum eftir Auði. 21.8.2007 16:10
Nóg af þingmönnum í Vesturbænum Ágúst Ólafur Ágústson, þingmaður Samfylkingarinnar, er búinn að setja hús sitt í Vesturbænum á sölu og hyggst flytja í draumahúsið í Rauðagerði sem hann festi kaup á í sumar. 21.8.2007 15:34
Mel B ver bónda sinn Kryddpían Mel B hefur nú í fyrsta skipti tjáð sig um þann orðróm að hinn nýbakaði eiginmaður hennar sé ofbeldismaður. Kvikmyndaframleiðandinn, Stephen Belafonte, hlaut skilorðsbundinn dóm árið 2003 fyrir að leggja hendur á fyrrverandi eiginkonu sína Nicole Contreras og var auk þess gert að sitja námskeið fyrir menn sem beita heimilisofbeldi. 21.8.2007 14:33
Keira gagnrýnir þá sem sækjast eftir frægð Pirates of the Caribbean stjarnar, Keira Knightley, hefur ráðlagt þeim sem sækjast eftir frægð og frama að sækja frekar um vinnu á hlutabréfamörkuðum. "Það vekur ugg hjá mér þegar krakkar segjast vilja verða frægir," sagði hin 22 ára gamla leikkona í viðtali við Radio Times. 21.8.2007 13:47
Tvö hundruð manna afmælisveisla fyrir eins árs dóttur Önnu Nicole Smith Þegar er farið að skipuleggja eins árs afmælisveislu Dannielynn Hope Marshall Birkhead dóttur Önnu Nicole Smith en hún fagnar fyrst afmælisdegi sínum í næsta mánuði. 21.8.2007 11:37
Miðasala hefst á forhlustunartónleika Sprengjuhallarinnar Sprengjuhöllin heldur forhlustunartónleika á tónleikastaðnum ORGAN í Hafnarstræti laugardaginn 1. september í tilefni af því að upptökum er að ljúka á fyrstu breiðskífu hljómsveitarinnar. 21.8.2007 10:53
Er Jen ástfangin? Mikil óvissa ríkir um ástarlíf Jennifer Aniston þessa dagana. Hún virðist þó hamingjusöm og það er nú fyrir öllu. Sá sem kætir stúlkuna er módelið Paul Sculfor en mánuðum saman hafa verið uppi getgátur um að þau séu par. Jennifer heldur því þó staðfastlega fram að þau séu einungis góðir vinir. 21.8.2007 10:34
K-Fed í One Tree Hill K-fed, hinn illa þokkaði fyrrverandi eiginmaður Britney Spears, ætlar að leika í þætti af One Tree Hill. Honum hefur í gegnum tíðina verið legið á hálsi fyrir að gera lítið annað en að mergsjúga digra sjóði Spears til að fjármagna meðal annars misheppnaðan tónlistarferil. 21.8.2007 09:15
Skammbyssu Elvis stolið úr After dark safninu Skammbyssu sem var í eigu rokkkóngsins Elvis Presley var stolið úr After dark safninu í Graceland sem tileinkað er söngvaranum. Byssunni var stolið þann 16. ágúst síðastliðinn þegar fjöldi fólks var þar saman kominn til að minnast þess að þrjátíu ár voru liðin frá dauða kóngsins. 21.8.2007 09:15
Pavarotti þarf að gangast undir frekari rannsóknir Óperusöngvarinn Luciano Pavarotti mun þurfa að dvelja áfram á spítala til að gangast undir krabbameinsrannsóknir. Tenórinn var fluttur á spítala í Mondena á Ítalíu fyrir tveimur vikum með mikinn hita. Skömmu síðar bárust fregnir af því að það ætti að útskrifa hann en nú vilja læknar halda honum lengur. 21.8.2007 09:14
Eivör Pálsdóttir á Ormsteiti Ormsteiti er tíu daga hátíð sem haldin er á Héraði, og hluti af þeirri hátíð er skógardagurinn, sem fór að sjálfsögðu fram í Hallormstaðaskógi. Þar söng Eivör Pálsdóttir, eins og henni einni er lagið, fyrir hátt í sexhundruð manns. 20.8.2007 20:19
Beckham berfættur Það verður seint sagt um David Beckham að hann kunni ekki að meta aðdáendur sína. Hann gekk meira að segja svo langt á dögunum að hann gaf einum þeirra skóna sína. 20.8.2007 16:56
Paltrow pirruð á Brangelinu Óskarsverðlaunaleikkonan, Gwyneth Paltrow, lét hafa það eftir sér árið 2003 að henni þætti svo gott að koma til Chicago því þar væru engir paparazzi ljósmyndarar. Paltrow sem nú er stödd í Chicago til að kynna nýtt ilmvatn er ekki lengur sama sinnis en hún kom til borgarinnar á sama tíma og fyrrum kærasti hennar Brad Pitt. 20.8.2007 15:35
Paris í Big Brother? Partýgellan Paris Hilton íhugar nú alvarlega að taka tilboði um að vera með í stjörnuþætti Big Brother en henni hefur samkvæmt The Sun verið boðin 300.000 pund eða fjörtíu milljónir íslenskra króna fyrir. Paris er mikið í mun að bæta orðstír sinn í Bretlandi og er tilbúin að láta loka sig inni í þrjár vikur fyrir framan sjónvarpsvélar Cannel 4. 20.8.2007 14:19
Tryggvi tekur upp eigin tónlist í bústaðnum Tryggvi Jónsson, fyrrverandi forstjóri Baugs, leggur stund á það að taka upp eigin lög á Apple tölvuna sína í sumarbústaðnum. Tryggvi hefur löngum verið mikill tónlistaráhugamaður og stýrir ásamt Einari Bárðasyni áhættusjóðnum Tónvís sem er í eigu FL group og tekur þátt í útrás íslenskra tónlistarmanna. 20.8.2007 14:00
Rowling skrifar glæpasögu á kaffihúsum Edinborgar J.K. Rowling, höfundur Harry Potter bókanna, hefur undanfarið sést við skriftir á kaffihúsum í Skotlandi og mun hún vera að vinna að gerð glæpasögu. The Sunday Times hefur þetta eftir Ian Rankin kollega hennar og nágranna. "Það er frábært að hún sé ekki hætt að skrifa á kaffihúsum Einborgar," sagði Rankin sem sjálfur er þekktur fyrir lögreglusögur sínar sem gerast í borginni. 20.8.2007 13:00
Pete Doherty handtekinn eina ferðina enn Pete Doherty, söngvari hljómsveitarinnar Babyshamles og fyrrverandi kærasti Kate Moss, var handtekin í austurhluta London í nótt grunaður um vörslu fíkniefna. Lögregla stöðvaði bíl sem Doherty var farþegi í einungis nokkrum klukkutímum eftir að hann kom, ásamt hljómsveit sinni, fram á V hátíðinni í Hylands Park í Chelmsford. Að sögn áhorfanda endaði hann atriðið á því að eyðileggja trommusett. 20.8.2007 11:11
Federline segir Britney vera drykkfellda lesbíu Britney Spears á það á hættu að missa forræðið yfir drengjunum sínum tveimur til fyrrverandi eiginmanns síns Kevins Federline sem segir hana vera drykkfellda lesbíu. Federline hefur safnað saman fjölda upplýsinga um siðspillta hegðun söngkonunnar sem hann telur skaðlega sonum þeirra, þeim Sean Preston, tæplega tveggja ára og Jayden James, ellefu mánaða. 20.8.2007 10:46
Ellefu særðust við tökur á nýjustu mynd Tom Cruise Ellefu manns særðust er þeir féllu niður af pallbíl við tökur "Valkyrie" nýjustu mynd Tom Cruise í Berlín í gærkvöldi. Óhappið varð með þeim hætti að ein hlið bílsins gaf sig í beygju með þeim afleiðingum að fólk á pallinum féll af. Að sögn lögreglunnar í Berlín liggur ein manneskja alvarlega slösuð á spítala. 20.8.2007 09:20
París komin með nýjan Hótelerfinginn París Hilton er komin með nýjan kærasta. Sá heitir Adrian Grenier og er leikari. Þekktasta hlutverk hans er í þáttunum Entourage en hann lék líka í The Devil Wears Prada. 20.8.2007 07:45
Leikgerðin að verða til Gísli Örn Garðarsson segir leikgerð sína eftir Tillsammans óðum vera að skýrast. Leikhópurinn og aðrir sem að uppsetningunni koma dvöldust úti á landi í síðustu viku, við æfingar og annað samspil. Gísli segir dvölina hafa borið mikinn árangur. 20.8.2007 07:30
Ungur ljósmyndari vekur athygli Marino Thorlacius er ungur strákur sem var að gefa út sína fyrstu ljósmyndabók. Hann er sjálflærður í faginu og hefur einungis tekið myndir í þrjú ár. Athygli vekur að hinn virti ljósmyndari Ragnar Axelsson, eða RAX, kallar hann snilling á bókarkápunni. 20.8.2007 07:00
Ágúst gerir draugamynd á Grettisgötu „Þetta er bara kvikmynd sem ég ætla að gera og kemst vonandi á koppinn snemma á næsta ári,“ segir Ágúst Guðmundsson, kvikmyndaleikstjórinn góðkunni, en hann leggur nú lokahönd á handrit sem heitir Ófeigur gengur aftur. 20.8.2007 06:00
Sigur Rós í mynd DiCaprio Hljómsveitin Sigur Rós á lag í heimildarmyndinni 11th Hour sem hjartaknúsarinn Leonardo DiCapro framleiðir og talar inn á. Á meðal fleiri sveita sem eiga lög í myndinni eru Coldplay og Cocteau Twins. 20.8.2007 05:45
Kynlíf fyrir opnum tjöldum „Kynlíf hefur svo mikla möguleika sem tjáningarform sem hafa alls ekki verið nýttir að neinu viti í alvarlegum kvikmyndum,“ segir John Cameron Mitchell leikstjóri myndarinnar Shortbus sem er sýnd hér á Bíódögum Græna ljóssins. 20.8.2007 05:30
Private Cinema - Slaraffenland - Fjórar stjörnur Danir hafa verið að sækja í sig veðrið að undanförnu í tónlistinni eins og áður hefur kom fram hér í Fréttablaðinu og er sveitin Slaraffenland ein besta sönnun þess. 20.8.2007 05:00
Rómantískt frí hjá Vilhjálmi og Kate Vilhjálmur Bretaprins og kærasta hans, Kate Middleton, eru nú í fríi á eyjunni Desroches í Indlandshafi. Eyjunni er lýst sem rómantískustu eyju heims og hafa bresk dagblöð getið sér til að prinsinn hyggist nota þetta tækifæri til að biðja um hönd kærustunnar. 20.8.2007 04:15
Íslendingar í Edinborg Gríðarlegur fjöldi fólks sækir Edinborgarhátíðina, sem nú stendur yfir, á ári hverju. Í ár eru Tinna Gunnlaugsdóttir og Egill Ólafsson í þeim hópi, auk þess sem leikkonan Vigdís Hrefna Pálsdóttir tekur þátt í tveimur sýningum á hátíðinni. 20.8.2007 04:00
Fjölhæfur Common Hiphop-tónlistarmaðurinn Common hefur gefið út nýja plötu að nafninu Finding Forever. Common lék einnig nýlega í myndinni Smokin‘ Aces ásamt Jeremy Piven, Aliciu Keys og Ben Affleck en hann er vel liðtækur í leiklistinni auk tónlistarinnar. 20.8.2007 03:15
Ný hönnun byggð á gamalli arfleifð Eflaust hringir nafnið Andersen & Lauth bjöllum í huga einhverra borgarbúa enda var þetta nafnið á fyrsta klæðskeraverkstæðinu í Reykjavík. 20.8.2007 02:45
Jamie Foxx í The Soloist Leikarinn Jamie Foxx hefur tekið að sér hlutverk í kvikmyndinni The Soloist. Fjallar hún um heimilislausa tónlistarmanninn og geðklofann Nathaniel Antony Ayers sem dreymir um að halda tónleika í Walt Disney-tónleikahöllinni. 20.8.2007 01:15
Vill börn Jacksons Bresk kona, Nona Jackson, segist vera móðir þriggja barna Michaels Jackson og hefur beðið dómstóla um sameiginlegt forræði yfir þeim. Beiðni hennar hefur verið hafnað vegna skorts á sönnunargögnum. 20.8.2007 00:15
The Bridge - þrjár stjörnur Heimildarmyndin The Bridge fjallar um sjálfsvíg á Golden Gate-brúnni við San Fransisco. Brúin er sá staður í heiminum þar sem flestir binda enda á líf sitt. Á um það bil tveggja vikna fresti stekkur einhver fram af brúnni út í nær öruggan dauða. 20.8.2007 00:01
Skilnaður foreldranna í höfn Foreldrar ungstirnisins og vandræðagemlingsins Lindsay Lohan eru loksins skilin eftir nokkurra ára deilur um umgengnisrétt yfir yngstu börnum sínum og um skiptingu eigna sinna. 20.8.2007 00:00